Fréttablaðið - 27.04.2007, Page 1
71%
35%36%
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
Fr
é
tt
a
b
la
ð
ið
M
b
l.
M
b
l.
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Gallup í mars 2007.
LESTUR MEÐAL 12-49 ÁRA
höfuðborgarsvæðið
Föstudagur
B
la
ð
ið
B
la
ð
ið
30
10
20
40
0
50
60
80
70
Dögg Hjaltalín, fjárfestatengill hjá Eimskipi,
var nýlega í Taílandi þar sem hún fór meðal
annars á matreiðslunámskeið.
Dögg og kærastinn hennar komu heim í síðustu viku
úr skipulagðri tólf daga ferð um T íl
vegum erl d
segist Dögg ætla að vera dugleg að elda taílenskan
mat. „Nú verður bara taílensk matarveisla einu sinni
í viku,“ segir hún og hlær. „Ég hef samt ekki prófað
að elda neitt annað en það sem ég eldaði á ná
inu en það var svo gott ðið
Helgartilboð
í Flash
20% afsláttur af kjólum
við buxur
stærðir 36-46
si
rk
us
27. apríl 2007
Gjafmildur Jón
Auðjöfurinn Jón Ólafs-son vann sex milljónir í spilavíti í Monte Carlo
og gaf allt til
munaðarleys-
ingjahælis í
Cannes.
Bls. 2
Elskar pils og hælaskó
Fréttakonan María Sigrún Hilmarsdóttir segir pils og hælaskó gera veröldina fallegri.Sirkus kíkti í fataskáp-inn hennar.
Bls. 6
Í STRÍÐI VIÐ SAMVISKUBITIÐ
SI
RK
US
M
YN
D
/V
AL
LI
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir púslar saman vinnu og fjölskyldu
Nýtt BS-nám í
hestafræðum
Hestasund
Byggir upp
vöðva og þol
BLS. 4
fákar og fólkFÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007
Eldar taílenskt
í hverri viku
www.xf.is
MILLJÓN KRÓNA FRÍTEKJU-
MARK FYRIR ALDRAÐA
Kærir leikstjóra Silvíu
Nætur fyrir meiðyrði
Fjármálafyrirtækin
Exista, Kaupþing og Straumur-
Burðarás skiluðu uppgjörum
fyrir fyrsta ársfjórðung í gær.
Fyrstnefnda félagið hagnað-
ist um 57,2 milljarða króna,
sem er það mesta sem sést
hefur á einum ársfjórðungi í
Kauphöll Íslands. Þetta
jafngildir því að Exista hafi
hagnast um 636 milljónir króna
á hverjum degi.
Kaupþing hagnaðist um 20,3
milljarða króna en Straumur-
Burðarás um sex milljarða.
Fleiri fyrirtæki birtu
afkomutölur í gær. Bakkavör
Group hagnaðist um 1,2
milljarða króna á fyrsta
ársfjórðungi og Mosaic
Fashions 1,4 milljarða fyrir
síðasta rekstrarár.
636 milljónir
króna á dag
Sigurjón Sighvatsson
framleiðir næstu kvikmynd írska
leikstjórans Jim Sheridan en kvik-
myndaframleiðandinn keypti
nýlega endurgerðarréttinn á
kvikmynd danska leikstjórans
Susanne Bier, Brödre. Sigurjón
segir í samtali við Fréttablaðið að
þótt leikstjórinn sé kominn um
borð geti tökur á myndinni
dregist eitthvað enda sé það vilji
allra sem að myndinni komi að
valinn maður sé í hverju rúmi.
Handritshöfundurinn David
Benioff hefur verið ráðinn til að
skrifa handritið en hann er
einhver launahæsti handrits-
höfundurinn í Hollywood.
Fjöldi stórleikara hefur lýst yfir
áhuga sínum á að leika í myndinni
og nægir þar að nefna Leonardo
DiCaprio og Reese Witherspoon
en Sigurjón segir þetta vissulega
einhverjum annmörkum háð.
„Margar af stærstu stjörnunum
eru oft bókaðar marga mánuði,
jafnvel ár, fram í tímann,“ segir
Sigurjón.
Witherspoon
og DiCaprio
Geir Haarde forsætis-
ráðherra segir óvíst hversu víð-
tækt varnarsamstarf Íslendinga
verði við Norðmenn og Dani. Því
sé erfitt að meta hugsanlegan
kostnað þess.
