Fréttablaðið - 27.04.2007, Side 28

Fréttablaðið - 27.04.2007, Side 28
Vegna frétta- flutnings á síð- ustu misserum, m.a. í Frétta- blaðinu laugar- daginn 14. apríl, þykir mér rétt að koma á fram- færi upplýsingum um rekstur og umfang utanríkisþjónustunnar. Fjárveitingar til hinnar eiginlegu utanríkisþjónustu hafa undanfarin ár numið innan við 1% af heildar- útgjöldum í A-hluta fjárlaga ríkis- ins. Eftirfarandi tafla sýnir annars vegar framlög til utanríkisþjónust- unnar sem hlutfall af ríkisútgjöld- um í A-hluta fjár- og fjáraukalaga en hins vegar framlögin sem hlut- fall af vergri landsframleiðslu. Hér er aðeins talinn kostnaður vegna rekstrar og stofnkostnaðar sendiskrifstofa og aðalskrifstofu utanríkisráðuneytisins. Kostnaður vegna annarra þátta sem tilheyra utanríkisráðuneytinu, m.a. þróunar- mála, friðargæslu og undirstofnana ráðuneytisins á Keflavíkurflugvelli, er hér ekki meðtalinn. Sendiskrifstofur eru nú 30 í 24 löndum, og hafa 10 skrifstof- ur bæst við síðan árið 2004. Nýjar sendiskrifstofur hafa verið opnað- ar í Nýju Delhí, Róm (opnuð aftur eftir nokkurt hlé), Pretoríu (flutt frá Mapútó) og Þórshöfn en einn- ig eru 6 skrifstofur Þróunarsam- vinnustofnunar Íslands nú flokk- aðar sem sendiráð, þótt þar starfi einvörðungu starfsmenn ÞSSÍ og enginn kostnaður vegna þeirra falli á utanríkisþjónustuna. Skrifstofur Þróunarsamvinnustofnunar voru gerðar að sendiráðum til að styrkja stöðu þeirra en einnig til að efla net íslenskra sendiráða og auka þjón- ustu utanríkisþjónustunnar við al- menning og íslensk fyrirtæki. Utanríkisráðuneytið hefur því í raun stofnað þrjár nýjar sendiskrif- stofur á tímabilinu frá 2004, þ.e. í Róm, Nýju Delhi og í Færeyjum. Í sendiskrifstofum Íslands starfa 195 starfsmenn. Er þá talið útsent starfsfólk og staðarráðið, starfs- nemar, starfsfólk annarra ráðu- neyta og starfsfólk Þróunarsam- vinnustofnunar Íslands (þar starfa nú 40 starfsmenn). Árið 2004 störfuðu 140 starfsmenn í send- iskrifstofum Íslands. Ef starfs- menn ÞSSÍ eru frátaldir hefur starfsmannafjöldi í sendiskrifstof- um því aukist um 15 á tímabilinu. Á sama tíma hefur í hagræðingar- skyni verið fækkað í hópi útsendra starfsmanna. Staðarráðnir starfs- menn hafa verið ráðnir í þeirra stað, en kostnaður vegna þeirra er til muna lægri. Samanburður við utanríkis- þjónustur annarra ríkja sýnir að Íslendingar reka ekki aðeins fá sendiráð heldur eru þau hvert um sig töluvert fámennari en geng- ur og gerist meðal annarra ríkja. Þannig hefur sendiráð Íslands í London t.d. á að skipa 4 diplóm- atískum starfsmönnum (þ.m.t. sendiráðspresti) á meðan sendiráð Dana í London hefur 11, sendiráð Svíþjóðar 12, sendiráð Finnlands 8 og sendiráð Noregs 14. Við þennan samanburð er rétt að hafa í huga að umfang verkefna sendiráða endurspeglar ekki endilega mann- fjölda viðkomandi ríkis. Í því sam- hengi má t.d. nefna að fyrirspurn- ir um ferðamennsku til Íslands sem berast sendiráði okkar í Lond- on eru væntanlega lítið færri en fyrirspurnir sem berast um hlið- stæð málefni til sendiráða annarra Norðurlanda. Sama gildir um þátt- töku okkar í starfi alþjóðastofn- ana. Þar starfa ríki almennt á