Fréttablaðið - 31.05.2007, Side 27
FL Group hefur selt alla
hluti sína, 10,76 prósent, í
danska raftækjaframleið-
andanum Bang & Olufsen
fyrir 10,2 milljarða króna.
Tap FL Group á fjárfesting-
unni nemur um 100 milljón-
um króna.
FL Group kom inn í hlutahafahóp
Bang & Olufsen í febrúar í fyrra
með kaupum á 8,2 prósenta hlut
fyrir 7,5 milljarða króna. Það bætti
fljótlega við sig og jók hann smám
saman í 10,76 prósent.
Afkoma Bang og Olufsen hefur
verið undir væntingum og hefur
gengi bréfa í félaginu lækkað um
sjö prósent frá því FL Group kom
inn í hluthafahópinn í fyrra.
Kristján Kristjánsson, upplýs-
ingafulltrúi FL Group, segir ljóst að
félagið hafi ekki hagnast á kaupun-
um. Megi vænta betri ávöxtunar á
öðrum vettvangi og hafi því verið
ákveðið að selja bréfin til hóps
danskra og alþjóðlegra stofnana-
fjárfesta.
Að sögn Kristjáns er ætlunin að
setja söluandvirði bréfanna í verk-
efni þar sem peningarnir vinni
betur fyrir sér en hjá Bang & Oluf-
sen. „Svo þurfum við alltaf á því að
halda að geta fært pening úr einu
verkefni í annað og leitum allt-
af eftir eins góðri ávöxtun og við
getum fengið,“ segir hann og bætir
við að FL Group sé ætíð að skoða ný
verkefni. Slíkt krefjist fjármagns.
Danska blaðið Börsen greindi
frá því í gærmorgun að FL Group
hefði tapað jafnvirði um 670 millj-
óna íslenskra króna á viðskiptun-
um. Kristján segir svo ekki vera.
Hafi blaðið ekki tekið tillit til arð-
greiðslna og mismunandi gengis á
bréfum í Bang & Olufsen við kaup
FL Group og því hafi verið farið
fram á að Börsen leiðrétti skrif sín.
Kristján sagði það engu að síður
rétt að FL Group hefði tapað á fjár-
festingunni. Fjárhæðin væri hins
vegar mun lægri, um 100 milljónir
íslenskra króna.
Það er auðvelt að finna ljúffengt,
fitulétt SS álegg í verslunum því
umbúðirnar eru nú sérstaklega
auðkenndar á áberandi hátt með
áletruninni LÉTT ÁLEGG.
Tegundirnar eru mun fleiri en hér
eru sýndar og þeim á eftir að fjölga
enn frekar. Líttu eftir ljúffenga SS
létt álegginu í næstu verslun – og
taktu lífinu létt.
Kjúklingaálegg
Sumir vilja bara þetta
álegg og ekkert annað.
Það er ástæða fyrir því!
Skinka
Möguleikarnir eru
endalausir. Prófaðu
eitthvað nýtt daglega.
Létt og gott
– ný létt áleggslína í SS fjallahringinn
www.ss.is
Bakkavör mótmælir
einhliða fréttaflutn-
ingi Guardian og sakar
fulltrúa verkalýðsfélaga
um ófrægingarherferð.
Bresku verkalýðssamtök-
in GMB saka Bakkavör,
einn helsta birgi Tesco,
um að taka framleiðslu
fyrir stórmarkaði fram
yfir velferð verkafólks.
Fulltrúar á vegum bresku stórversl-
anakeðjunnar Tesco könnuðu fyrir-
varalaust aðbúnað í einni af verk-
smiðjum Katsouris, dótturfélags
Bakkavarar Group, í fyrradag. Fyrr
um daginn höfðu GMB, ein stærstu
verkalýðssamtök Bretlandseyja,
mótmælt, fyrir utan höfuðstöðv-
ar Tesco í Chestnut, afskiptaleysi
Tesco af aðbúnaði verkafólks í
þremur verksmiðjum Katsouris.
Í frétt Guardian bera verkalýðs-
forkólfar stjórnendur Bakkavarar
þungum sökum: þeir taki viðskipta-
sambönd við stórmarkaði fram fyrir
lagalega skyldu að búa vel að heilsu
og öryggi starfsmanna sinna. Fé-
lagsmenn hafi slasast illa við störf
sín í verksmiðjunum.
Hildur Árnadóttir, fjármála-
stjóri Bakkavarar, segir að GMB
hafi verið í fjölmiðlastríði gagn-
vart Bakkavör á undanförnum mán-
uðum sem megi rekja til árangurs-
lausra tilrauna verkalýðsfélagsins
að hafa starfsmenn Katsouris innan
sinna vébanda. Starfsmenn hafa val
um slíkt og hafi kosið að standa utan
félagsins og hefur fyrirtækið stutt
ákvörðun starfsmanna. Hún telur
umfjöllun Guardian vera einhliða
og segir ásakanir ekki eiga við rök
að styðjast, enda hafi ekkert verið
gert til að leita eftir svörum frá
Bakkavör. „Það er reglulegt eftirlit
haft af hálfu fyrirtækisins og utan-
aðkomandi aðila, svo sem viðskipta-
vina og opinberra aðila,“ segir hún
um heimsókn Tesco sem sé reglu-
bundnu gæðaeftirliti.
Katsouris, sem er einn af megin-
birgjum Tesco, ákvað að inn-
kalla 500 þúsund dósir af ídýfum í
varúðarskyni eftir að salmonella
fannst í framleiðslunni fyrir um
tveimur mánuðum. Hildur segir að
athugun Tesco og innköllunin séu al-
gjörlega ótengd mál. „Orsökin fyrir
innkölluninni lá í aðkeyptu hráefni
sem við gátum lítið að gert.“
Í tilkynningu frá Tesco, sem
Guardian birtir, kemur fram að fé-
lagið skoði aðstæður hjá framleið-
endum sínum, ýmist með því að
boða komur sínar eða fyrirvara-
laust. Komið hafi í ljós við skoðun
hjá Katsouris að ýmislegt hafi mátt
betur fara og muni fyrirtækið vinna
með framleiðenda í að bæta þau at-
riði. Forsvarsmenn GMB fullyrða
að Tesco hafi fundið við athugun
sína 34 atriði sem brjóti í bága við
öryggis- og heilbrigðisreglugerðir.
Hildur segir þarna um misskilning
Guardian að ræða, þarna hafi ekki
um heilbrigðis- og öryggisatriði
að ræða heldur reglubundið fram-
leiðslueftirlit.
Spurð hvort viðskiptasamband
Tesco og Bakkavarar kunni að vera í
hættu segir hún að ekkert gefi tilefni
til þess. „Það er eðilegt í úttekt sem
þessari að það sé eitthvað rými fyrir
að gera betur.“