Fréttablaðið - 17.03.2007, Side 24

Fréttablaðið - 17.03.2007, Side 24
Hápunktur dags- ins var að sækja frú Sólveigu og koma með hana heim. Hún er eins og nýsleginn túskildingur eftir þessa heilsubótardvöl hjá góðu fólki á Reykjalundi sem á miklar þakkir skildar. Börnin voru afskaplega kát að endurheimta ömmu sína – óþarf- lega kát, rétt eins og hún hefði birst á elleftu stund til að frelsa þau úr tröllahöndum. Þegar mestu fagnaðarlætin voru afstaðin fór amman að spyrja börnin sakleysislegra spurninga um hvernig þeim hefði líkað atlætið hjá afa sínum og það mega bless- uð börnin eiga að þau báru mér svo vel söguna að ég fór hjá mér. Ég hef gert marga skemmtilega hluti um dagana og kom- ist að þeirri niður- stöðu að allra skemmtilegast sé að gera ekki neitt. Mestan part hefur þessi helgi liðið í sælu athafna- leysi en slíkt ástand er jafnnauð- synlegt fyrir sálina í mér og hvíld er fyrir líkamann. Einhver frægur maður, gott ef það var ekki séra Friðrik, sagði að einungis heimsk- ingjum gæti leiðst. Ég er ekki viss um að það hafi verið rétt hjá gamla mannin- um því að mér leið- ist eiginlega aldrei. Ég er frekar á því að það hafi ekkert með gáfnafar að gera hvort fólk getur haft ofan af fyrir sjálfu sér á eigin spýtur eða ekki. Ég held þetta sé frekar spurning um skap- gerð en gáfur. Til dæmis leiðist hundum að- gerðaleysi en kettir eru sólgnir í innhverfa íhugun. Það er hverf- andi greindar- munur á þess- um tegundum en skaphöfnin er ólík: Hundar eru skemmtanasjúkir og ámátlega extró- vert, kettir eru dulir og yfirleitt í góðu andlegu jafnvægi. Mér finnst allt- af jafnskrýtið að tölvusérfræðing- ar skuli nota orðið „vélar“ um tölvur. „Hvernig vél ertu með?“ segja þeir, en ekki „hvaða tegund er tölvan þín?“ Þegar vélar bila skrúfar maður þær í sundur og skiptir um vara- hluti. Þegar tölva bilar þýðir ekkert að opna verkfærakassann og búa sig undir að pota í hana með skrúfjárni. Maður verður að kalla á vettvang einhvern sem skilur tölvur, rétt eins og miðil eða andalækni þarf til að kom- ast í kallfæri við þá veröld sem er handan mannlegrar þekkingar. Og tölvumaðurinn sest við lyklaborð- ið og fellur í trans og slær inn yfir- skilvitlegar bókstafarunur sem smjúga rakleiðis inn í undirmeð- vitund tölvunnar sem kölluð er innra minni. Þetta kukl segir mér að tölvubil- un sé skyldari geðbilun en vélar- bilun. Tölvan mín er í geðlægð núna, ótrúlega svifasein og dyntótt. Nýj- asta fyrirtektin er að afneita til- veru prentarans þótt hann sé áþreifanlegur og standi við hlið- ina á henni. „Unknown device“, segir tölvan þegar maður gerir til- raun til að kynna hana fyrir prent- aranum, „framandi hlutur“, og vill ekkert hafa með hann að gera. Sennilega endar þetta á því að ég verð að kalla til fjölkunnugan tölvumann. %/!!=(/&/!!! Tölvufj&#”!!! Tölvunni tókst að eyðileggja þennan dag fyrir mér með húð og hári. Í morg- un ákvað ég að láta ekki í minnipokann fyrir ómerki- legu rafmagnstæki. Það var upphafið á martröð sem stóð í allan dag og fram á kvöld. Martröð fyrir mig að minnsta kosti. Ég veit ekki hvernig tölv- unni er innanturns en ég er bugað- ur eftir þessi samskipti. Í gærkvöldi lauk ég við að lesa ævisögu, „Upp í Sigurhæð- ir“, sem Þórunn Valdimarsdótt- ir skáld og sagnfræðingur skrif- Hjarta þjóðarinnar Í Dagbók Þráins Bertelssonar er sagt frá börnum sem frelsast úr tröllahöndum, fjallað um hunda- og kattasálfræði, tölvugeð- sjúkdóma, Matthías Jochumsson, eldhúsdagsumræður, þjóð á brún hengiflugs, galdramann og njósnapúka. Kæra Dagbók Þráinn Bertelsson skrifar
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.