jafn- réttisgrundvelli og hafa því sömu skyldum að gegna gagnvart stofn- uninni óháð íbúafjölda. Þegar ofangreindar upplýsing- ar eru skoðaðar kann það koma á óvart hve lítil hækkun hefur í raun orðið á framlögum til utanríkis- þjónustunnar á tímabilinu 2001 til 2006. Á þessu tímabili voru opnað- ar sendiskrifstofur í Nýju Delhi og Róm og komið hafa til töluverðar almennar verðlags- og launahækk- anir. Hluti af skýringunni er að á tímabilinu 2001 til 2004 voru fjár- veitingar til utanríkisráðuneyt- isins lækkaðar um alls 705 m.kr. vegna hagræðingar í ríkisrekstri. Undanfarin ár hefur það verið fastur liður í fjárlagagerðinni að gerð er krafa um að hver og ein ríkisstofnun skuli hagræða í rekstri sinum sem nemur ákveðnu hlutfalli af rekstrarkostnaði. Þetta hefur verið liður í viðleitni ríkis- stjórnarinnar til að skila afgangi af ríkisrekstrinum, greiða niður skuldir ríkisins og draga úr um- svifum þess. Það er hins vegar mjög mis- munandi hvernig stofnanir eru í stakk búnar til að draga úr rekstr- arkostnaði. Hjá mörgum stofnun- um er stofnkostnaður stór hluti af ráðstöfunarfé stofnunar og við slíkar aðstæður er tiltölulega auð- velt að fresta fyrirhuguðum fram- kvæmdum og aðlaga reksturinn að lækkuðum fjárveitingum. Hjá öðrum stofnunum er launakostn- aður stærsti útgjaldaliðurinn og þegar þannig háttar til er erfið- leikum bundið að lækka rekstrar- kostnað án þess að draga úr starfs- mannafjölda. Utanríkisráðuneytið fór á tíma- bilinu 2001 til 2004 nokkuð fram úr heimildum fjárlaga, eða sem nemur 1-3% árlega. Helsta skýr- ingin á þessu er að ráðuneyt- ið hefur átt erfitt með að standa undir þeim kröfum sem fjármála- ráðuneytið hefur gert um sparn- að í rekstrinum. Uppsafnaður halli nam í lok ársins 2004 um 400 m.kr, sem hafði safnast upp á fjór- um árum. Á því tímabili var gerð krafa um lækkaðan rekstrarkostn- að utanríkisráðuneytisins um 705 m.kr. og fjárveitingar voru lækk- aðar um þá upphæð samanlagt frá árinu 2001. Staðreyndin er því sú að ráðuneytið jók ekki rekstrar- kostnað sinn á því tímabili (að und- anskildum nýjum verkefnum, sem veittar voru sérstakar fjárveiting- ar fyrir) heldur tókst að draga úr kostnaði um 300 m.kr. Ástæðurnar fyrir því að ráðuneytið náði ekki að hrinda í framkvæmd öllum þeim sparnaði sem gert var ráð fyrir eru í fyrsta lagi að samsetn- ing útgjalda ráðuneytisins er með þeim hætti að erfitt er að ná veru- legum árangri í lækkun kostnað- ar nema með því að leggja niður störf og að einhverju leyti þá starfsemi sem ráðuneytið stund- ar. Slíkt mun þó ekki hafa verið markmiðið með hagræðingar- kröfum ríkisstjórnarinnar heldur frekar að ítrasta aðhalds yrði gætt í núverandi rekstri. Þá er þess að gæta að ráðuneytið hefur árum saman hugað vel að öllum rekstr- arkostnaði sínum, sem þýðir að fá tækifæri finnast til að draga enn frekar úr kostnaði. Höfundur er skrifstofustjóri utanríkisráðuneytisins. Umfang og rekstur utanríkisþjónustunnar Ígrein Lúðvíks Bergvinsson-ar alþingismanns sem birtist í Fréttablaðinu 19. apríl sl., voru alvarlegar rangfærslur og mis- skilnings gætti. Það sama á við um viðtal við þingmanninn sem birtist í DV 23. apríl sl. Þessar