Fréttablaðið - 31.05.2007, Page 8
„Þarna gætir mis-
skilnings því það er alveg ljóst að
rekstur Strætó hefur tekið stökk-
breytingu nánast frá þeim degi
sem núverandi stjórn tók til starfa
eftir sveitarstjórnarkosningar í
fyrra,” segir Ármann Kr. Ólafs-
son, stjórnarformaður Strætó bs.,
um gagnrýni á rekstur fyrirtækis-
ins frá Gunnari I. Birgissyni,
bæjarstjóra í Kópavogi, og Jón-
mundi Guðmarssyni, bæjarstjóra
á Seltjarnarnesi.
Í Fréttablaðinu í gær var haft
eftir Jónmundi Guðmarssyni að
illa væri haldið á stjórn Strætó og
Gunnar I. Birgisson sagðist hafa
lagt til á stjórnarfundi Samtaka
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæð-
inu (SSH) að minni sveitarfélögin
tæku sig saman um rekstur stræt-
ólínu sem næði frá Reykjavík til
Hafnarfjarðar. Hið sameiginlega
Strætó bs. yrði þá lagt niður. Auk
þess að vera formaður stjórnar
Strætó er Ármann forseti bæjar-
stjórnar í Kópavogi. Hann segir
samstarfið innan stjórnar Strætó
hafa verið mjög gott og þess vegna
komi honum deilur um Strætó á
vettvangi stjórnar SSH á óvart.
Ármann segir aðgerðir stjórnar
Strætó hafa leitt til þess að rekst-
urinn hafi verið nánast á sléttu á
síðari hluta ársins. Allt bendi til
þess að tölur fyrir fyrstu fjóra
mánuði þessa árs muni sýna að
rekstraráætlanir standist nær
fullkomlega. Í fyrra hafi hins
vegar verið nítján prósent halli á
rekstrinum á fyrstu fjórum mán-
uðunum miðað við áætlanir. „Menn
munu sjá að það hefur verið lyft
Grettistaki varðandi reksturinn,”
segir hann.
Að sögn Ármanns gætir einnig
misskilnings varðandi þá ákvörð-
un Reykjavíkurborgar að gefa
hópi námsmanna frítt í strætó.
„Það er ekkert í samkomulagi
byggðasamlagsins sem bannar
einu sveitarfélaginu að vera með
sértækar aðgerðir innan síns
sveitarfélags,“ segir Ármann.
„Þótt það geti verið erfitt pólit-
ískt er í sjálfu sér ekkert flókið
við það að láta alla náms-
menn í Reykjavík fá sér-
stök skírteini sem gilda
fram á næsta vor. Það
fellur enginn aukakostn-
aður á Strætó vegna
þess, því Reykjavíkur-
borg ætlar að borga fyrir
það, rétt eins og Hafnar-
fjarðarbær ber kostnað-
inn af því að gefa sínum
eldri borgurum frítt í
Strætó.”
Þá segir Ármann það
rétt hjá Jónmundi Guð-
marssyni að kostnaður Seltjarnar-
ness hafi hækkað mikið. Samt
sem áður sé Seltjarnarnes að
borga minnst allra sveitarfélaga
á hvern íbúa: „Skýringin á því að
þeir voru langlægstir er sú að
Reykjavíkurborg greiddi niður
kostnað Seltjarnarnesbæjar
þegar þeir fóru inn í byggðasam-
lagið.“
Höfum lyft grettistaki
segir stjórnarformaður
Stjórnarformaður Strætó segir ekki rétt hjá bæjarstjórum Seltjarnarness og
Kópavogs að óstjórn sé á fyrirtækinu. Þvert á móti hafi verið lyft grettistaki í
rekstrinum eins og tölur sem birtar verða fljótlega muni sýna.
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/H
S
K
3
78
18
0
5/
07
VIÐSKIPTA- OG
HAGFRÆÐIDEILD
www.hi.is
BS NÁM Í VIÐSKIPTAFRÆÐI
Viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands
býður upp á hagnýtt og framsækið BS nám
í viðskiptafræði.
