Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 54
17. MARS 2007 LAUGARDAGUR12 fréttablaðið fermingar
Blómaskreytingar koma með
gleði og fegurð og mynda ljúfa
stemningu.
Helga Thorberg, blómaskreyt-
ingasérfræðingur og eigandi
verslunarinnar Blómálfurinn við
Vesturgötu, er öllum hnútum
kunnug þegar kemur að skreyt-
ingum fyrir fermingarveislur.
Hún segir ferlið oft byrja á því að
mæðgur komi saman til að kynna
sér úrvalið og fá hugmyndir og
bætir því við að skreytingarnar
séu æði mismunandi, það fari allt
eftir umfangi veislunnar og smekk
viðkomandi.
„Kostnaðurinn við skreyting-
arnar getur þannig verið mjög
mismunandi en þegar allt er upp-
talið, matur, kaffi, fatnaður og
fleira þá held ég að þessi útgjalda-
liður sé kannski sá sem fólk finnur
minnst fyrir, en hann færir samt
með sér mikla gleði, fegurð og
myndar ljúfa stemningu. Stundum
kemur fólk jafnvel með vasa, skál-
ar og annað að heiman – eitthvað
sem hefur tilfinningalegt gildi –
og fær tillögur um hvernig megi
skreyta þessa hluti. Þannig er
hægt að spila úr hlutunum á fjöl-
breyttan hátt en starf okkar
blómaskreytingamanna felst jú
mjög mikið í því að veita ráðgjöf á
þessu sviði.“
Hvað er fólk að skreyta?
„Það er fyrst og fremst veislu-
borðið en það er misjafnt hvernig
staðið er að þessu. Veislur eru
ýmist í leigðum sölum eða heima-
húsum og skreytingarnar fara
svolítið eftir því. Í kringum ferm-
ingarkertið er yfirleitt einhver
blómaskreyting og þar við hlið
liggur gestabókin. Blómin sem
standa á borðinu eru ýmist blóma-
skreyting eða afskorin blóm í vasa
og yfirleitt miðar fólk við að hafa
einn lit gegnumgangandi í ferm-
ingunni. Stelpurnar velja sér
þannig oft bleika litinn sem
útgangspunkt. Eru þá í bleikum
kjól og miða allar skreytingar út
frá misjafnlega ljósum eða dökk-
um bleikum litbrigðum. Þetta
getur verið sérlega fallegt og
skemmtilegt og gefur veislunni
mjög ljúft og notalegt yfirbragð.“
Hvað þarftu langan fyrirvara á
pantanir?
„Það er náttúrlega alltaf betra að
hafa góðan fyrirvara til að hægt
sé að panta réttu blómin. Eins
verða þau að vera tilbúin á réttum
tíma. Búin að opna sig og komin á
sitt fallegasta stig. Blómin eiga
ekki að skarta sínu fegursta dag-
inn eftir. Ef blóm eru búin að opna
sig þá þarf líka færri blóm til að
rétta stemningin myndist. Opin
blóm segja svo miklu meira en
þau sem enn eru lokuð.“
- mhg
Opin blóm segja meira
en þau sem enn eru lokuð
Sniðugir borðskreytingavasar sem hægt er að setja eitt eða tvö blóm í.
Stefán Sigurjónsson fermist hinn
24. mars í Hafnarfjarðarkirkju.
Hann segist hafa verið ákveðinn í
að láta ferma sig frá því að hann
var tíu ára. „Allir í bekknum
mínum ætla að láta ferma sig en
við fermumst ekki öll í einu því
við erum svo mörg,“ segir Stefán.
Eftir athöfnina verður Stefán
með veislu heima hjá sér og er
undirbúningur fyrir hana hafinn.
„Ég er aðeins búinn að hjálpa til
og ég held að það verði bæði kökur
og matur,“ segir hann.
Stefán er búinn að vera í ferm-
ingarfræðslu í allan vetur og segir
að hún hafi bara verið skemmti-
leg. „Við fórum til dæmis að skoða
kirkju sem ég man ekki alveg hvað
heitir en hún er fræg og það var
mjög gaman.“
Stefán er búinn að kaupa sér
fermingarföt og segist vera orð-
inn frekar spenntur fyrir ferm-
ingunni. Hann veit líka alveg hvað
hann langar að fá í fermingargjöf.
„Mig langar í fartölvu. Ég vona að
ég fái hana en ég er ekki alveg
viss. Ég er samt búinn að láta vita
að mig langi í hana.“ -eö
Finnst skemmtilegt í
fermingarfræðslunni
Stefán er farinn að
hlakka til að fermast.
FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Borðskreyting sem er tilvalin á fermingarborðið enda lifandi blóm ómissandi fyrir
stærstu stundir lífsins. Bleikur er blíður og fallegur litur sem hentar vel daginn sem
ungmennið endurnýjar skírnarheiti sitt enda er bleikur litur kærleikans.
Skreytingar þurfa ekki að vera íburðar-
miklar til að skapa góða stemningu.
Blái liturinn ætti varla að fara fyrir
brjóstið á fermingardrengjunum enda
fallegur og táknrænn litur.
fermingargjöf
Flott hugmynd að
Fermingartilboð
9.990 kr.
Verð áður 12.990 kr.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/U
T
I
36
39
0
02
/0
7
High Peak Sherpa
55+10
Góður göngupoki, stillanlegt
bak og stækkanlegt aðalhólf.
Einnig til 65+10
Fermingartilboð 10.990 kr.
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580
SMÁRALIND SÍMI 545 1550 GLÆSIBÆ SÍMI 545 1500 KRINGLUNNI SÍMI 545 1580