Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 2
Viðræður um olíuhreins-
unarstöð í Hvestudal í Arnarfirði
eru skammt á veg komnar og í raun
ekki lengra en svo að einungis er
búið að undirrita viljayfirlýsingu
um þær, að sögn Ólafs Egilssonar
eins eiganda Íslensks hátækniiðn-
aðar.
Jón Bjarnason, bóndi að Fremri-
Hvestu sagðist hafa „heyrt það í
fréttunum áðan“ að hann ætlaði að
selja jörð sína, en vildi ekki tjá sig
um það að öðru leyti, þegar Frétta-
blaðið náði af honum tali í gær.
„Frumforsendurnar eru að vilji
sveitarstjórnar og landeigenda sé
fyrir hendi. Þetta eru tvær jarðir í
eigu Jóns og þær taka yfir allan
dalinn. Það væri óhentugt að vera
með búskap á annarri og reka olíu-
hreinsistöð á hinni,“ segir Ólafur.
Hann kveður Hvestudal hentug-
an því engin byggð sé gegnt daln-
um handan fjarðarins og því yrði
ekki sjónmengun fyrir nágranna.
Jörðin Sandar í Dýrafirði kom
einnig til greina, en jákvæð afstaða
bæjarstjórnar Vesturbyggðar flýtti
fyrir viðræðum um Hvestudal.
Rússneska fyrirtækið Katamak-
Nafta yrði helsti samstarfsaðilinn
við framkvæmdina.
Björgunarfólk vann í gær að því að bjarga
fólki úr rústum leirhúsa í þorpinu Kahatanía í
kúrdahéröðum Íraks. Meira en 200 manns fórust
þegar fjórar sjálfsvígsárásir voru gerðar á þorpið á
þriðjudag.
Árásinni var beint gegn jasídum, en jasídar eru
kúrdar sem enn aðhyllast hin fornu trúarbrögð
þjóðar sinnar. Jasídar eru nokkur hundruð talsins og
búa flestir í norðvesturhluta Íraks. Múslimskir
öfgasinnar líta á jasída sem trúvillinga.
Bandaríkjamenn segja hryðjuverkasamtökin al-
Kaída hafa staðið að þessum árásum.
„Bílasprengjurnar sem notaðar voru bera allar
greinileg merki ofbeldisverka al-Kaída í Írak,“ segir
Kevin Bergner, talsmaður Bandaríkjahers í Írak.
„Við erum enn að rannsaka málið og munum vita
meira á næstu dögum.“
Sjálfsvígsmenn óku samtímis fjórum
vörubifreiðum hlöðnum sprengiefni inn í þorpið á
þriðjudaginn. Árásin er sú mannskæðasta sem
jasídar hafa orðið fyrir frá upphafi, og sú
mannskæðasta sem framin hefur verið í Írak frá því
215 manns fórust í árás á sjía-múslima í Sadr-
hverfinu í Bagdad 23. nóvember síðastliðinn.
Jasídar trúa meðal annars á engil, sem sumir
kristnir menn og sumir múslimar telja vera
djöfulinn sjálfan, en jasídar segja það firru eina,
enda trúi þeir hvorki á himnaríki né helvíti.
Sérblað um dagskrá
menningarnætur fylgir Fréttablað-
inu í dag.
Þar eru að
finna kort af
borginni sem
vísa á áhuga-
verða viðburði
og er þeim
skipt í viðburði
fyrir börn,
unglinga,
fullorðna og
fjölskyldur og
hægt er að
nota þau sem leiðarvísi.
Heilsuverndarstöðin á Barónstíg
verður tekin undir listastarfsemi
og munu íslenskar brúður lifna þar
við. Auk þess munu læknanemar
dreifa smokkum um borgina og
sænskar sirkuslistastjörnur sýna
listir sínar og kenna börnum
sirkusbrögð. -
Ótal viðburðir
Brugðist verður
við manneklu á leikskólum með
því að greiða leikskólakennurum
tímabundin viðbótarlaun. Tillaga
Vinstri grænna þess efnis var
samþykkt samhljóða á fundi
leikskólaráðs Reykjavíkur í gær.
Í kjarasamningum er heimild
fyrir slíkum viðbótargreiðslum til
að tryggja faglegt starf leikskóla.
Í tilkynningu frá
borgarstjórnarflokki Vinstri
grænna segir að með því að nýta
þessa heimild geti borgin lagt sitt
af mörkum til að standa vörð um
og efla það starf sem unnið er í
leikskólum Reykjavíkurborgar.
Viðbótarlaun
við manneklu
Biskup Íslands, Karl
Sigurbjörnsson vísiterar
Skaftafellsprófastsdæmi dagana
18. - 25. ágúst.
Biskup mun skoða átján
kirkjur og bænahús, hitta
sóknarnefndarfólk og presta og
starfsfólk safnaða. Hann mun
einnig heimsækja hjúkrunar- og
dvalarheimili.
Með biskupi í för verður
eiginkona hans Kristín Guðjóns-
dóttir, prófastur Skaftafellspróf-
astsdæmis, séra Haraldur M.
Kristjánsson í Vík og eiginkona
hans, Guðlaug Guðmundsdóttir.
