Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 33
Smáauglýsingasími
550 5000
Auglýsingasími Allt
550 5880
Þú getur pantað
smáauglýsingar á visir.is
Óskar Manúelsson á margar góðar
minningar um afa sinn á gula Saab-
num. Nú er bíllinn komin í eigu Óskars
og gengur undir nafninu Rolling Stones.
„Afi fór oft með mig á Saabnum til Vopna-
fjarðar á sumrin þegar ég var lítill. Hann
var mikið náttúrubarn og þótti gott að kom-
ast í bústaðinn sinn og í veiðitúra á æsku-
stöðvunum,“ segir Óskar Manúelsson,
myndlistarnemi á Akureyri, sem á forláta
Saab 96 árgerð 1979 sem hann erfði eftir
afa sinn fyrir tveimur árum síðan.
„Það eru miklar minningar sem fylgja
bílnum og tengslin því mjög sérstök og
meiri en þau myndu vera við einhverja
glænýja Toyotu. Við erum orðnir hálfgert
par ég og bíllinn,“ segir Óskar.
Bíllinn er ekinn 80.000 þúsund kílómetra
samkvæmt mælum en Óskar segist ekki
vita hvort það sé heilagur sannleikur. Þrátt
fyrir háan aldur skilar bíllinn Óskari vel á
milli staða bæði í skóla og vinnu, en sést
sjaldan á hinum víðfræga Akureyrarrúnti.
„Rúnturinn er ekki mín deild.
Ég fer frekar niður á bryggju eða út fyrir
bæinn þar sem er minni umferð og lítið
af beygjum. Þá get ég skoðað mig um og
notið náttúrunnar,“ segir Óskar sem notar
gjarnan tækifærið í bílnum til að skissa og
teikna.
Saabinn, sem nú gengur undir nafninu
Rolling Stones, hefur lítið verið í ferðalög-
um með Óskari á fullorðinsárum en í sumar
ætla þeir félagar að endurtaka gamlan leik
og kíkja á æskustöðvar afa á Vopnafirði.
Bíllinn hans afa
Vesturlandsvegur
Reykjavík
Mosfellsbær
Húsasmiðj
an
Nóatún
Toppskórinn
Margt Smátt
Vínlandsleið
Sport Outlet
Vínlandsleið 2–4, efri hæð
Grafarholt
Future Cat Crib - 1.990 kr.Rétt verð: 3.990 kr.
Stærðir 18-19
Opnunartímar:
Virkir dagar kl. 12 – 18
Laugardagar kl. 12 – 16