Fjórar námsleiðir:
Fjármál
Markaðsfræði og alþjóðaviðskipti
Reikningshald
Stjórnun og forysta
Nemendur geta nýtt sér fjölbreytileika HÍ og tekið
valnámskeið m.a. í tungumálum, lögfræði, sagnfræði,
tölvunarfræði eða stjórnmálafræði.
Námið er góður undirbúningur fyrir fjölbreytt störf
í atvinnulífinu og framhaldsnám í viðskiptafræði eða
skyldum greinum.
Framúrskarandi aðstaða verður tekin til notkunar
fyrir nemendur deildarinnar í haust.
Umsóknarfrestur til 5. júní.
Árleg skráningargjöld: 45.000 krónur.
Nánari upplýsingar á vidskipti.hi.is
Skynsöm leið til að hætta því þú hættir á eigin hraða.
NicoBloc hindrar allt að 99% af nikótíni og tjöru í filternum.
Þú venur þig af nikótíni áður en þú drepur í.
VÉLASVIÐ | Klettagörðum 8-10 | 104 Reykjavík | Sími 590 5100 |www.hekla.is/velasvid
HEKLA er umboðsaðili Perkins á Íslandi
Veldu aðeins viðurkennda varahluti
Sveinn Andri Sveins-
son hæstaréttarlögmaður verður í
dag skipaður ræðismaður Indón-
esíu hér á landi. Indónesía er fjöl-
mennasta ríkið sem ekki hefur
haft ræðismann hér á landi til
þessa.
Sveinn Andri segir þetta vera
mikinn heiður og vonast til þess að
geta hjálpað til við að styrkja sam-
band Íslands og Indónesíu. „Það
eru miklir möguleikar fyrir ýmis
íslensk fyrirtæki og fjárfesta í
Indónesíu, ekki síst á sviði orku-
mála, en Indónesía er mjög rík af
jarðvarma og sérfræðiþekking á
því sviði er óvíða meiri en hér á
landi. Ég lít svo á að ég geti lagt lóð
á vogarskálarnar til þess greiða
fyrir jákvæðum samskiptum á
þessum sviðum, sem og öðrum.“
Ólafur Egilsson, fyrrverandi
sendiherra, leitaði til Sveins Andra
fyrir nokkru síðan en nokkurn
tíma hefur tekið að ganga frá skip-
uninni. Sveinn Andri hefur unnið
lögmannsstörf fyrir fólk sem
kemur frá ýmsum nágrannaríkj-
um Indónesíu í Asíu, og þekkir vel
aðstæður fólks frá þessum heims-
hluta sem býr hérlendis.
Sveinn Andri skipaður ræðis-
maður Indónesíu hér á landi
Að loknum fundi með utanríkisráð-
herrum G8-ríkjanna ákváðu utanríkisráðherrar
Afganistans og Pakistans að efla samvinnu milli
ríkisstjórna landanna tveggja.
Rangin Radfar Danta, utanríkisráðherra Afgani-
stans, og Khursid Kasuri, utanríkisráðherra
Pakistans, sendu frá sér sameiginlega yfirlýsingu
þar sem þeir sögðust ítreka vilja ríkisstjórna beggja
landanna til þess að styrkja samvinnu og samskipti
„á öllum sviðum, en sérstaklega þó á sviði öryggis-
mála, málefna flóttamanna, efnahagsþróunar og
aukinna samskipta milli þjóða“.
Fundurinn var haldinn í Potsdam skammt fyrir
sunnan Berlín og var öryggisgæsla gífurlega mikil.
Svartklæddar leyniskyttur gættu dyra ráðstefnu-
hússins og þyrlur sveimuðu fyrir ofan.
Leiðtogafundur G8-ríkjanna, sem er hópur
stærstu iðnríkja heims, verður haldinn í Heiligen-
damm í Þýskalandi dagana 6. til 8. júní næstkom-
andi. Utanríkisráðherrafundurinn er einn af
mörgum ráðherrafundum G8-hópsins sem haldnir
hafa verið til undirbúnings leiðtogafundinum.
Auk þess að ræða við utanríkisráðherra Afgani-
stans og Pakistans eru meðal annars málefni Kosovo
til umræðu á fundi utanríkisráðherranna, sem hafa
átt erfitt með að fá Rússa til að fallast á hugmyndir
Sameinuðu þjóðanna um framtíð héraðsins.
Ætla að vinna meira saman