Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 32

Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 32
Þegar við vorum að vinna þessa mynd þá fannst mér ég vera svaka nagli. Æfingarnar urðu aðalatriðið hjá mér. S kotinn Gerard Butler er kannski ekki öllum kunnur eins og er. En eftir að heimurinn sér hann sem Leonidas konung höggva mann og annan í leðurbrók með rauða skikkju í myndinni 300 á hann eflaust eftir að grafa sig í minni manna. Þá sérstaklega kvenþjóðinni og samkyn- hneigðum. Allt leikaraliðið í myndinni, þurfti að leggja á sig átta mánaða æfing- arferli í ræktinni til þess að forða brellu- sérfræðingunum frá því að þurfa að tölvu- teikna á þá ýktustu magavöðva sem sést hafa á hvíta tjaldinu í lengri tíma. Sagan er byggð á sannsögulegum at- burðum, þegar 300 hermenn Spörtu vörðu klettabelti strandlengjunnar ásamt kóng- inum sjálfum fyrir innrás Persa og lögðu þar mörg þúsund hermenn áður en þeir féllu sjálfir. Ótrúlegt hugrekki þeirra kom blóði þjóðarinnar af stað sem varð til þess að Sparta hélt frelsi sínu. Myndin fer þó all frjálslega með staðreyndir, enda er hún nákvæmlega byggð, nær ramma fyrir ramma, á samnefndri myndasögu Frank Millers. Hann skrifaði einnig myndasögu- seríuna sem Sin City var byggð á. Leik- stjórinn Zack Snyder heldur í sömu hefð og leikstjórinn Robert Rodriguez gerði fyrir Sin City, að gæða myndarömmum Frank Millers lífi með því að fylgja þeim eftir í smáatriðum. Útkoman leiðir áhorfandann inn í afar sérstaka ævintýraveröld þar sem nánast allt er leyfilegt. Samkvæmt þjóðsögunni voru Spartverjar mjög stolt þjóð og konungur þeirra, Leoni- das, er sá stoltasti. Gerard Butler á prýð- isleik í myndinni og er hárréttur maður til þess að gæða túlkun Millers á þeirri forn- sagnapersónu lífi. Hann býr yfir dýrsleg- um eiginleikum. Sterkbyggður, þróttmikill og vakandi einstaklingur sem gnístir tönn- um með nokkurra sekúndna millibili meðan á viðtalinu stendur. „Leonídas er mjög inni í sér og þögull. Mér leið alltaf eins og að djúpt undir niðri byggi hann yfir ótrúlegum skilningi. Það er ómögulegt að vita hvað hann er að hugsa. Hann er eins sterkur og valdamikill og þeir verða. Hann virðist hafa verið mjög ein- stakur maður og leiðtogi. Hugrekki hans virðist hafa jaðrað við geðveiki. Hann virð- ist þó búa yfir ákveðinni samúð, sem birt- ist örfá andartök í myndinni. Hann er líka hrokafullur andskoti!“ Varstu varkár vegna þess að þú varst að leika goðsögn? „Já, auðvitað. Ég er nú samt vanur því. Eins og þegar ég tók að mér að leika drauginn í Phantom of the Opera-kvik- myndinni en þá bárust mér eflaust um tíu morðhótanir. Sumt fólk er mjög sorglegt. Ég fann fyrir pressu, en það finnst mér kjöraðstæður til þess að vinna. Ég hugsa að ég skili ekki jafn góðum árangri ef ég finn ekki fyrir pressu. Ég tók þessa ábyrgð á mig með það í huga að mig langaði til þess að gera honum hátt undir höfði. Mig lang- aði líka til þess að sýna vinnu Franks Miller virðingu og standa mig í augum leikstjór- ans og sjálfs míns. Þessir hlutir keyra mig áfram, og eyðileggja mig svo.“ Það verður augljóslega ekki gerð fram- haldsmynd, áttu eftir að sakna Leonídas? „Já, það var alveg magnað að leika hann. Ég lærði heilmikið um Spartverja meðan á þessu stóð. Þeir voru svo fullir sjálfstrausti og voru fullir trú og ásetningi. Það er svo óvanalegt að sjá þetta. Bíómyndir fylgja yf- irleitt þessari Rocky-formúlu þar sem hetj- an er barin niður og fer í mikla sjálfsskoð- un. Mér finnst frábært að Leonídas efast aldrei um sjálfan sig. Hann spyr sjálfan sig miklu frekar um hvað stríð snýst og hverjir Spartverjar séu. Kannski vissi hann að saga hans myndi lifa áfram og að það yrði búin til bíómynd þrjú þúsund árum seinna. Þetta er ekki flókin saga og persónurnar eru ekki mjög flóknar heldur. Það er engin ástæða til að vera að útskýra of margt. Áhorfandinn fer inn í þessa veröld og veit strax hverjir þessir menn eru. Þetta er náttúrlega goðsögn og því einfaldari sem þær eru, því auðveldara eiga allir með að tengja sig við þær.“ Hvernig var að þurfa að æfa svona mikið? „Hræðilegt! Við æfðum stanslaust í átta mánuði, en hvernig getur það mögu- lega verið nóg? Hvernig get ég mögulega verið Spartverji? Þessir gæjar gengu um með leggbrynjur og skildi úr kopar. Þeir voru kannski með 70 kíló utan á sér. Það er ekki svo langt síðan ég lék víking og eins og Spartanskir magavöðvar Kvikmyndin 300 virðist ætla að fara sem stormsveipur í kringum hnöttinn miðað við móttökur í Bretlandi og Banda- ríkjunum. Íslandsvin- urinn Gerard Butler leikur aðalhlutverkið í myndinni og Birgir Örn Steinarsson fór og hitti hann í London og spjallaði við hann um myndina, magaæf- ingar, ofurmannlega Íslendinga og auðvitað íslenskt kvenfólk sem hann hefur haft góð kynni af. þá hugsaði ég með mér að hversu harður sem mér finnst ég vera þá er ég ekki nærri því eins harður og þeir voru. Samt, þegar við vorum að vinna þessa mynd fannst mér ég vera svaka nagli. Æfingarnar urðu aðalatriði hjá mér. Ég æfði á daginn á vegum kvikmyndafyrirtæk- isins, æfði svo í tvo tíma með áhættuleikur- unum og fór svo heim og æfði í tvo tíma með einkaþjálfaranum. Ég vissi vel að ég var að ofæfa og að þetta væri ekki hollt fyrir mig.“ Hversu margar bollyftur þarf maður eigin- lega að gera til þess að fá svona magavöðva? „Fullt,“ segir hann og hlær. „Þetta eru ekki bara bollyftur eða æfingar, líka mataræði. Venjulega passa ég ekkert upp á mataræðið.“ Verður maður þá að svelta sjálfan sig og lyfta vörubílum allann daginn? „Nei, þvert á móti. Þú verður að borða meira og reglulega. Ef þú
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.