„Það liggur ekki fyrir. Okkar
kostnaður mun felast í því að taka
á móti fólki hér og flugvélum, sem
kallað er gistiríkiskostnaður,“
segir Geir. Ekki sé útséð hversu
oft hingað komi norrænir her-
menn, né hversu fjölmennar sveit-
irnar verði. Forsætisráðherra
tekur fram að ekki sé verið að
gefa út „óútfylltar ávísanir“.
Eingöngu er um samstarf á
friðartímum að ræða en ekki
eiginlega varnarsamvinnu. Geir
telur að samstarf af þessum toga
hafi verið tímabært, jafnvel þótt
bandaríski herinn hefði verið
áfram á landinu. Hann bendir á
hugsanlega olíuleit á Drekasvæð-
inu nálægt Jan Mayen sem dæmi
um það. „Þá geta menn rétt ímynd-
að sér hve mikilvægt það er að
hægt sé að hafa eftirlit.“ Geir
segir þessa nýju þróun til merkis
um það hve hugtakið um öryggi á
friðartímum sé breytilegt.
Enn víðtækara samstarf á sviði
varnar- og öryggismála Íslendinga
er í burðarliðnum. Geir segir
sendinefnd Þjóðverja væntanlega
um miðjan maí og vonast sé til að
viðræður við Breta geti hafist í
júní. Einnig standi til að ræða við
Kanadamenn um hugsanlegt sam-
starf. Geir segir til dæmis að
unnið verði að sameiginlegum
björgunarsamningi við Banda-
ríkjamenn, Breta og Kanada-
menn.
Aðstaða erlendra ríkja fyrir
hernað verður á svokölluðu
öryggissvæði í Keflavík, sem er
um átta ferkílómetrar að stærð.
Geir segir það svæði sérhannað
fyrir hernað, en Þróunarfélag
Keflavíkurflugvallar fari enn sem
fyrr með forræði meginhluta
fyrrum varnarsvæðisins.
Ekkert um kostnað
Forsætisráðherra segir óvíst hversu mikinn kostnað ríkið beri af varnarsam-
starfi við Norðmenn og Dani. Rætt verður við fleiri þjóðir um öryggis- og
varnarmál í sumar. Lítill hluti varnarsvæðisins fer undir hernaðarsamstarfið.
Fulltrúar frá Landsvirkjun og
Impregilo funduðu í gær með fulltrúum Heilbrigðis-
stofnunar Austurlands vegna veikindanna sem komið
hafa upp á Kárahnjúkum. Þorsteinn Njálsson, læknir
við Kárahnjúka, hefur sakað Impregilo um að taka
ófrjálsri hendi lista með nöfnum þeirra 180 einstakl-
inga sem hafa veikst.
Ómar R. Valdimarsson, upplýsingafulltrúi Impreg-
ilo, segir að tölur um veikindi vegna mengunar í
aðrennslisgöngum séu stórlega ýktar. Í tilkynningu
frá Landsvirkjun sem send var út eftir fundinn í gær
segir að í aðeins átta tilfellum geti verið um veikindi
vegna loftmengunar að ræða. Hins vegar hafi 180
starfsmenn leitað til heilsugæslunnar á tímabilinu.
Þorsteinn vill ekki viðurkenna að tölurnar séu
ýktar en bendir á að ævinlega sé erfitt að túlka gögn
af þessu tagi. Hann gagnrýnir einnig starfsmenn
Impregilo, sem hann segir hafa stolið listanum með
nöfnunum. „Það var maður á þeirra vegum sem
starfar á heilsugæslunni sem tekur þessar upplýs-
ingar ófrjálsri hendi,“ segir Þorsteinn, sem hefur
sent landlækni erindi vegna málsins.
Matthías Halldórsson landlæknir segir vissulega
alvarlegt að yfirmenn Impregilo hafi þessar upplýs-
ingar undir höndum. „Ég hef óskað eftir nánari
útlistun á þessu máli. Vinnuveitendur eiga alls ekki
að hafa þessar upplýsingar,“ segir Matthías. Hann
hefur einnig óskað eftir skýringum á því að ekki
barst erindi til sóttvarnarlæknis vegna veikindanna
á Kárahnjúkum en slíkt á að gera samkvæmt nýleg-
um breytingum á sóttvarnarlögum.
Deilt um fjölda sjúklinga