Síðast vísiteraði herra Ólafur
Skúlason, þáverandi biskup
Íslands, Skaftafellsprófasts-
dæmi, árið 1994.
Átján kirkjur á
átta dögum
Borgarráð Reykja-
víkur hefur óskað eftir fundi með
Stefáni Eiríkssyni, lögreglustjóra
höfuðborgarsvæðisins, sem fram
fer í dag.
Umræðuefnið
er umgengni í
miðborginni og
málefni
skemmtistaða.
Lögreglu-
stjóri hefur lýst
yfir þeirri
skoðun að
stytta ætti
opnunartíma skemmtistaða og
hindra samþjöppun þeirra í
miðborginni.
„Fundurinn er um málefni
miðborgarinnar, skemmtistaðina
og fleira,“ segir Stefán. „Við
þurfum að halda áfram þessari
umræðu sem hefur verið í gangi.“
Fundar með
borgarráði
Kristján, er þetta óferjandi
ástand?
Í nýrri skýrslu Ríkisendur-
skoðunar um framkvæmd fjárlaga
árið 2006 kemur fram að útgjöld A-
hluta ríkisins fór verulega fram úr
fjárlögum.
Fjárlög mæltu fyrir um 315
milljarða króna útgjöld en endan-
leg fjárheimild hækkaði um nálægt
tólf prósent og var 352 milljarðar.
Mismunurinn felst í fjáraukalög-
um og yfirfærðum heimildum frá
árinu áður.
Í lok síðasta árs stóðu 75 af 456
fjárlagaliðum í halla umfram fjög-
urra prósenta vikmörk. Árið áður
voru 96 liðir í halla umfram vik-
mörkin. Á síðasta ári var saman-
lögð fjárhæð hallaliðanna mun
hærri en árið á undan; nam tæpum
14 milljörðum króna.
Í skýrslunni kemur jafnframt
fram að meirihluti fjárlagaliða átti
afgang umfram vikmörk. Ríkis-
endurskoðun metur það líka alvar-
legt enda sé það Alþingis en ekki
forstöðumanna stofnana að auka
eða draga úr þjónustu sem löggjaf-
inn hefur mælt fyrir um.
Í skýrslu Ríkisendurskoðunar er
farið í saumana á vanda valdra
stofnana menntamála-, landbúnað-
ar- og utanríkisráðuneyta. Virðist
ástandið sínu verst í Háskólanum á
Akureyri þar sem uppsafnaður halli
nemur 336 milljónum og hjá Sýslu-
manninum á Keflavíkurflugvelli
þar sem hallinn er 148 milljónir.
Í skýrslunni er dregin saman
algeng lýsing forstöðumanna ríkis-
stofnana á ástæðum endurtekins og
umfangsmikils halla. Í stuttu máli
er hún á þá leið að forstöðumaður
óskar eftir viðbótarfjárheimild en
fær ekki. Tilkynnir hann þá ráðu-
neyti að nauðsynlegt sé að skera
niður. Ráðuneytið óskar eftir að
það verði ekki gert og segir að
reynt verði að finna aðrar lausnir.
Þær láta á sér standa. Að endingu
eru sóttar auknar fjárheimildir,
löngu eftir að til útgjaldanna var
stofnað í heimildarleysi. „Hvort
sem slíkar fullyrðingar ýmissa for-
stöðumanna um afskipti ráðuneyta
eru sannar eða ekki er ábyrgð
þeirra á fjárhagsvanda stofnana
sinna skýr,“ segir í skýrslunni.
„Þeir eiga að sjá til þess að þær séu
reknar innan ramma fjárheimilda
ellegar sæta áminningu eða brott-
rekstri ef um endurtekin eða stór-
felld umframútgjöld er að ræða.
Forstöðumönnum ber að fara að
fjárlögum og virða embættisskyld-
ur sínar en geta ekki skýlt sér á bak
við óljós fyrirmæli eða óskir ráðu-
neyta.“
Fjárlagabrjótar sæti
ábyrgð fyrir brot sín
Brestur er á að fjárlögum sé fylgt í opinberum rekstri. Fjárlagaliðum sem reknir
eru umfram heimildir fækkar milli ára. Ríkisendurskoðun vill að forstöðu-
menn ríkisstofnana sem fara fram úr fjárheimildum verði áminntir eða reknir.
menningarnótt
FRÉTTA
BLA
Ð
IÐ
/H
Ö
RÐ
U
R
Laugardaginn 18. ágúst 2007
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2007
Heyrði af þessu í fréttunum
x
Húsfyllir var á opnum
íbúafundi samtakanna Betri
byggð á Kársnesi í Salnum í
Kópavogi í gærkvöldi. Meðal
frummælenda á fundinum var
Gunnar I. Birgisson bæjarstjóri.
Samtökin hafa mótmælt
fyrirhuguðu skipulagi á Kársnes-
inu, sem gerir ráð fyrir mikilli
fjölgun íbúa, stækkun atvinnu-
svæðis og aukinni umferð.
Bæjaryfirvöld kynntu skipulag-
ið ítarlega fyrir fundargestum.
Fundurinn stóð enn yfir þegar
Fréttablaðið fór í prentun.
Húsfyllir á fundi
um Kársnes