Fréttablaðið - 27.04.2007, Page 18

Fréttablaðið - 27.04.2007, Page 18
fréttir og fróðleikur Fréttablaðið sagði frá því á mánudag að um fjörtíu starfsmenn Impregilo sem vinna við gerð aðrennslis- göng Káranhjúkavirkjunar hefðu veikst eftir að hafa fengið mat og drykk í opnum ílátum. Á síðustu dögum hafa síðan bor- ist enn frekari fregnir af veikindum og óvistlegum aðstæðum í göngunum og á þriðjudag stöðvaði Vinnu- eftirlitið vinnu í göngunum til að starfsmenn þess gætu rannsakað aðstæður. Síðastliðinn föstudag voru fjöru- tíu starfsmenn sem vinna í aðrennslisgöngunum óvinnu- færir vegna niðurgangs og upp- kasta. Helga Hreinsdóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðis- eftirlits Austurlands, sagði í sam- tali við Fréttablaðið um liðna helgi að hreinlæti væri ábótavant í göngunum því starfsmenn gætu ekki þvegið sér áður en þeir borð- uðu, en þeir skammta sér sjálfir á pappadiska úr opnum ílátum. Þá væri salernisaðstaða þannig að ferðaklósett væri um 200 metrum frá þeim stað þar sem maturinn væri framreiddur. Portúgali sem starfaði við fram- kvæmdirnar og hafði samband við Fréttablaðið sagði meðferðina á starfsmönnunum ómanneskjulega og jaðra við mannvonsku. Hann lýsti aðstæðum starfs- manna í göngunum á þann veg að á fimmtudaginn í síðustu viku hefðu þeir verið djúpt niðri í jörðu í tólf tíma án þess að fá mat eða drykk til sín. Því hefðu þeir sleikt hellisveggina til að svala sárasta þorstanum. Þegar matarföng bár- ust loks hefðu mennirnir dýft könnum sínum í eplasafa sem var í opinni fötu án þess að hafa þveg- ið hendur sínar áður, þar sem hvorki salernis- né þvottaaðstaða væri fyrir hendi. Veikindin komu honum því ekki á óvart enda sagði hann menn hafa komið grátandi upp úr göngunum þennan dag. Á þriðjudag fóru svo fulltrúar Heilbrigðis- og Vinnueftirlits Austurlands á vettvang og í kjöl- farið var vinna í göngunum stöðvuð sökum loftmegnunar. Þorvaldur Hjarðar, aðstoðar- umdæmisstjóri Vinnueftirlitsins, sagði þá að öryggi starfsfólks í göngunum væri ógnað. Hann taldi snefilefni frá dísilknúnum vinnu- vélum líklegustu orsök loftmeng- unar, sem hafði valdið starfsmönn- um andþyngslum og sviða í hálsi. Impregilo sendi þá frá sér yfirlýs- ingu þar sem verktakinn harmaði veikindi starfsmanna sinna, en sagði vandamálið nýtilkomið. Breyttar eðlisfræðilegar aðstæður hefðu valdið því að mengun gæti farið yfir viðmiðunarmörk á afmörkuðum svæðum inni í göng- unum. Á miðvikudag sendi svo Þorsteinn Njálsson, yfirlæknir heilsugæslu- stöðvarinnar á Kárahnjúkum, Vinnueftirlitinu lista með nöfnum 180 manna sem hefðu veikst frá 10. apríl vegna mengunar í göng- unum. Hann sagði enn fremur að for- svarsmenn Impregilo hefðu vitað af veikindunum í tvær vikur. Var hann mjög ósáttur við að Impreg- ilo hefði ekki brugðist strax við þegar verktakanum var tilkynnt um að gera þyrfti úrbætur í aðrennslisgöngunum eftir að starfsmennirnir tóku að veikjast. Stór hluti mannanna sem höfðu veikst voru með bólgu í hálsi, nef- stíflur og einkenni um ennis- og kinnholubólgur en Þorsteinn sagði að þegar fram liðu stundir hafi ástandið versnað. „Á mánudaginn í síðustu viku [16. apríl] komu hérna mjög ungir menn með veru- leg miðtaugakerfiseinkenni út af eitrun,“ sagði Þorsteinn, en ein- kennin lýsa sér í ertingu á heila- taugum. Þau væru þó ekki varan- leg og hyrfu þegar eiturefnin skiluðu sér úr líkamanum. Þorsteinn sagði einn mann liggja á spítala í Póllandi vegna veikinda sinna. Ástæða þess að senda þurfti manninn þangað væri sú að starfsmenn væru hér á eigin tryggingum og rannsókn á mein- um mannsins hérlendis hefði verið honum afar dýr. Landsvirkjun hafði þó gefið vilyrði fyrir því að borgað yrði fyrir frekari rann- sóknir á veikindum starfs- mannanna. Fulltrúi Impregilo á Íslandi komst í gær yfir lista Þorsteins með nöfnum þeirra 180 starfsmanna sem höfðu veikst. Þorsteinn sagði að listanum hefði verið stolið. „Það er starfsmaður á stofunni hjá mér sem tekur þessar upplýs- ingar ófrjálsri hendi og færir yfir- mönnum þær,“ sagði Þorsteinn, sem sendi landlækni erindi í kjöl- farið. Landlæknir hefur óskað eftir nánari útlistun á málinu en segir að Impregilo beri að skila listun- um enda megi vinnuveitendur aldrei hafa slíkar upplýsingar undir höndum. Hann óskar einnig skýringa á því að ekki hafi borist tilkynning um veikindin á Kára- hnjúkum til sóttvarnarlæknis en samkvæmt nýjum lögum um sótt- varnir, sem samþykkt voru í lok síðasta þings, hefði átt að gera sóttvarnarlækni á Héraði grein fyrir hópsýkingunni. Fulltrúar heilbrigðisyfirvalda á Austurlandi, yfirmenn Impregilo og fulltrúar Landsvirkjunar fund- uðu um málið í gær. Ófremdarástand við Kárahnjúka Rekstrarvörur 1982–200725ára R V 62 31 Expertinn frá Dreumex – engin vettlingatök við óhreinindin Expert frá Dreumex Áhrifaríkt handþvottakrem Virkar vel á smurningu, hráolíu, bremsuvökva, sement og önnur óhreinindi. Fáanlegt í handhægum 2,7 ltr. brúsa með dælu. Örkorn í stað leysiefna Húðvænt og rakagefandi Kynningarverð 1.230 kr. Vaxandi spenna vegna framtíðar Kosovo Felur alltaf í sér ofbeldi

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.