Fréttablaðið - 27.04.2007, Síða 24

Fréttablaðið - 27.04.2007, Síða 24
[Hlutabréf] Kaupþing hagnaðist um 20.281 milljón króna á fyrstu þremur mán- uðum ársins samanborið við 19.593 milljónir króna á sama tíma í fyrra. Þetta er annar besti ársfjórðungur- inn í sögu fyrirtækisins. Afkoman er heldur fyrir ofan meðaltalsspá markaðsaðila. Glitnir og Lands- bankinn höfðu þó reiknað með hærri hagnaði. Hlutabréf bankans lækkuðu um 1,66 prósent. Arðsemi eigin fjár var 27,6 pró- sent á ársgrundvelli sem er vel yfir fimmtán prósenta langtímaarðsemis- markmiðum bankans. Hreiðar Már Sigurðsson, forstjóri Kaupþings, kveðst vera mjög ánægður með af- komu bankans sem var umfram áætlanir í upphafi árs þar sem horft var fram á fimmtungsarðsemi eigin fjár. „Okkur gengur vel á öllum meginmörkuðum. Það er vöxtur á Íslandi, í Bretlandi og í Lúxemborg og á flestum starfssviðum.“ Afkomubati í Bretlandi stendur upp úr, að mati Hreiðars Más, en sú samþættingarvinna sem þar hefur átt sér stað undanfarið eitt og hálft ár er byrjuð að skila sér í formi auk- inna tekna. Útlitið fyrir annan árs- fjórðung er gott. „Við teljum að við getum vaxið um þrjátíu prósent á þessu ári með innri vexti.“ Hreinar rekstrartekjur samstæð- unnar námu rúmum 44 milljörðum króna og hækkuðu um tæpan fjórð- ung á milli ára. Hreinar vaxtatekj- ur jukust um 55 prósent og voru 16.265 milljónir. Hreinar þóknunar- tekjur voru 12.337 milljónir, sem var 43 prósenta aukning, og gengishagn- aður dróst lítillega saman og nam 13.456 milljónum. Rekstrarkostnaður nam 17,7 milljörðum króna og hækkaði um 41 prósent á milli ára. „Við erum búin að ráða til okkar um fjögur hundr- uð manns frá ársbyrjun og í þess- um hópi er mikið af sérfræðingum. Þegar vel gengur þá hækkar launa- kostnaður,“ bendir Hreiðar Már á. Heildareignir Kaupþings námu 4.198 milljörðum króna í lok mars sem var 3,5 prósenta aukning í ís- lenskum krónum frá áramótum en um tíu prósent í evrum. Þetta er töluvert minni vöxtur en hingað til hefur sést. Þannig var útlánavöxt- ur lítill sem enginn, mælt í krónum, en hins vegar veruleg innlánsauk- ing. „Við erum mjög ánægð hvað við náum að auka innlán bankans mikið en þau jukust um 35 prósent á fyrsta ársfjórðungi.“ Kaupþing náði í tvo milljarða evra í ný innlán á fyrsta fjórðungi ársins, um 175 milljarða króna. Eigið fé bankans var 314 millj- arðar króna í lok mars og lækk- aði um tíu milljarða frá áramótum sökum arðgreiðslna og styrkingar krónunnar. Eiginfjárhlutfall (CAD) var 13,8 prósent samanborið við 15 prósent í árslok. Lausafjárstað- an er sterk,. „Við erum með nægt lausafé til að endurgreiða öll út- gefin skuldabréf til næstu þriggja ára.“ Afkoma Kaupþings, um 20,3 milljarðar króna, var í takt við væntingar. Hreinar vaxta- og þóknunartekjur vaxa hratt, sem og rekstrarkostnaður. Hreiðar Már Sigurðsson telur að bankinn geti vaxið um 30 prósent á árinu með innri vexti. Kaupþing heldur áfram að auka við hlut sinn í norska fjármála- fyrirtækinu Storebrand og á nú orðið átján prósent hlutafjár. Þetta segir Hreiðar Már Sigurðs- son í samtali við Fréttablaðið. Heildarvirði hlutarins nemur um 48,5 milljörðum króna. Stutt er síðan að norska fjár- málaeftirlitið heimilaði Kaupþingi að eignast allt að fimmtungshlut í Storebrand. „Við erum stöðugt að skoða tækifæri og helst á þessum mörk- uðum sem við erum að starfa á,“ segir Hreiðar Már. Bæta enn við sig í Storebrand í Noregi Hagnaður Straums-Burðaráss nam 69,16 milljónum evra á fyrsta fjórðungi ársins. Það jafngildir um sex milljörðum króna og er langt undir væntingum greining- ardeilda bankanna. Meðaltalsspá þeirra var á bilinu 100,4 til 119,2 milljónir evra. Á fyrsta fjórðungi ársins 2006 skilaði bankinn met- hagnaði upp á 217,51 milljón evra. Munurinn á spám og raunveru- leika skýrist meðal annars af lægri gengishagnaði en búist var við. Tíu milljóna evra tap varð af óskráðum eignum. Þá var 28,7 milljóna evra neikvæður gengis- munur af gjaldeyrisjöfnuði. Í Morgunkorni Glitnis segir að fjárfesta skorti upplýsingar til að átta sig á afkomu og verð- mæti félagsins. Friðrik Jóhanns- son, forstjóri Straums-Burðaráss, segir upplýsingagjöf bankans ekki ábótavant. „Það er alltaf erf- itt að reikna út yfir styttri tímabil hvernig fjárfestingar koma út,“ segir hann og bætir við að upp- gjörið hafi staðið undir vænting- um stjórnenda. „Það sem er mikil- vægast er að okkur gengur vel með að byggja upp eiginlega fjár- festingabankastarfsemi. Markmið okkar var að ná fimmtán prósenta arðsemi eigin fjár ofan á áhættu- lausa vexti. Arðsemi eigin fjár er 20 prósent. Þá erum við með góðan vöxt á öllum helstu tekju- sviðum okkar. Það undirstrikar hversu gott uppgjörið er.“ Hreinar þóknunartekjur námu 30,29 milljónum evra og jukust um tólf prósent miðað við árið 2006. Hreinar vaxtatekjur námu 11,16 milljónum evra. Heildareignir bankans námu 5.191,56 milljónum evra í marslok. Það er aukning um nítján prósent frá sama tímabili í fyrra. Eiginfjárhlutfall er 32,8 prósent. Bankinn birti nú uppgjör sitt í fyrsta sinn í evrum. Friðrik segir að strax megi merkja auk- inn áhuga erlendra fjárfesta. Nokkrir nýir hafi komið að bank- anum frá því að hafið var að gera upp í evrum um síðustu áramót. Meðal þeirra eru bandaríski fjár- festirinn James Leitner sem situr í stjórn bankans. Á kynningarfundi uppgjörsins í gær kom fram að skrifstofa yrði opnuð í Stokkhólmi á miðju ári. Fé- lagið verður eftir það með starfs- stöðvar í fimm borgum: Reykja- vík, Kaupmannahöfn, Amsterdam, London og Stokkhólmi. Straumur undir spám Peningaskápurinn ... rði. Sími: Áki: 8926723 & Kristján: 8960602 • www.spakongen.is Kanadískir gæða nuddpottar Sterkustu og sparneitnustu pottarnir í dag
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.