Fréttablaðið - 17.03.2007, Side 38

Fréttablaðið - 17.03.2007, Side 38
Ragnheiður Eiríksdóttir, söng- kona, útvarpskona og fram- bjóðandi, segist ekki þurfa marga hluti til að gera heimilið að notalegum stað. „Ég myndi segja að það væru þrír hlutir sem ég gæti líklega ekki verið án og búa til heim- ili fyrir mér en það er kaffivélin mín, blandarinn og mynd sem ég er með uppi á vegg í stofunni hjá mér,“ segir Heiða. Myndina, sem er eftirprentun af málverki eftir Edward Hopper, er Heiða búin að eiga síðan 2003. „Ég var að flytja og var að henda einhverju dóti í nytjagám þegar ég sá þessa mynd. Ég bara varð að eignast hana þannig að ég byrjaði á því að tékka á því hvenær gám- urinn yrði losaður og hringdi svo í Góða hirðinn og fékk þann sem var að vinna til að lofa mér því að hann myndi hringja í mig þegar myndin kæmi til þeirra. Hún er búin að vera uppi á vegg hjá mér síðan þá nema þegar ég var í út- löndum í ellefu mánuði og hún fór í pössun til mömmu. Ég hef flutt þrisvar sinnum á þessum tíma og það fyrsta sem ég geri alltaf þegar ég flyt á nýjan stað er að hengja myndina upp í stofunni og þá er ég formlega flutt inn.“ Heiða segist vera svo hrifin af myndinni að hún sé farin að stefna á að eignast frummyndina. „Ég ætla mér að eignast hana þó að ég þurfi að verða milljónamæringur til þess. Ef ég byrja að spara núna get ég kannski eignast hana um sjötugt,“ segir hún og hlær. Myndin fannst í nytjagámi Cinaria pilicornis er eina tegund- in af grenisprotalúsarætt sem finnst hér á landi og er lúsin al- geng um allt land. Grenisprota- lús er allt að 5 mm löng, brún eða grágræn að lit. Karldýrið er aðeins um 2 mm að lengd og er blágræn á lit. Grenisprotalús er ýmist vængjuð eða vænglaus. Lýsnar klekjast út á vorin áður en trén springa út og skríða út á grenisprotana til að sjúga nær- ingu úr trjánum. Þær skilja eftir sig saur á laufblöðum. Saurinn er sykurríkur og kallaður hunangs- dögg. Saurinn veldur því að það lokast fyrir öndun laufblaðanna sem verða límkennd og hrein gróðrarstía fyrir svarta sníkj- usveppi (Lúsasvertu, Fumago vagans). Best er að úða að vori þegar lúsarinnar verður vart og á haustin áður en hún verpir. Þegar fólk þarf að fá til sín mein- dýraeyði eða garðúðara, þá skal alltaf óska eftir að fá að sjá starfsskírteini, útgefið af Um- hverfisstofnun og eiturefna- leyfi, gefið út af lögreglustjóra/ sýslumanni og það mikilvægasta er að viðkomandi hafi starfsleyfi frá viðkomandi sveitarfélagi. Ein og sér hafa starfsréttindi meindýraeyða og garðúðara ekk- ert gildi. Athugaðu hvort öll skír- teini séu í gildi. Félagar í Félagi meindýraeyða eru með félagsskírteini á sér. Fáðu alltaf nótu vegna viðskipt- anna. Réttindi meindýraeyða og garðúðara frá erlendum ríkjum og félagasamtökum gilda ekki á Íslandi. Heimildir: Upplýsingar og fróðleikur um meindýr og varnir 2004. Meindýr í húsum og gróðri 1944 Lesendum fréttablaðsins er vel- komið að senda fyrirspurn á net- fangið: gudmunduroli@simnet.is Magnaða moppuskaftið Dagar gömlu skúringarfötunnar eru taldir Skúringarfatan úr sögunni Alltaf tilbúið til notkunnar Gólfin þorna á augabragði Fljótlegt og þægilegt Sölustaðir: Húsasmiðjan – Byko Pottar og prik Akureyri Áfangar Keflavík – Brimnes Vestmannaeyjum Fjarðarkaup – Litabúðin Ólafsvík – Parket og gólf – Rými SR byggingavörur Siglufirði – Rafsjá Sauðárkróki – Skipavík Stykkishólmi – Nesbakki Neskaupstað. Heildsöludreifing: Ræstivörur ehf. Ármúla 42 · Sími 895 8966 mánudaga - föstudaga 10-18 laugardaga og sunnudaga 11-18Opið Glæsilegir gólfvasar á sprengiverði 30-80% afsláttur AÐEINS laugardag og sun nudag Fjölbreytt úrval Margar stærðir
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.