Fréttablaðið - 27.04.2007, Page 43
FÖSTUDAGUR 27. APRÍL 2007 3fákar og fólk fréttablaðið
Siv Friðleifsdóttir, heilbrigðis- og
tryggingamálaráðherra, undirrit-
aði nýlega reglugerð sem felur í
sér að framvegis mun Trygginga-
stofnun ríkisins taka þátt í kostn-
aði við nauðsynlega sjúkraþjálf-
un á hestbaki fyrir einstaklinga
sem eru með skaða í miðtauga-
kerfi.
Undanfarið hefur verið gerð
tilraun með að nota hesta við
sjúkraþjálfun fatlaðra barna og
hefur hún gefið góða raun. Þrátt
fyrir það hefur þetta úrræði ekki
fengið almenna viðurkenningu
hér á landi fyrr.
Sjúkraþjálfun á hest-
baki viðurkennd
Sjúkraþjálfun fatlaðra á hest-
baki hefur gefið góða raun.
FORSÍÐAN á blaðinu er
eftir breska ljósmyndarann
Tim Flach. Myndina tók hann
þegar hann var staddur hér á
landi síðasta sumar en Flach
sérhæfir sig í ljósmyndun dýra
og vinnur nú að ljósmynda-
bók um hestategundir um
allan heim.
STÓRSÝNING
Í VÍÐIDAL Stórsýning
hestamanna fer fram 5. maí
í Reiðhöllinni Víðidal. Þar ber
marga fallega gæðinga fyrir
augu. Eftir sýninguna verður
slegið upp balli í félagsheim-
ili Fáks þar sem hljómsveitin
Hunang leikur fyrir dansi.
FAGUR FOLI Þessa fal-
legu mynd tók ljósmyndari
Fréttablaðsins, Vilhelm Gunn-
arsson, þegar hann var stadd-
ur í Víðidal í vikunni. Myndin er
af stóðhestinum Svaka frá Mið-
sitju sem var í fremstu röð í
kynbótadómi á landsmóti síð-
asta sumar. Hann er nú í þjálf-
un hjá Sigurði V. Matthíassyni
sem stefnir með hann í keppni
og kynbótadóm í vor og sumar.
KNAPAMERKIN eru stigskipt, bóklegt og verklegt kennslu-
efni sem henta fyrir hinn almenna hestamann og hafa verið samin
með það fyrir augum að þau henti breiðum hópi nemenda. Allir ald-
urshópar frá 12 ára aldri geta nýtt sér námsefnið og tekið próf í því í
samvinnu við reiðkennara. Námsefni Knapamerkjanna fjallar stig af
stigi um grunnatriði í hestamennskunni.
Mikil alúð hefur verið lögð í hönnun Knapamerkjanna og að
námsefnið sé notendavænt, markmið þess skýr og að
það sé auðvelt og aðgengilegt til notkunar.
Á vefsíðunni www.holar.is/knapamerki
er hægt að kynna sér námsefnið, próf,
námsmat og markmið. Námsefnið er
gefið út af Háskólanum á Hólum og
Helga Thoroddsen er höfundur.