Fréttablaðið - 31.05.2007, Síða 74
Tískuviðburðurinn Made in
Iceland fer fram í Loftkast-
alanum í kvöld en þar munu
alls sex ungir og upprenn-
andi fatahönnuðir sýna
hönnun sína. Það eru fyrir-
tækin Eskimo og Basecamp
sem standa fyrir kvöldinu.
Tískugúrúar hvaðanæva að úr
heiminum munu flykkjast á sýn-
inguna í kvöld og þarna verða til
dæmis tískuhönnuðurinn Marjan
Pejoski sem er sennilega þekkt-
astur hérlendis fyrir svanakjól-
inn sem Björk klæddist á Óskarn-
um en hönnun hans er seld í Kron-
Kron. Einnig hafa boðað komu
sína blaðafulltrúar frá Dazed
and Confused og V-Magazine
auk innkaupastjóra búðarinnar
KokonToZai í London.
Markmiðið með þessum herleg-
heitum er að kynna til leiks ferska
og hæfileikaríka íslenska hönnuði
en í kvöld fáum við að sjá hönnun
frá Aftur, Eygló, Raxel, Starkiller,
Forynju og hönnunartvíeykinu
Ostwald-Helgason. Það síðast-
nefnda skipa Ingvar Helgason og
Susanne Ostwald. „Við kynntumst
þegar við unnum bæði hjá hönn-
uðinum Marjan Pejoski og end-
uðum á því að stofna fyrirtæki
saman,“ segir Ingvar sem fæddur
er í Reykjavík en fluttist til Kaup-
mannahafnar þar sem hann lærði
saum og sníðagerð. „Merkið okkar
gengur mjög vel en fötin eru
meðal annars seld í London, París,
New York, Hong Kong, Tókýó og
Vín. Íslandsmarkaður hefur hins
vegar orðið eitthvað útundan og
vonandi bætir sýningin úr því,“
segir hann og bætir við að hann
sé mjög spenntur fyrir kvöldinu.
„Þetta er í fyrsta sinn sem við
erum með „catwalk“ sýningu og
það er auðvitað mjög spennandi
og gaman að gera það á Íslandi.
Það verður líka mjög skemmtilegt
að sjá hvað hinir íslensku hönnuð-
irnir hafa upp á að bjóða,“
Auk hönnuðanna verða kynntar
sextán nýjar íslenskar fyrirsætur
sem munu sýna fötin. „Við tókum
á móti hátt í tvö hundruð stelp-
um alls staðar að af landinu og
þær sextán sem við völdum hafa
verið að æfa sig síðustu tíu daga
og eru orðnar mjög góðar,“ segir
Ásta Kristjánsdóttir hjá Eskimo
og bætir því við að fyrirtækið sé
hætt með Ford fyrirsætukeppn-
ina. „Við ákváðum að velja frekar
sextán manna hóp á hverju ári og
þjálfa þær upp í staðinn fyrir að
ein vinni. Þetta er bæði uppbyggi-
legri og skemmtilegri leið. Vegg-
ina í salnum prýða tveggja metra
háar myndir af stúlkunum og
myndar það skemmtilega stemn-
ingu. Í kvöld mæta svo útsendarar
frá skrifstofum í París, London og
New York til að kíkja á stelpurnar
og þær gætu þá landað samning.“
Húsið opnar klukkan átta í kvöld
og aðgangseyrir er einungis 950
krónur. Tónlistarflutningur verð-
ur í höndum hljómsveitanna Steed
Lord og Sometime.
Kvennabósinn Calum Best
er háður kókaíni og stundar
hópkynlíf með vændiskon-
um. Þetta kom fram í breska
dagblaðinu The Sun í gær en
blaðið birti myndir af Best
í félagsskap vændiskvenna
þar sem hann neytti kóka-
íns. Best, sem er sonur
knattspyrnuhetj-
unnar George Best
heitins, komst ný-
verið í fréttirn-
ar fyrir að slá
sér upp með leik-
konunni Lindsay
Lohan.
„Pabbi hans var
vissulega fylli-
bytta og kvenna-
bósi en Calum er
verri, hann er kom-
inn alveg á botn-
inn,“ sagði vinur
hans í samtali
við blaðið. Þrátt
fyrir að kærastan
Lindsay Lohan sé
ekki barnanna best þegar
kemur að skemmtanalíf-
inu hafði Calum hald-
ið líferni sínu leyndu
fyrir henni. Lindsay
var sem kunnugt er
handtekin með kókaín
í fórum sínum um liðna
helgi. Hún mun nú
hafa innritað sig í
meðferð í annað
skipti á skömm-
um tíma.
„Ég hef
hegðað mér
heimskulega
og sé eftir
öllu,“ sagði
Calum í við-
tali við The
Sun. Þá hafði
hann ekki enn
sagt Lindsay
frá leyndarmál-
um sínum. Breska
dagblaðið hefur undir
höndum myndbands-
upptöku af Calum
þar sem hann er með
tveimur vændiskon-
um á hótelherbergi.
Á myndbandinu sést
hann í ástarleikjum
með vændiskonun-
um á milli þess sem
hann tekur kókaín í nefið.
Calum lýsti því yfir eftir að
hann kynntist Lindsay Lohan að
hann væri tilbúinn að láta af villt-
um lífsstíl sínum og helga sig sam-
bandi þeirra. Ólíklegt verður að
teljast að af því verði nú.
Kærasti Lindsay í kókaíni
• Tómatar
Tómatar eru hollir og ljúffengir,
litfagrir og ómissandi á matborðið.
Íslenskir grænmetisbændur bjóða
neytendum upp á margar tegundir
sem auka fjölbreytnina og möguleikana.
Nú er rétti tíminn til að prófa þær allar.
www.islenskt.is
ljúffengar uppskriftir og fró›leikur
• Konfekttómatar
• Kirsuberjatómatar
• Plómutómatar
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
F
I
0
1
7
3
1
6