Fréttablaðið - 17.03.2007, Síða 22
K
atrín
Jóns-
dótt-
ir bar
fyrir-
liðaband íslenska
landsliðsins sem
náði afar góðum ár-
angri á Algarve-
Cup æfingamótinu
í Portúgal. Á mánu-
dag vann Ísland lið
Kína, 4-1, í leik um
níunda sæti móts-
ins. Lið Kína er eitt
hið besta í heiminum
og hefur verið um
áraraðir. Sigur Ís-
lands er því einhver
sá besti í sögu lands-
liðsins.
Katrín var fyrir-
liði liðsins í fjarveru
vinkonu sinnar, Ást-
hildar Helgadótt-
ur, en báðar eru þær
uppaldar Kópavogs-
meyjar. Katrín er
reyndar ekki ókunn-
ug því að gegna fyr-
irliðastöðunni þar
sem hún gerir það
í Íslands- og bikar-
meistaraliði Vals.
Katrín hefur lengi
verið þekkt sem
ein fremsta knatt-
spyrnukona landsins
en hún lék lengi vel
með einu sterkasta
liði Noregs, Kolbotn.
Færri vita að sam-
hliða því að spila
með því sterka liði
sinnti hún læknis-
fræðinámi í Noregi.
Vinir og vandamenn
segja að margir eigi
erfitt með að trúa
því að nokkur maður
geti sinnt þessum
tveimur hlutverkum
jafn vel samtímis.
Katrínu er lýst
sem einstaklega
metnaðarfullri
manneskju sem er
ekki feimin við að
taka að sér svo stór-
tæk verkefni fyrir
hendur. Hún er sam-
viskusöm með ein-
dæmum og höfðu
vinir hennar á tíma-
bili miklar áhyggjur
af því að hún myndi
hreinlega „læra yfir
sig“ eins og góður
vinur hennar komst
að orði í léttum dúr.
Katrín hefur
reyndar verið með
annan fótinn í Nor-
egi alla sína ævi.
Hún fluttist þang-
að með fjölskyldu
sinni sjö ára gömul
þar sem hún kynnt-
ist knattspyrnunni
fyrst. Þar bjó hún í
fjögur ár þar til hún
kom aftur til Íslands
og hélt áfram knatt-
spyrnuferli sínum í
Breiðabliki.
Hún var ekki
nema fjórtán ára gömul er hún lék sinn fyrsta
meistaraflokksleik í Breiðabliki. Það var árið
1991 og fagnaði hún Íslandsmeistaratitli það árið
og reyndar einnig á því næsta. Alls hefur hún sex
sinnum orðið Íslandsmeistari í meistaraflokki
og það þrátt fyrir
að hafa spilað í að-
eins níu tímabil hér
á landi.
Tvítug að aldri
gekk hún til liðs
við Kolbotn, eitt
besta lið Noregs,
sem hefur verið eitt
helsta vígi kvenna-
knattspyrnu í heim-
inum. Þar spilaði
hún í sjö ár en lagði
skóna tímabundið á
hilluna árið 2003 á
meðan hún kláraði
síðasta árið sitt í
læknisfræðinni.
Ári síðar flutt-
ist hún til Kristjáns-
sands þar sem hún
sinnti kandídatsnámi
sínu. Hún tók skóna
aftur fram og spilaði
með Amazon Grim-
stad í tvö ár áður
en hún kom heim á
nýjan leik, læknis-
menntuð og þaul-
reyndur atvinnu-
og landsliðsmaður í
knattspyrnu.
Hún fór þó ekki
í sitt gamla félag,
Breiðablik, heldur
fylgdi vinkonu sinni,
Elísabetu Gunnars-
dóttur, í Val. Elísa-
bet er þjálfari liðs-
ins. Þar var hún fyr-
irliði og tók við bæði
Íslandsmeistara- og
bikarmeistarabikarn-
um í haust fyrir hönd
síns liðs.
Katrínu er lýst
sem „orkubolta“ og
ætti það að koma
fáum á óvart eftir of-
angreinda lýsingu.
Ef hún tekur sér
verkefni fyrir hend-
ur, fylgir hún því
eins ítarlega eftir
og kostur er. Hún
hefur til að mynda
tekið upp á því að
æfa frjálsar íþrótt-
ir nú í vetur til að af-
sanna þá kenningu
að knattspyrnumenn
geti ekki bætt hraða
sinn á síðari hluta
ferilsins.
Hún er þó fyrst og
fremst afar heiðar-
leg og er afar auð-
velt að treysta henni,
bæði innan sem utan
knattspyrnuvallar-
ins. Hún getur verið
skapmikil, er fljót að
rjúka upp en að sama
skapi fljót að ná sér
aftur niður. Það er
stutt í húmorinn hjá
henni og getur hún
alltaf komið nær-
stöddum til að brosa.
Ein góð vinkona
hennar lýsir henni
einnig sem einhverri
mestu „ljósku“ sem
hún viti um. Hún geti
nefnt ótal dæmi því
til sönnunar en segir
frá ferðalagi þeirra til Akureyrar. Þegar þær voru
staddar í Varmahlíð í Skagafirði segist Katrín nú
eitthvað kannast við sig.
„Já, alveg rétt. Við komum hingað þegar við
fórum í æfingaferð í Vík í Mýrdal.“
„Hún er langelst í liðinu en getur samt látið eins og hún
sé sautján ára. Það er afar góður kostur. En að sama
skapi trúir því enginn að hún sé læknir.“
Húmorískur orkubolti
Miðaverð:
A-stúka kr.11.900
B-stúka kr. 9.900
Stæði kr. 5.900
Miðasala er á midi.is
Skífan Laugavegi 26,
Kringlunni, Smáralind
Einnig BT Akureyri,
BT Egilsstöðum
og BT Selfossi
Laugardalshöll
28. mars
UPPSE
LT
Ennþá til miðar í stæði
550 5600
Hringdu ef blaðið berst ekki
- mest lesið