Fréttablaðið - 31.05.2007, Side 59
Það er ljóst að ný ríkis-stjórn Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar
mun í meginatriðum fylgja
óbreyttri stefnu í Evrópu-
málum. Fylgst verður sem
fyrr náið með þróun mála
innan Evrópusambands-
ins og lögð áherzla á opinskáa um-
ræðu um málaflokkinn, en aðild að
sambandinu er sem fyrr ekki á dag-
skrá. Það er ástæða til að fagna sér-
staklega áherzlu á opna og upplýsta
umræðu um Evrópumál. Slík um-
ræða er vitanlega aðeins af hinu
góða. Evrópuhluti stefnuyfirlýsing-
ar ríkisstjórnarinnar er svohljóð-
andi undir fyrirsögninni:
„Opinská umræða um Evr-
ópumál“:
„Ríki Evrópusambands-
ins eru mikilvægasta mark-
aðssvæði Íslands. Samn-
ingurinn um Evrópska
efnahagssvæðið (EES)
hefur reynst þjóðinni vel
og hann er ein af grunn-
stoðum öflugs efnahags-
lífs þjóðarinnar. Skýrsla
Evrópunefndar verði grundvöll-
ur nánari athugunar á því hvern-
ig hagsmunum Íslendinga verði í
framtíðinni best borgið gagnvart
Evrópusambandinu. Komið verði á
fót föstum samráðsvettvangi stjórn-
málaflokka á Alþingi sem fylgist
með þróun mála í Evrópu og leggi
mat á breytingar út frá hagsmunum
Íslendinga. Nefndin hafi samráð við
innlenda sérfræðinga og hagsmuna-
aðila eftir þörfum.“ Til samanburð-
ar var stefna síðustu ríkisstjórnar í
Evrópumálum svohljóðandi: „Sam-
skiptin við Evrópusambandið verði
áfram treyst á grundvelli samnings-
ins um Evrópska efnahagssvæð-
ið og annarra samninga sem Ísland
á aðild að. Fylgst verði grannt með
samrunaferlinu í Evrópu og áhrif-
um þess á íslenska hagsmuni.“
Orðalagið 1995 og 1999 var nánast
orðrétt á sömu leið. M.ö.o. hefur í
meginatriðum engin breyting orðið
á stefnu stjórnvalda hér á landi.
Stefnan er að fylgjast náið með en
ekki að sækja um aðild að Evrópu-
sambandinu.
Það er því merkilegt að sjá
Eirík Bergmann Einarsson, fyrrv.
stjórnarmann í Evrópusamtökun-
um, lýsa því yfir í Blaðinu fyrir
helgi að stefnuyfirlýsing nýrrar
ríkisstjórnar í Evrópumálum sé að
hans mati skref í átt að Evrópusam-
bandsaðild vegna þess að „opnað“
sé fyrir umræðu um málaflokkinn.
Fyrir það fyrsta er ljóst að til þess
að hægt sé að opna fyrir eitthvað
þarf það fyrst að hafa verið lokað.
Svo er þó ekki þegar umræða um
Evrópumál er annars vegar. Enginn
hefur lokað á hana heldur hefur hún
einmitt verið í gangi um árabil.
Eiríkur gefur sér hins vegar
greinilega að aukin umræða um
Evrópumál leiði sjálfkrafa til vax-
andi stuðnings við Evrópusam-
bandsaðild. Vitanlega er engan veg-
inn hægt að fullyrða neitt um slíkt
fyrirfram. Hins vegar sýnir reynsl-
an, bæði hér heima en þó einkum
erlendis, að aukin umræða um Evr-
ópumál hefur ríka tilhneigingu til
að leiða frekar til aukinnar and-
stöðu við samrunaskref innan Evr-
ópusambandsins en stuðnings. Þetta
sást t.a.m. vel í aðdraganda þjóðar-
atkvæðagreiðslanna í Svíþjóð 2003
um evruna og í Frakklandi og Hol-
landi um fyrirhugaða stjórnarskrá
sambandsins 2005 svo fátt eitt sé
nefnt. Það ber þó ávallt að hafa hug-
fast að reynslan sýnir að þegar Evr-
ópusambandssinnar tala um um-
ræðu um Evrópumál eiga þeir við
umræðu þar sem niðurstaðan er
að Ísland skuli ganga í Evrópusam-
bandið. Sé niðurstaða umræðunnar
önnur er einfaldlega ekki verið að
ræða málin.
Höfundur er sagnfræðinemi.
Evrópustefna nýrrar ríkisstjórnar
Safna›u 5 toppum af Merrild
kaffipokum og flú gætir unni› gjafabréf
í Marimekko, Laugavegi 56,
a› ver›mæti 50.000 kr.
fiví fyrr sem flú sendir inn,
flví meiri vinningsmöguleikar!
1. útdráttur: 20. febrúar - 6 gjafabréf
2. útdráttur: 20. mars - 6 gjafabréf
3. útdráttur: 20. apríl - 6 gjafabréf
4. útdráttur: 20. maí - 6 gjafabréf
5. útdráttur: 20. júní - 6 gjafabréf
Samtals 30 gjafabréf a› ver›mæti 1,5 milljónir.
Sendu inn flátttökuse›il ásamt 5 toppum af Merrild:
Merrild & Marimekko
Pósthólf 4322
124 Reykjavík
fiú fær› flátttökuse›il í næstu matvöruverslun.
KL
IPP
TU TOPPINN