Fréttablaðið - 31.05.2007, Síða 42
31. MAÍ 2007 FIMMTUDAGUR6 fréttablaðið sjómannslíf
Um 160 manns starfa að
ýmsum rannsóknarverkefnum
hjá Hafrannsóknastofnuninni.
Þrátt fyrir að vera milli steins
og sleggju segir Jóhann Sigur-
jónsson, forstjóri stofnunarinn-
ar, Hafró vera góðan vinnustað.
Fræðingarnir hjá Hafrannsókna-
stofnuninni eru ekki öfundsverðir
af hlutskipti sínu. Þegar þeir gefa
upp niðurstöður sínar og setja
fram tillögur um kvóta eru yfir-
leitt flestir óánægðir. Útgerðar-
menn vilja meira og umhverfis-
sinnar minna og mitt á milli steins-
ins og sleggjunnar eru starfsmenn
Hafrannsóknastofnunarinnar.
„Við tökum þessu öllu með still-
ingu og ró,“ segir Jóhann Sigur-
jónsson, forstjóri Hafrannsókna-
stofnunarinnar. „Við gerum okkur
grein fyrir hversu mikilvæga
hluti við fjöllum um. Hluti sem
skipta þjóðarbúið og afkomu sam-
félagsins í heild miklu máli og því
er bara eðlilegt að fólk hafi mis-
munandi skoðanir.“
Eðlilega vinnur Hafró út frá
bestu fáanlegu rannsóknargögn-
um hverju sinni en Jóhann er
fyrstur manna að viðurkenna að
ekkert sé óbrigðult. „Við vinn-
um eftir bestu vitund en auðvitað
erum við ekki óskeikulir frekar en
aðrir,“ segir Jóhann. „Við reynum
að hlusta á öll sjónarmið því auð-
vitað eiga gagnrýnisraddir full-
an rétt á sér og geta jafnvel verið
leiðbeinandi fyrir okkur.“
Starfsandinn er þrátt fyrir
pressuna mjög góður á Hafrann-
sóknastofnuninni. „Hér er mjög
áhugavert og skemmtilegt að
vinna,“ segir Jóhann. „Með öllum
útibúum og áhöfnum rannsókna-
skipa okkar eru 160 manns sem
starfa hér við fjölbreytt verk-
efni.“
Hafró er með útibú víða um land
og eru þau, ásamt rannsóknarskip-
unum tveimur Bjarna Sæmunds-
syni RE 30 og Árna Friðrikssyni
RE 200, augu og eyru stofnunar-
innar. Unnið er að fjölmörgum
rannsóknarverkefnum allan árs-
ins hring, allt frá fiskeldisrann-
sóknum og mengunarmælingum
að rannsóknum á botnlífi land-
grunnsins og áhrifum veiðafæra
á það. „Við erum líka í miklum
tengslum við sjómennina sjálfa og
vinnum mikið með þeim og það er
alltaf ánægjulegt,“ segir Jóhann.
Hafrannsóknastofnunin tekur
þátt í hátíðarhöldum sjómanna-
dagsins og helgarinnar með
ýmsum hætti. Bjarni Sæmundsson
RE 30 verður til sýnis í Grindavík í
dag, föstudag, en þangað rak þessi
fyrsti íslenski fiskifræðingur, sem
skipið er nefnt eftir, ættir sínar. Í
Reykjavík tekur stofnunin þátt í
Degi hafsins og verða ýmis ein-
tök af fiskum til sýnis sem feng-
ist hafa í rannsóknarleiðöngrum.
„Sjálfur verð ég á vappi með fjöl-
skyldunni hér í Reykjavík en það
er hefð hjá mér,“ segir Jóhann að
lokum. tryggvi@frettabladid.is
Áhugaverður og skemmtilegur vinnustaður
Jóhann Sigurjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunarinnar, er einn af 160 starfsmönnum hennar. Þeir eru um allt land og allan
sæ.
Eitt af meginhlutverkum Hafrannsóknastofnunarinnar er að ráðleggja sjávarútvegs-
ráðherra hversu mikill kvótinn eigi að vera. Ekki er hægt að gera öllum til geðs og því
alltaf einhverjir óánægðir með útkomuna.