Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 100

Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 100
Sienna Miller fær ekki mikinn svefn þessa dagana. Leikkon- an sætir ofsóknum klæðskipt- ings sem kallar sig Peter, og hefur ráðið sér lífverði vegna ótta við hann. „Undarlegum bréfum rignir bókstaflega yfir Siennu. Aumingja stelpan hefur verið svo hrædd að hún getur ekki sofið,! sagði heim- ildarmaður Daily Star um ástand- ið hjá leikkonunni. Sienna lætur ofsóknirnar þó ekki stöðva sig alveg. Eftir frum- sýninguna á myndinni Factory Girl setti hún stefnuna á St. Mart- in hótelið í London ásamt systur sinni og vinum, og hélt partíinu gangandi nóttina á enda. Svefnlaus af ótta Umfangsmikill niðurskurð- ur var í gær gerður á yfir- stjórn RÚV. Páll Magnússon útvarpsstjóri segir breyt- ingarnar miða að aukinni skilvirkni. Þórhallur Gunn- arsson er nú yfir sjónvarpi og dr. Sigrún Stefánsdóttir yfir útvarpi RÚV. Stöður Boga Ágústssonar, Bjarna Guðmundssonar og Dóru Ingvadóttur eru lagðar niður. „Ég get ekki tjáð mig um þá hluta málsins sem snúa að nafngreind- um einstaklingum. Það væri væg- ast sagt óviðeigandi og ónærgætið af minni hálfu,” segir Páll Magn- ússon útvarpsstjóri. Í gær, á dramatískum fundi í Út- varpshúsinu við Efstaleiti, kynnti Páll umfangsmiklar breytingar á skipuriti RÚV. Veruleg fækkun er í yfirstjórn fyrirtækisins. Fimm heyra beint undir Pál: Þórhallur Gunnarsson er nú dagskrárstjóri sjónvarps auk þess að ritstýra áfram Kastljósi, dr. Sigrún Stefánsdóttir er dag- skrárstjóri útvarps, yfirmað- ur fréttastofu útvarps er Óðinn Jónsson, fréttastjóri sjónvarps er Elín Hirst og Bjarni Kristjánsson hefur verið ráðinn yfir rekstur og fjármál. Bjarni er viðskiptafræð- ingur, var eitt sinn fjármálastjóri Íslenska útvarpsfélagsins og áður framkvæmdastjóri Áburðarverk- smiðjunnar. Að sögn Páls er þarna á ferðinni einföldun á yfirstjórn- inni, fækkun yfirmanna í því skyni að auka skil- virkni og stytta boðleiðir. „Verið er að gera stjórnunar- hlutann snarpari og hvassari en er í dag. Stjórnendum fækkar hér innan dyra og hver um sig á að gera meira. Í gamla skipurit- inu voru þrír framkvæmdastjór- ar svokallaðir. Stöður þeirra ráð- herraráðnu framkvæmdastjóra eru nú lagðar niður,“ segir Páll. „Sömuleiðis er staða dagskrár- stjóra Rásar eitt og Rásar tvö, og forstöðumanns svæð- isútvarps gerð að einni.“ Staða Boga Ágústsson- ar, forstöðumanns frétta- sviðs, er þannig lögð niður og Bjarna Guðmundssonar, fram- kvæmdastjóra sjónvarps. Til- kynnt var í gær að hann yrði tíma- bundið skipaður útvarpsstjóri í 15 daga hinnar deyjandi stofn- unar, áður en hún verður ohf-uð, sem án efa mun styrkja eftirlaunarétt- indi hans. Bjarni verður við svo búið ráðinn sérlegur aðstoðarmað- ur Páls. Staða Rúnars Gunnarssonar, dagskrárstjóra innlendrar dag- skrárdeildar, breytist og fer, staða Margrétar Oddsdóttur sem áður stýrði Rás eitt einnig sem og Dóru Ingvadóttur sem var fram- kvæmdastjóri Útvarps. Þá verður staða yfirmanns íþrótta- deildar, þeirri sem Samúel Örn Erlings- son hefur gegnt, lögð niður og heyr- ir deildin undir Þór- hall. Ekki liggur fyrir hvað verður um þetta fólk á þessu stigi. Sumum hefur verið boðin staða eins og í til- felli Sigrúnar Stefánsdóttur, aðrir fara á eftir- laun og aðrir velta því nú fyrir sér hvort þeir þiggi áfram starf við fyrirtækið í breyttri mynd. Svo er til dæmis með Boga Ágústs- son sem fagnar þessari breytingu. Ætlar að halda áfram og þá taka upp þráðinn í fréttamennsku. „Ég er mjög sáttur við þetta skipurit. Þetta eru nákvæmlega þær áherslur sem ég hef verið að berjast fyrir og því er hvorki fyrir klögumálum né kvörtunum hjá mér að fara. Það er verið að leggja áherslu á dagskrármál- in sem er einmitt það sem Ríkis- útvarpið á að ganga út á,“ segir Bogi Ágústsson en staða for- stöðumanns fréttasviðs, sem hann gegndi, var lögð niður sam- kvæmt nýju skipuriti. „Ég er ekki búinn að ákveða hvað ég ætla að taka mér fyrir hendur en hver veit nema ég setjist við skrifborðið og fari aftur að skrifa fréttir,“ bætir hann við. Bogi sáttur við skipuritið Gleði Þórhalls Gunnarssonar með hina nýju stöðu var tvíbent þegar Fréttablaðið náði af honum tali. „Þetta þýðir meiri þrældóm. Ef ég ætla að stýra Kastjósinu áfram og bæta þessu við mig. En við sjáum til,“ segir Þórhallur. Aðspurður hvort þetta hafi verið lengi í deiglunni segir hann að það taki til nokkurs tíma. Og rifar upp fyrir blaðamanni slúður sem Fréttablaðið birti einmitt um að þetta stæði til – að hann tæki við þessari tilteknu stöðu. Þórhallur segir breytinga að vænta sem komi þá fram í haust. En tíma taki að átta sig á því úr hverju þeir hjá RÚV hafi að moða. Með vísan til þess að Þór- hallur er lærður leikari segir hann drauminn að vinna meira leikið efni, ef fjármagn sé til stað- ar, og með vísan í mastersgráðu hans þá segist Þórhallur einfald- lega vilja halda áfram að búa til gott sjónvarp. „Ég veit hins vegar ekki hvað mínum nánustu finnst um þetta. Ég verð enn meira burtu frá heim- ili mínu og hef þó verið mikið frá. Ég verð að koma mér upp íbúð hérna í Útvarpshúsinu,“ segir Þórhallur. Meiri þrældómur Þórhalls
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.