Fréttablaðið - 31.05.2007, Side 40
31. MAÍ 2007 FIMMTUDAGUR4 fréttablaðið sjómannslíf
Siglingafyrirtækið Sæferðir stendur
fyrir skemmtiferðum frá Stykkishólmi,
þar sem fjölbreytilegt fuglalíf og berg-
myndanir eru meðal annars skoðaðar,
farið á söguslóðir og boðið upp á góð-
gæti úr sjónum.
„Við siglum fyrst frá höfninni í Stykkishólmi
að eyjunum og skoðum sérstæðar berg-
myndanir og fuglabjörg. Það er með ólík-
indum hversu nálægt maður kemst fuglun-
um. Þeir eru eiginlega farnir að njóta allrar
athyglinnar og láta bara eins og kvikmynda-
stjörnur,“ segir Svanborg Siggeirsdóttir,
einn eigenda og annar stofnandi Sæferða.
Þegar ferðamenn hafa fengið nægju sína af
fuglalífi og bergi er viðkoma höfð á svæði
þar sem Eiríkur rauði lagði af stað til Græn-
lands og siglt um sterka strauma í kringum
eyjarnar. Að svo búnu er skelsköfunni varp-
að út fyrir og krabbar, kuðungar, krossfiskar,
hörpuskeljar, ígulker og annað lostæti veitt
upp af sjávarbotni. Svanborg segir hvítvín
fáanlegt með, en ákveðið var að bjóða upp á
það í kjölfar fjölda áskorana frá frönskum
ferðamönnum, sem þykir hvítvínið ómiss-
andi þáttur með þessum krásum.
Að sögn Svanborgar finnst flestum
sjávarfangið gott, þótt einstaka gestum
klígji við því, og engu líkara en fólk komist
nálægt frummanninum í sjálfum sér þegar
það gramsar í góðgætinu. Undirritaður
getur tekið heilshugar undir þá fullyrðingu,
þar sem hann bragðaði á ígulkerahrognum á
siglingu með Sæferðum um daginn og upp-
lifði sig sem ótrúlega hetju fyrir vikið. „Já,
það eru ekki margir sem hætta sér í þau og
halda sig bara við skelfiskinn,“ segir Svan-
borg minnug atviksins og hlær.
Auk matarveislu ofan á þilfari er Baldur
búinn veitingahúsi, sem rúmar allt að hundr-
að manns. Ef marka má Svanborgu er þar
ekki aðeins hægt að fá góðan mat, heldur rifja
upp gamla danstakta þar sem fínasta dans-
gólf er fyrir miðjum veislusal. „Svo stönd-
um við fyrir alls kyns óvæntum uppákomum
um borð,“ bætir hún við. „Aðallega í tengsl-
um við óvissu-, vinnu- og hvataferðir fyrir-
tækja og hópa, sem verða sífellt vinsælli,
ásamt öðrum sérsniðnum ferðum.“
Svanborg hikar sjálf ekki við að taka þátt
í sprellinu, eins og blaðamaður varð vitni
að, þegar hún birtist ferðalöngunum að
óvörum uppáklædd sem grýla og var ekki
laust við að mönnum brygði heldur betur
í brún við að sjá þessa ógnvænlegu veru
standandi inni í miðjum matsal. „Það var nú
tilfallandi,“ segir hún, þegar hún er minnt á
það og hlær. „Annars gerir maður nú ýmis-
legt til að verða við séróskum hvers og eins,
enda aðalatriðið að gera siglinguna sem
eftirminnilegasta í alla staði.“
roald@frettabladid.is
Á syngjandi siglingu
Hápunktur ferðarinnar er þegar skelsköfu er varpað fyrir borð og alls kyns góðgæti veitt af sjávarbotni.
Sjávarfangið er síðan borið fram með hvítvíni, fyrir þá sem panta sér það sérstaklega. Nánari upplýsingar
um Sæferðir á www.seatours.is.
Svanborg og dóttir hennar, Lára Hrönn Pétursdóttur, sem er skipstjóri á Særúnu og Brimrúnu en fjölskyld-
an er mestöll viðloðandi sjómennsku. Þess má geta að Lára tekur einstaka sinnum lagið liggi sá gállinn á
henni. FRÉTTABLAÐIÐ/ROALD
HRAFNISTUMENN
Árið 1939 efndi sjómanna-
dagsráð til samkeppni um
ljóð og lag fyrir sjómanna-
daginn. Magnús Stefáns-
son hlaut verðlaun fyrir ljóð
sitt „Hrafnistumenn“ við lag
eftir Emil Thoroddsen. Það
er nú einkennissöngur sjó-
mannadagsins.
Íslands Hrafnistumenn
lifðu tímamót tvenn
þó að töf yrði á framsóknarleið.
Eftir súðbyrðings för
kom hinn seglprúði knörr
eftir seglskipið vélknúin skeið.
En þótt tækjum sé breytt
þá er eðlið samt eitt
eins og ætlunarverkið er
sjómannsins beið.
Fjöltækniskóli Íslands
býður upp á menntun
fyrir sjómenn og verð-
andi sjómenn frá
þremur sviðum skól-
ans; vélstjórnarsviði,
skipstjórnarsviði og
sjávarútvegssviði.
Á vélstjórnarsviði er
kennd vélstjórn og vél-
fræði frá fyrsta stigi
réttinda upp í það fjórða
og fá nemendur stigvaxandi rétt-
indi til starfa eftir því sem á námið
líður. Þannig geta nemendur hætt
eftir tiltekinn áfanga og farið út í
atvinnulífið með þau réttindi sem
þeir hafa lokið.
Vélstjórar og vélfræðingar
starfa ekki aðeins á sjó, heldur
er slík menntun nýtileg til fjöl-
margra starfa í landi.
Á skipstjórnarsviði er kennd
skipstjórn allt frá þrjátíu rúm-
lestum og upp í varðskipadeild en
eins og á Vélstjórnar-
sviðinu fá nemendur
aukin réttindi við
hvern áfanga náms-
ins. Skipstjórnarmenn
starfa í raun sem
framkvæmdastjórar
og hafa því gjarnan
verið ráðnir til stjórn-
unarstarfa í landi
jafnt sem á sjó. Inn-
gönguskilyrði á vél-
stjórnarsvið og skipstjórnarsvið
er grunnskólapróf.
Sjávarútvegssviðið er nýtt svið
í Fjöltækniskólanum og er ætlað
að þróa sjávarútvegsnám í sam-
vinnu við atvinnuveginn. Það nám
er sérhæft og leiðir til stjórnunar-
starfs í sjávarútvegi fyrir þá sem
hafa skipstjórn eða vélstjórn sem
grunn. Eins er hægt að hefja nám
við sjávarútvegssvið að loknu
stúdentsprófi eða öðru sambæri-
legu námi. -sig
Menntastofnun fyrir sjómenn