Fréttablaðið - 31.05.2007, Side 24
hagur heimilanna
Pressar vítamínsprengju á morgnana Alma Dröfn Geirdal, framkvæmda-
stjóri Forma, á sjálfvirka rykmoppu og
þarf því ekki að moppa gólfin sjálf.
Verðmerkingar á ýmsum vörutegundum
í verslunum Byko gefa til kynna að þær
séu á tilboði þótt enginn afsláttur sé í boði.
Ekki er ætlunin að blekkja neytendur og
merkingunum verður breytt, segir inn-
kaupastjóri Byko.
Verðmerkingar á mörgum vörutegundum í verslun-
um Byko gefa til kynna að vörurnar séu á tilboði þótt
þær séu það ekki, með þeim afleiðingum að neytend-
ur fá ekki afslátt sem þeir telja sig eiga rétt á. For-
svarsmenn Byko viðurkenna að þetta sé gagnrýni-
vert og ætla að breyta því eftir fyrirspurn
Fréttablaðsins.
Ákveðnir vöruflokkar hafa um langt árabil verið
merktir með stöfunum TB á verðmiða í verslunum
Byko, til dæmis svo til öll rafmagnsheimilistæki,
parket og ýmis rafmagnsverkfæri. Starfsmenn versl-
ana Byko hafa upplýst að stafirnir séu skammstöfun
fyrir orðið „tilboð“ og vörurnar því í raun á tilboði í
verslununum.
Allir viðskiptavinir Byko geta fengið viðskiptakort
sem gefur 10 prósent afslátt af vörum öðrum en til-
boðsvörum, eins og fram kemur á vef Byko. Þegar
þessir neytendur kaupa vörur sem eru TB-merktar
fá þeir ekki afslátt af vörunum þó ekki komi skýrt
fram að þær séu á tilboði.
„Mér finnst þetta
alveg út úr kortinu,“
segir Hildigunnur
Hafsteinsdóttir,
stjórnandi leiðbein-
ingar- og kvörtunar-
þjónustu Neytenda-
samtakanna. „Það
gilda lög um þetta
[...] þegar eitthvað
er auglýst á útsölu
þýðir ekki að koma með eitthvert verð og segja að
það sé tilboð, eða þetta sé útsala. Þarna er verið að
gabba neytendur, ef eitthvað er sett á útsölu á neyt-
andinn alltaf rétt á því að sjá upprunalegt verð og
útsalan, tilboðið eða afslátturinn reiknast af því
verði.“
Pétur Andrésson, innkaupastjóri Byko, segir TB-
merkingarnar hafa komist þannig á að upphaflega
hafi einungis tilboðsvörur verið merktar með TB,
svo kassastarfsmenn áttuðu sig á því að ekki ætti að
veita afslátt. Mál hafi svo þróast þannig að TB hafi
einnig verið notað á vöruflokka sem séu þess eðlis að
ekki sé hægt að veita af þeim afslátt. Ekki hafi verið
ætlunin að blekkja neytendur. Alls séu á bilinu 13 til
15 prósent af veltu Byko vegna TB-vara.
Til hefur staðið í nokkurn tíma að breyta þessum
merkingum og þar með skilmálum viðskiptakortsins,
segir Pétur. Fyrirspurn Fréttablaðsins verði til þess
að þær breytingar verði kláraðar. Vörur á tíma-
bundnu tilboði verði eftir sem áður merktar TB. Til
viðbótar komi ný merking, EA, sem standi fyrir „ekki
afsláttur“. Jafnframt verði þess getið þegar við-
skiptavinir fái afsláttarkjör að þau gildi ekki á vörum
sem merktar eru með EA.
Vörur tilboðsmerktar
en eru ekki á tilboði
Verð á hádegismáltíð í mötuneyt-
um grunnskóla er afar misjafnt
eftir skólum. Neytendastofa kann-
aði á dögunum verð á skólamáltíð-
um í kjölfar lækkunar virðisauka-
skatts 1. mars síðastliðinn. Dýrasti
hádegisverðurinn er í Grunnskól-
anum í Stykkishólmi en þar kostar
maturinn 417 kr. Ódýrasta máltíð-
in er í mötuneyti Grunnskólans á
Hellu en þar kostar máltíðin
aðeins 140 kr.
Könnunin tók til 124 skóla í 39
sveitarfélögum. Í 38 skólum
greiða nemendur aðeins fyrir
hráefnið. Í 79 skólum greiða þeir
einnig hluta rekstrarkostnaðar
og í fjórum skólum greiða nem-
endur allan kostnað við
skólamötuneytið, þar með talið
laun, rekstur og viðhald. Aðeins
tveir skólar, Grunnskóli Skaga-
strandar og Stóru-Vogaskóli í
Vatnsleysustrandarhreppi, bjóða
upp á ókeypis skólamáltíðir.
Könnunin leiðir í ljós að algengt
er að skilmálar séu óljósir um
skiptingu milli hráefniskostnaðar
og annars kostnaðar. Neytenda-
stofa hvetur forsvarsmenn mötu-
neytanna til þess að hafa skýra
skilmála um kostnaðarskiptingu
og verðmyndun máltíða.
Ekkert mat var lagt á gæði mál-
tíðanna í könnuninni.