Fréttablaðið - 31.05.2007, Síða 77

Fréttablaðið - 31.05.2007, Síða 77
Grallararnir í Baggalúti hafa gefið út lagið Sof þú mér hjá. Lagið er tileinkað íslenskum táningum og er ætlað sem innlegg í þá fá- breytnu unglingamenningu sem þrífst hér- lendis. „Við sátum og vorum að hlusta á gamlar Frank Zappa-plötur. Hann var svolítið í því að taka dúopp-lög svokölluð. Þetta er svona fiftís lummurokk, þótt þetta sé ekki alveg eins súrrealískt og hjá honum. Við ákváðum að prófa eitt svona lag,“ segir Baggalúturinn Bragi Valdimar Skúlason sem er höfundur lags og texta. Heimasíðan baggalutur.is fer í sumarfrí á föstudag og stendur það líklega yfir þang- að til í byrjun september. Bragi segir að ým- islegt hafi verið í gangi á síðunni að undan- förnu, svona rétt fyrir fríið. „Þarna er heims- endaspá og undarlegir atburðir í gangi, hvort sem það er reykingabann eða yfirvofandi árás geimvera í loftinu,“ segir hann. Dúopp-lag í loftið Dúettinn Myst hefur gefið út sína fyrstu plötu, Take Me With You, með aðstoð Smekkleysu. Myst, sem er skipuð hjónunum Kol- brúnu Evu Viktorsdóttur og Har- aldi G. Ásmundssyni, hefur verið starfandi í um það bil fjögur ár og hefur platan verið í vinnslu nánast frá þeim tíma. Spilar sveitin ról- egheita popp undir ýmiss konar áhrifum, meðal annars frá Bítlun- um, Emilíönu Torrini og Evu Cass- idy. Myst hefur átt fjögur lög sem hafa fengið mikla spilun í útvarp- inu, þar á meðal Here For You, sem var mest spilaða lagið á Bylgjunni árið 2005. Vissu þá fáir að þar væri á ferðinni íslensk hljómsveit. „Þetta er mjög tilfinningaþrung- in plata og hvert lag á sér sögu,“ segir söngkonan Kolbrún Eva. „Þegar við spilum á tónleikum gætum við örugglega talað í tvær mínútur á undan hverju einasta lagi.“ Eitt laganna, Angel Like You, er til að mynda samið til minning- ar um bróður Kolbrúnar Evu sem lést ungur að aldri árið 1988. Jón Ólafsson og Arnar Guðjóns- son úr Leaves sáu um upptöku- stjórn plötunnar og eru þau Kol- brún Eva og Haraldur hæstánægð með framlag þeirra. Bróðir Kol- brúnar, Sigurvin Sindri, kemur einnig við sögu á plötunni sem gítarleikari, ásamt þeim Her- manni Alberti Jónssyni, bassaleik- ara, Arnari Guðjónssyni, Jóhanni Hjörleifssyni, Guðmundi Péturs- syni, Jóni Ólafssyni og Friðriki Sturlusyni. Stórar tilfinningar hjá Myst smáralind www.coast-stores.com
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.