Fréttablaðið - 31.05.2007, Síða 51
FIMMTUDAGUR 31. MAÍ 2007 15sjómannslíf fréttablaðið
Sýningin „Hertur, frystur, salt-
aður – fiskur í lífi borgarbúa“
verður opnuð á sjóminjasafn-
inu. Hún fjallar um Fiskvinnslu
BÚR á Granda og Meistaravöll-
um.
Sýningin Hertur, frystur, saltaður
– fiskur í lífi borgarbúa verður
opnuð í Sjóminjasafni Reykjavík-
ur næsta laugardag. Á sýningunni
er fjallað um fiskvinnslu BÚR á
Granda og Meistaravöllum.
Bæjarútgerð Reykjavíkur
hóf rekstur árið 1947 með komu
fyrsta nýsköpunartogarans,
Ingólfs Arnarsonar RE 201. Í kjöl-
farið sigldi hver togarinn á fætur
öðrum og innan fárra ára gerði
BÚR út átta togara. Árið 1950 lét
BÚR reisa stóra fiskverkunarstöð
á Meistaravöllum við Kaplaskjóls-
veg. Þar var um árabil rekin um-
fangsmikil saltfisk- og skreiðar-
vinnsla, auk síldarvinnslu og þjón-
ustu við togara útgerðarinnar.
Þessi vinnsla útvegaði hundr-
uðum borgarbúa, eldri sem yngri,
atvinnu. Árið 1959 keypti bæjar-
útgerðin hraðfrystihús Fiskiðju-
vers ríkisins á Grandagarði 8 og
var þar rekin fiskvinnsla og fryst-
ing fram til ársins 1985.
Sýningin í Sjóminjasafninu
fjallar um þessa miklu land-
vinnslu á sjávarafurðum sem
Bæjarútgerðin stóð fyrir í áratugi
og var gríðarlega mikilvæg í at-
vinnulífi borgarbúa.
Á sýningunni má meðal ann-
ars sjá skreiðartrönur, saltfiskinn
og innsýn í frystingu. Um fimm-
tíu mannlífsmyndir frá starfsemi
BÚR verða á veggjum sýningar-
salarins og ef til vill geta fyrrum
BÚR-stelpur þekkt sig á myndum.
Þess má geta að núverandi
borgarstjóri, Vilhjálmur Vil-
hjálmsson, var í síðustu BÚR-
stjórninni ásamt þeim Kristjáni
Benediktssyni og Björgvini Guð-
mundssyni. Hann opnar sýning-
una kl. 11.00.
Hertur, frystur
og saltaður
Af er það sem áður var í fiskverkun.
Í Sjóminjasafninu er dregin upp mynd af starfsemi BÚR, fiskvinnslufyrirtækis í
Reykjavík. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
STAÐREYNDIR UM
SJÓMANNADAGINN
Sjómannadagurinn var fyrst
haldinn í Reykjavík og Ísafirði 6.
júní 1938 og breiddist siðurinn út
um allt land á fáum árum.
Sjómannadagurinn er venju-
lega haldinn fyrsta sunnudag í
júní. Eina undantekningin á því
er þegar hvítasunnu ber upp á
þann dag.
Talið er að um tvö þúsund
sjómenn hafi tekið þátt í skrúð-
göngu í Reykjavík árið 1938.
Nú er sjómannadagurinn víða
mesti hátíðisdagur að jólunum
undanskildum.
Á sjómannadeginum er starf
sjómanna kynnt og á hann að
efla samhug sjómanna.
Einnig minnast menn drukkn-
aðra sjómanna. Það eru samtök
sjómanna sem sjá um hátíðar-
höldin.
Árið 1987 voru sett sérstök lög
um sjómannadaginn þar sem
tímasetning hans var lögfest og
settar reglur til að tryggja sem
flestum sjómönnum frí þann
dag.