Fréttablaðið - 31.05.2007, Síða 66

Fréttablaðið - 31.05.2007, Síða 66
Formleg opnun á starfsemi í ný- endurbyggðu Húsi Innréttinganna og viðbyggingu í Aðalstræti 10 verður kl. 17 í dag en í gamla hús- inu á neðri hæðinni verður Reykja- víkurborg með sýningu í Fógeta- stofum. Þar verður í sumar sýning á vegum Minjasafns Reykjavíkur um upphaf byggðar við Aðalstræti og í Grjótaþorpi. Til sýnis eru líkön og ljósmyndir frá Reykjavík þar sem sjá má hvernig byggð í Reykjavík þróaðist fyrstu hundrað árin eftir stofnun kaupstaðarins árið 1786. Upphaf þéttbýlis í Reykjavík má rekja til Innréttinganna og húsið Aðalstræti 10 stendur eitt eftir af þeim húsum sem reist voru fyrir verksmiðjurnar. Á efri hæðinni er starfsemi Handverks og hönnunar en mark- mið þess félagsskapar er að stuðla að eflingu handverks, hönnunar og listiðnaðar og auka gæðavitund á þessu sviði. Einnig að auka skilning almennt á menningarlegu, listrænu og hagnýtu gildi handverks, hönn- unar og listiðnaðar með fjölbreyttri kynningarstarfsemi. Á efri hæðinni er einnig lítill sýningarsalur sem kallaður er „Á skörinni“. Þar mun Sigríður Ágústsdóttir leirlistakona opna sýningu á hand- mótuðum og reykbrenndum vösum. Sigríður býr á Akureyri en lærði bæði í Englandi og Frakklandi. Hún hefur haldið fjölda einkasýninga og tekið þátt í mörgum samsýning- um. Sýningin „Á skörinni“ er opin á skrifstofutíma til 28. júní. Í glæsilegu bakhúsi sem er á tveimur hæðum er rekin verslunin Kraum – icelandic design. Hópur hönnuða og fjárfesta tók höndum saman og stofnaði þetta fyrirtæki. Í versluninni verður seldur fatn- aður, skartgripir og margs konar nytjavörur frá yfir sjötíu íslensk- um hönnuðum. Á efri hæð bakhússins verða í framtíðinni fjölbreyttar innlendar og erlendar hönnunarsýningar. - Innréttingarnar lifna við 28 29 30 31 1 2 3 Sinfóníuhljómsveit Íslands slær botninn í Sjostakovitsj- maraþon sitt á tónleikum í kvöld og frumflytur nýtt verk eftir Þórð Magnússon. Fyrir fimm árum ýtti aðalhljóm- sveitarstjórinn Rumon Gamba því metnaðarfulla verkefni úr vör að sveitin flytti allar sinfón- íur rússneska tónskáldsins Dí- mítríj Sjostakovitsj. Sjostakovitsj var einn mesti meistari sinfóníska formsins á 20. öld og fimmtán sin- fóníur hans eru magnaður vitnis- burður um hina viðsjárverðu tíma sem hann lifði. Þær eru verk mikilla öfga og innihalda ólgandi ástríður, hugrekki, trega og sorg. Vert er að benda á fyrir þá sem vilja endurnýja kynnin af verkun- um að Sjostakovitsj-röðin verður á dagskrá Rásar 1 á þriðjudags- kvöldum í sumar og mun Árni Heimir Ingólfsson tónlistarfræð- ingur kynna sinfóníurnar í tali og tónum. Á tónleikunum verður einnig flutt nýtt verk eftir Þórð Magnús- son sem ber heitið „Það mótlæti þankinn ber“ og er þriðja verk Þórðar sem flutt er af Sinfóníu- hljómsveit Íslands. „Þetta er svokölluð lagboða- vísa en þegar rímnamenn voru að leggja á minni laglínur sem þeir notuðu settu þeir inn einn einfald- an texta sem var auðvelt að muna til að auðvelda sér að muna hvaða laglína átti við hvaða ljóð,“ út- skýrir Þórður. Þessi lagstúfur sem upphaflega var aðeins tvær nótur er nú orðinn að liðlega tuttugu mínútna tónverki. Þórður segir verkið í rökréttu framhaldi af síðasta verki sem hann samdi en hugmyndina sótti hann í gnægt- arbrunn þess sem á tyllidögum er oft kennt við menningararf. „Ég fékk það áhugaverða verkefni að skrifa niður rímnalög eftir upp- tökum í tengslum við bók sem heitir Silfurplötur Iðunnar. Þar í rauninni kviknaði áhugi minn á þessum gömlu íslensku kvæðum,“ segir Þórður og segir að síðan hafi öll sín verk verið töluvert lituð af þessum arfi. „Ég sæki heilmikið í þetta, maður fær svona teng- ingu – að vera klassískt tónskáld á Íslandi er í raun pínulítið fárán- legt, hér er engin hefð en þarna er maður kominn með tengingu við land og þjóð.“ Tónleikarnir verða að sönnu fjöl- breyttir því rúsínan í pylsuenda kvöldsins er flutningur breska bass-barítónsöngvarans Sir Don- ald McIntyre á „Kveðju Óðins“, aríu úr Valkyrjunum eftir Ri- chard Wagner. Sir Donald McInt- yre verður að teljast einn helsti bass-barítónsöngvari sinnar kyn- slóðar. Rumon Gamba stjórnar en tónleikarnir hefjast sem fyrr kl. 19.30 Klukkustund fyrir tónleikana verður aðalfundur Vinafélags Sin- fóníuhljómsveitar Íslands haldinn á Hótel Sögu. Strax að fundinum loknum mun Karólína Eiríksdóttir tónskáld kynna efnisskrá kvölds- ins fyrir gestum. Allir eru vel- komnir á fundinn. „ÞAÐ ELSKA ALLAR KONUR HEIMSFRÆGA MENN“ GRETTIR Miðasala 568 8000 www.borgarleikhús.is grettir.blog. is
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.