Fréttablaðið - 31.05.2007, Page 48
31. MAÍ 2007 FIMMTUDAGUR12 fréttablaðið sjómannslíf
Smábátahöfnin á Akureyri iðar af lífi á góðviðrisdögum. Mannlífið var fjölbreytt þegar ljósmyndara
og blaðamann Fréttablaðsins bar að garði annan í hvítasunnu enda glaðasólskin og logn. Sumir
voru að ná sér í soðið á meðan aðrir voru að dytta að bátum sínum eða einfaldlega að njóta góða
veðursins. - iáh
Fjölbreytt mannlíf
við höfnina
Gunnar Öxndal Stefánsson notaði góða veðrið til að mála bát félaga síns. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA.IS
Stefán Austfjörð, Guðrún Ósk, Valgerður Stefánsdóttir, Ottó Eiríksson, Sævar Þorri og Sindri Steinn voru að koma í land á Emblu
þegar ljósmyndara bar að garði. Sævar Þorri hafði veitt einn ufsa.
Feðgarnir Jóhann og Jónas fengu nokkra þorska og ýsur.
Þórir Agnarsson keypti hraðbátinn Gideon frá Kanada. „Ég fer reglulega með fjölskyldu og vini á sjó og veiði á sjóstöng og fer á
fuglaveiðar. Þessi bátur er algjör draumur.“
Birgir Guðmundsson háskólakennari var að koma í land á Fjölmiðlaskútunni en
Birgir á bátinn með Arnari Páli Haukssyni fréttamanni. „Þetta er ekki bátur heldur
skip,“ sagði Birgir glettinn en aflinn samanstóð af ýsu og þorski.
„Ég er búinn að eiga bát frá því ég var unglingur,“ sagði Hallgrímur Gíslason, sem var
að renna fyrir silung. „Ég fékk ekki neitt enda skiptir það ekki öllu. Það besta við að
sigla er að vera einn með sjálfum sér.“