Fréttablaðið - 17.03.2007, Side 60

Fréttablaðið - 17.03.2007, Side 60
 17. MARS 2007 LAUGARDAGUR18 fréttablaðið fermingar „Ég átti mjög skemmtilegan dag,“ segir Mjöll Hólm söngkona þegar hún rifjar upp fermingardaginn. „Ég fermdist reyndar ári á undan heldur en venja er, þar sem mamma ákvað að sameina ferm- ingu okkar systranna. Hún var nefnilega einstæð níu barna móðir og vildi með þessu móti spara pen- ing.“ Að sögn Mjallar hafði móðir hennar upphaflega reynt að fá eldri systur hennar til að fermast ári seinna. Þar sem hún reyndist ekki tilbúin til samningaviðræðna, var Mjöll þá spurð hvort hún gæti hugsað sér að fermast einu ári fyrr. Sú stutta var ekki lengi að hugsa sig um og sló til þar sem hún vildi ólm komast í fullorðinna manna tölu. „Ég átti samt ekki von á því að fermingunni fylgdu jafn mikil við- brigði og raun bar vitni,“ segir Mjöll. „Í þá daga þótti nefnilega eðlilegt að fermdar stúlkur klædd- ust óttalegum kerlingarfatnaði eins og þá var mikið í tísku, þannig að ég vissi ekki fyrr en ég var allt í einu komin í hryllilega hallæris- legan kjól og skó í stíl. Svo var ég send í lagningu, sem kórónaði allt saman, og var allt í einu orðin að lítilli konu.“ Hún hlær við tilhugs- unina. Mjöll segir fermingarveisluna hafa heppnast vel. Móðir hennar hélt veglegt kökuboð þar sem fullt var út af dyrum af vinkonum þeirra systra. „Dagurinn var mjög góður. Ég verð samt að viðurkenna að mér leið hálfundarlega. Sér- staklega þegar ég fór í skólann daginn eftir vitandi að hinir krakk- arnir væru ekki búnir að fermast. Ætli þeim hafi ekki fundist jafn skrítið að fá þessa litlu konu til baka.“ roald@frettabladid.is Breyttist í litla konu Mjöll, vinstra megin, og Svala systir hennar á fermingardaginn. Móðir þeirra hélt veglegt kökuboð í tilefni dagsins og fullt var út af dyrum af vinkonum. Mjöll var skírð aðeins nokkrum árum fyrir fermingu. „Ég var skírð ásamt tveimur yngri systkinum mínum. Við hlógum allan tímann meðan á athöfninni stóð. Okkur þótti svo fyndið að verið væri að skíra svona stóra krakka.“ FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI „Sem betur fer eru fermingar- greiðslur alltaf að verða meira og meira stelpulegar,“ segir Magnea Sif Agnarsdóttir, hágreiðslukona á hársnyrtistofunni Effect á Berg- staðastræti. „Slöngulokkar eru komnir úr tísku, en í staðinn eru stelpurnar með frjálslega lokka sem eru mis- krullaðir og fæstar kjósa að vera með uppsett hár,“ segir hún og bætir því við að einnig þurfi að taka tillit til hárgerðarinnar þegar verið er að móta greiðsluna. „Sól- veig er til dæmis með mjög þykkt hár svo ég hefði hvort sem er ekki getað tekið það mikið upp. Það hefði bara komið út eins og hatt- ur.“ Magnea segir að stutthærðar stelpur séu í svo miklum minni- hluta að hún hafi ekki greitt slíkri í mörg ár. „Þetta er samt að kom- ast í tísku aftur. Ég er byrjuð að taka eftir einni og einni stutt- hærðri, en fram til þessa hafa það aðallega verið eldri konur sem hafa haldið sig við stutta hárið.“ Lifandi blóm eru alveg komin úr tísku að sögn Magneu, en í stað- inn vilja fermingarstelpur litlar skrautspennur í hárið eða lítið áberandi gerviblóm. „Hárskraut má fá í gríðarlegu úrvali í alls konar verslunum. Til dæmis í Skarthúsinu og fleiri búðum sem selja slíkan varning. Ég er mjög sátt við þá þróun sem er að verða í fermingartískunni núna. Fyrir nokkrum árum voru fermingar- stelpur eins og litlar konur, með langar gervineglur, uppsett hár og áberandi förðun, en þetta er komið á allt annað stig í dag. Núna er í tísku hjá stelpum að vera stelpu- legar,“ segir Magnea að lokum. - mhg Stelpulegar greiðslur Magnea Sif Agnarsdóttir, hárgreiðslu- kona á hársnyrtistofunni Effect, mundar hér hárlakksbrúsann á Sólveigu. Sólveig Magnúsdóttir með fallega ferm- ingargreiðslu sem er bæði náttúruleg, stelpuleg og frjálsleg í senn. Mjöll átti góðan fermingardag þótt hún hafi alls kostar ekki verið sátt við kjólinn og hárgreiðsluna. „… ég var allt í einu komin í hryllilega hallærislegan kjól og skó í stíl.“ Hvítu hanskarnir sem margar stúlkur bera á fermingardaginn virðast í hugum margra jafnsjálfsagðir og fermingarkyrtillinn. Hefðin fyrir því að bera þá er hins vegar nokkuð óljós. Sumir vilja tengja hanskana við hreinleika, meðan aðrir vilja rekja uppruna þeirra til tískustrauma og að tilurð þeirra sé einfaldlega til komin vegna þess að fermingarstúlkur hafi viljað vera fínar og snyrti- legar á fermingardeginum. Einnig er hugsanlegt að þeir hafi orðið til sem partur af eins konar einkennisbúningi fermingarbarna. Fátækt var oft mikil og ekki talið heppilegt að greina börn í sund- ur eftir stétt og stöðu með mismunandi klæðnaði. Algengast er að börn beri hvíta satínhanska en einnig bera marg- ir heklaða hanska sem gengið hafa í arf milli kynslóða. Mikið úrval er til af fermingarhönskum, allt frá klassískum satín- og blúndu- hönskum til griffla af ýmsum gerðum, og fylgja ferming- arhanskar því tískustraumum eins og aðrar flíkur. Hvítir hanskar Skólavörðustíg 21 Sími 551 4050 • Reykjavík Til fermingargjafa Úrval af fallegum og vönduðum rúmfatnaði Verkstæði á Laufásvegi 2, gengið inn frá Bókhlöðustíg Upplýsingar í síma 862 2783 eða 552 1783. Himneskir herskarar – Fermingarstyttur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.