rangfærslur og misskilning ber að leiðrétta. Alþingismaðurinn gerir að um- talsefni viðtal við Harald Johann- essen ríkislögreglustjóra, sem birtist í Morgunblaðinu 24. mars síðastliðinn. Í viðtalinu ræðir ríkislögreglustjóri um olíusam- ráðsmálið svokallaða. Alþing- ismaðurinn fullyrðir að málið „hafi farið forgörðum” í meðför- um starfsmanna embættis rík- islögreglustjóra. Þetta er fjarri lagi. Samkeppnisyfirvöld vöktu athygli embættisins á rannsókn sinni á olíufélögunum. Þá þegar benti embætti ríkislögreglustjóra á þá hættu að mál sem væru í rannsókn hjá Samkeppnisstofnun nýttust ekki sem sakamál meðal annars vegna réttarstöðu starfs- manna olíufélaganna sem sam- keppnisyfirvöld höfðu rætt við. Í umræddu Morgunblaðsviðtali segir ríkis- lögreglu- stjóri: „Við töldum að ef samkeppn- isyfirvöld hefðu kom- ist að þeirri niðurstöðu að um saka- mál væri að ræða, þá hefðu þau átt að hætta rannsókn mjög fljótlega eftir húsleitina í desember 2001 og beina mál- inu til ríkislögreglustjóra eða ríkissaksóknara til að koma í veg fyrir sakarspjöll.“ Meirihluti Hæstaréttar staðfesti lögfræði- legt álit embættisins og skoðun þess á rannsókninni. Þá les þingmaðurinn það út úr viðtalinu að rannsókn máls- ins hafi hafist vegna þrýstings frá alþingismönnum. Hvergi á það stoð og ekki var minnst á það í viðtalinu. Stjórnmálamenn höfðu engin áhrif á lögreglu eða ákæruvald í þessu máli frekar en öðrum. Ríkissaksóknari er æðsti handhafi ákæruvalds, sbr. 2. mgr. 25. gr. laga um meðferð opin- berra mála nr. 19/1991. Sem æðsti handhafi ákæruvalds getur ríkis- saksóknari kveðið á um rannsókn máls, mælt fyrir um framkvæmd hennar, m.a. gagnaöflun og fylgst með henni, sbr. 5. mgr. 27. gr. lag- anna. Það gerði ríkissaksóknari í þessu máli með því að fela ríkis- lögreglustjóra að afla gagna hjá Samkeppnisstofnun í því skyni að taka ákvörðun um hvort hefja bæri opinbera rannsókn á ætluð- um refsiverðum brotum olíufé- laganna og starfsmanna þeirra. Einnig tekur þingmaðurinn fram að sjálfstætt og faglegt ákæru- og lögregluvald sé horn- steinn „refsivörslukerfisins“ og spyr hvernig á því hafi stað- ið að rannsókn á olíumálinu hafi tekið fjögur ár. Hér á þingmaður- inn væntanlega við réttarvörslu- kerfið. Rannsókn olíumálsins tók tíma enda málið mjög viðamik- ið og lögfræðilega flókið. Hafa skal í huga að eitt af grundvall- aratriðum sjálfstæðs og faglegs ákæru- og lögregluvalds er að fullrannsaka mál og ganga með hlutlægum hætti úr skugga um hvort eðlilegt og rétt sé að gefa út ákæru í málum. Það var gert í þessu máli og ákæra gefin út af ríkissaksóknara en lögreglurann- sóknin tók rúm tvö ár. Höfundur er yfirmaður stjórn- sýslusviðs ríkislögreglustjóra. Athugasemd frá embætti ríkislögreglustjóra -þjónusta í fyrirrúmi Nú á þremur stöðum Álfelgur í miklu úrvali frá viðurkenndum framleiðendum Hjallahrauni 4 Hfj. 565 2121 Dugguvogi 10 568 2020 Skeifunni 5 568 2025 Verð frá aðeinskr. 99.900,-TILBOÐ!Fjórar 17” ENZOR álfelgurmeð 225/45R17 dekkjum*,undirkomið með öllu* Sonar dekk eða sambærileg. Pitstop – góð vara, frábært verð og framúrskarandi þjónusta.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.