Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 82

Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 82
Bíódagar Græna ljóssins hófust í gær þegar heim- ildarkvikmyndin Sicko eftir Michael Moore var frumsýnd. Óvenju þétt kvikmyndahátíð, segir Ísleifur B. Þórhallsson, framkvæmdastjóri hátíðar- innar. „Bíódagarnir eru eilítið frá- brugðnir öðrum kvikmyndahátíð- um því þeir standa yfir í tvær vikur og það eru margar sýningar á mörgum myndum,“ segir Ísleif- ur og því þurfa kvikmyndaunn- endur ekki að standa frammi fyrir því að velja og hafna heldur eiga möguleika á því að geta séð allar myndirnar með góðu skipulagi. Bíódögunum er skipt upp í þrjá flokka: Heiminn, sem er almennur flokkur og þar gefur að líta kvik- myndir hvaðanæva úr heiminum, Heimildarmyndaflokkinn sem segir sig nokkuð sjálfur og svo Miðnæturflokkinn sem á eftir að vekja mikla athygli. „Þarna ætlum við að sýna myndir sem margar hverjar þykja ákaflega umdeildar og sumar þeirra hafa vakið hörð viðbrögð, umræður og jafnvel deilur,“ segir Ísleifur en í þessum flokki má meðal annars sjá hina ofurerótísku Shortbus og Zoo þar sem umfjöllunarefnið er lát manns eftir mök við hest. Ísleifur segir það hafa verið meðvitað að hafa myndirnar alls ekki fleiri en tuttugu en alls verða sýndar átján myndir. „Við vildum vanda valið ákaflega vel og hafa hátíðina ekki of stóra þannig að fólki gæfist tækifæri til að sjá sem flestar,“ útskýrir Ísleifur en hátíð- in er tvískipt. „Fyrri hálfleikur hefst á fimmtudag þegar níu mynd- ir verða teknar til sýninga. Þeim verður síðan langflestum skipt út fyrir níu nýjar myndir á miðviku- daginn í næstu viku,“ segir hann. Ísleifur er eldri en tvævetra í skipulagningu kvikmyndahátíða en hann var hjartað og heilinn á hinni geysivinsælu IFF. „Ég myndi telja, án þess að blikna, að þetta væri ein besta hátíðin sem ég hef skipulagt,“ segir Ísleifur en hann reiknaði með því að kvikmyndin Sicko yrði stærsti smellurinn. „Það er hins vegar aldrei að vita. Við höfum fundið fyrir miklum áhuga á Cocaine Cowboys og Deliver us from Evil auk Away from her,“ segir Ísleif- ur. Chaplin er einn mesti listamaður 20. aldar Teiknimyndin Ratatouille var frum- sýnd í gær en henni er leikstýrt af Brad Bird, þeim sama og gerði The Incredibles. Að þessu sinni er umfjöllunarefnið ekki ofurmanna- fjölskylda heldur rottan Remy sem flytur til Parísar og hyggst hafa þar uppi á átrúnaðargoði sínu og matargúrú, Gusteau. Remy til mikillar skelfingar kemst hann í raun um að Gusteau er dáinn og hið fornfræga veitingahús hans er að hruni komið. Rottan deyr hins vegar ekki ráðalaus og gengur í lið með sendlinum Linguini og saman leggja þeir á ráðin um að endurreisa mannorð Gusteau og búa til besta ratatouille í Frakk- landi. Að venju, þegar teikni- myndir eru annars vegar, eru stórstjörnur í hverju hlutverki en þær sem vekja helst athygli eru gömlu brýnin Brian Dennehy og Peter O‘Toole sem láta ljós sitt skína í myndinni. Ratatouille er sýnd með bæði ensku og íslensku tali í Sambíóun- um. Snilldar rottu-kokkur Kvikmyndin Rush Hour sló í gegn öllum að óvörum árið 1998 og nú er komið að þriðju myndinni í serí- unni. Að venju eru vélbyssukjaft- urinn Chris Tucker og ofuráhættu- leikarinn Jackie Chan í aðalhlutverkum og að þessu sinni þurfa þeir á öllu sínu að halda til að lifa af. Myndin segir frá því þegar sendiherra Kína í Los Angeles kemst að einhverju best geymda leyndarmáli undirheimanna; hvernig yfirmaður glæpaklíkunn- ar Triads, Shy Shen, lítur út og hvernig innra starf samtakanna virkar. Áður en sendiherrann kemst hins vegar til glæpadóm- stólsins í Haag er hann tekinn af lífi og ljóst þykir að þessi uppgötv- un hefur hreyft við meðlimum Triad sem ætla að vernda sinn mann með öllum hugsanlegum ráðum. Og þá koma lögreglumenn- irnir Carter og Lee til sögunnar og þá er fjandinn laus. Að venju er Brett Ratner við stjórnvölinn en meðal annarra sem koma við sögu í Rush Hour 3 má nefna hinn sænska Max von Sydow auk þess sem pólska leikstjóranum Roman Polanski bregður fyrir í hlut- verki lögreglu- manns. Jackie Chan á fleygiferð Það er
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.