Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 105

Fréttablaðið - 17.03.2007, Page 105
 Snæfell getur í dag orðið fyrsta liðið í sjö ár til þess að slá Keflavík út úr átta liða úr- slitum úrslitakeppninnar en liðin mætast í öðrum leik sínum í úr- slitakepppnini klukkan 16.00 í Keflavík. Snæfell vann fyrsta leik- inn 84-67 í Hólminum og klárar einvígið með sigri í dag. Keflavík tapaði á fimmtudags- kvöldið fyrsta leiknum sínum í úrslitakeppni og er þetta aðeins í þriðja skipti á síðustu 19 árum sem Keflavík er 0-1 undir í fyrstu umferð úrslitakeppninnar. Það hefur hins vegar gerst mun oftar að Keflavíkurliðið hefur tapað fyrsta leik í einvígi. Þar hafa Keflvíkingar sýnt mik- inn styrk því þeir hafa unnið þrjú síðustu einvígin sem liðið hefur tapað fyrsta leik. Þeir unnu ÍR 3- 1 í undanúrslitunum 2005 eftir að hafa tapað fyrsta leik á heimavelli, unnu úrslitaeinvígið gegn Snæfelli 2004 3-1 eftir að hafa tapað fyrsta leik á útivelli og unnu undanúr- slitaeinvígið 2004 gegn Grindavík þrátt fyrir tap í Grindavík í fyrsta leik. Hefur komið til baka í síðustu skipti Fimmta árið í röð verða „óvænt“ úrslit í fyrsta leik í einvígi KR-inga í átta liða úr- slitum, það er heimaliðið tapar fyrsta leiknum. KR-ingar töpuðu eins og kunn- ugt er 65-73 fyrir ÍR í DHL-Höll- inni í Iceland Express deildinni á fimmtudagskvöldið og þurfa því að vinna í Seljaskóla í dag til þess að tryggja sér oddaleik. KR-ingar þurfa ekki að örvænta ef að sagan heldur áfram að end- urtaka sig því þrjú síðustu ár hefur einvígið farið í oddaleik og það lið sem lenti 0-1 undir vann síðan úrslitaleikinn og tryggði sér sæti í undanúrslitunum. KR-ingar sjálfir hafa samt að- eins einu sinni komist upp úr átta liða úrslitum í þessi fjögur skipti en það var í fyrra þegar þeir töp- uðu fyrsta leik í DHL-Höllinni en unnu síðan tvo leiki í röð og fóru áfram. Kunnugleg staða hjá KR SKRÚFUDAGUR Komdu og taktu þátt í skemmtilegri dagskrá og kynntu þér það nám sem er í boði. NÁMSKYNNING Stúdentspróf Einka- og atvinnuflugmannspróf Vélstjórnar- skipstjórnarpróf Alþjóðleg réttindi DAGSKRÁ Véla-, siglinga- og flughermar Nemendur og kennarar að störfum við vélar og tæki Þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir björgun kl. 13:30 Turninn verður opinn gestum Ókeypis ferðir á milli Fjöltækniskólans og Flugskólans á Reykjavíkurflugvelli Dregið úr lukkupotti kl. 16:00. Tímar í flughermi og útsýnisflug yfir Reykjavík í verðlaun. Útsýnisflugið er strax að útdrætti loknum Kvenfélögin Hrönn og Keðjan selja kaffiveitingar gegn vægu gjaldi Allir velkomnir Opið hús í Fjöltækniskólanum við Háteigsveg í dag kl. 13:00 - 16:30. Lukkupottur, heppnir gestir 15 ára og eldri geta unnið útsýnisflug yfir Reykjavík og tíma í flughermi. Þyrla Landhelgisgæslunnar sýnir björgun kl. 13:30. HÁTEIGSVEGI 105 REYKJAVÍK SÍMI 522 3300 WWW.FTI.IS Nám í Fjöltækniskóla Íslands hentar m.a. þeim sem vilja ljúka stúdentsprófi af náttúrufræðibraut með véltækni,- raftækni,- skipstækni- eða einkaflugmannsprófi. Þeim sem vilja verða skipstjórar, flugmenn, vélstjórar, vélfræðingar hjá orkufyrirtækjum eða vilja undirbúa sig fyrir háskólanám á tæknisviði. Tvær af stærstu stoð- um Chelsea-liðsins, John Terry og Frank Lampard, eru í samn- ingaviðræðum við félagið þessa dagana. José Mourinho, stjóri Chelsea, segir að þeir eigi að vera áfram enda tilheyri þeir félaginu. „Það væri hreint frábært að hafa þá hér áfram og ég tala nú ekki um ef það er hægt til ársins 2010. Ég myndi elska að vera með þá áfram hjá mér. Þeir tilheyra Chelsea og eru hluti af sögu Chelsea. Þegar leikmenn sem eru svona sterkar stoðir innan félags- ins og eru svona samofnir sögu þess þá er alger óþarfi að gera breytingar,“ sagði Portúgalinn skemmtilegi sem staðfesti enn og aftur að hann ætlaði sér ekki að yfirgefa félagið - sama hvað sög- urnar um ósætti hans og Abram- ovich, eiganda Chelsea, væru há- værar. „Svona er bara fótboltinn. Það er alltaf eitthvað ef. Ég er búinn að endurtaka 50 sinnum á síð- ustu tíu dögum að ég vil vera áfram hjá Chelsea. Hvernig væri að menn færu að taka mark á því sem ég segi.“ Vill halda Terry og Lampard
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.