Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 39

Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 39
Það er bæði fallegt og sorglegt að koma úr fríi og sjá hvarvetna vetrarútstillingarnar í gluggum verslana og tískuhúsa. Vetrartískan minnir á góða hreingerningu þegar útsölum er lokið í „ódýrari búðunum“. Allt í einu eru útstillingarnar dökkar og hreinlegar eftir litagleði sumarsins. Í fínu tískuhúsunum hefur vetrartískan hins vegar verið í gluggum síðan í júnílok. En þessar útstillingar boða lok sumarsins og í París þar sem sumrinu hefur fyrir löngu verið skolað burt í niðurföllum borgarinnar í sögulegu rigningarsumri er það enn sorglegra fyrir vikið. Sumarið sem ekki kom er senn á enda og erfitt að hugsa sér að nú þegar þurfi að kaupa vetrarfötin. Eins er líklegt að fólk hér muni vel hversu milt síðasta haust var og nánast enginn vetur. Kaupmenn áttu í mestu vandræðum með að selja yfirhafnir og almenningur hleypur kannski ekki beinlínis til í þetta skiptið og leggur út fúlgur í þykkar flíkur sem eiga jafnvel eftir að hanga í skápnum í allan vetur. Ágústmánuður er einkennilegt tímabil í París, blanda af afslöppun og kæruleysi og óstöðvandi ferðamannastraumi. Í ágúst eru íbúar borgarinnar úti um hvippinn og hvappinn í sumarfríum; hér er annað hvert smáfyrirtæki lokað vegna sumarleyfa en ferðamenn hvert sem litið er. Viðskiptavinir frá Austurlöndum nær fara um í flokkum í fínu tískuhúsin og stóru magasínin þó hátt gengi evrunnar spilli eitthvað kaupgleðinni þar sem þessir viðskiptavinir flytja með sér bunka af olíudollurum. En olíufurstarnir fara einnig í ódýrari búðir líkt og Zara, Gap og H&M sem þekktar eru fyrir að fylgjast vel með tísku- straumum. Þessar búðir bjóða upp á tvenns konar fatnað í sumarlok. Haust- og vetrartísku fyrir þá sem vilja vera á undan og sleppa við asa upphafs skóla- ársins í september eða eru hér aðeins á ferðinni í stuttan tíma og vilja gjarnan versla dálítið í leiðinni eins og Íslendingum er svo tamt. Þess vegna verða búðirnar að vera vel í stakk búnar og birgar af vetrarvörum. Á sama tíma er ákveðinn hluti af vörunum eins og brú milli árstíðanna, haustlegar, en þó með stuttum ermum og buxum í bland, eins og í sumartísk- unni. Sumir kaupmenn bíða aðeins og blanda saman við nýjar vörur afgöngum af sumarútsölunum sem þeir selja á góðu verði og má víða sjá límt í glugga „fin des séries“. Þess vegna keypti ég einmitt í morgun átta rósótta diska með gylltri rönd á spottprís. Ætlaði bara að taka fjóra en sölukonan sagði að þetta væru þeir átta síðustu og ófáanlegir á eftir. Vetrarfötin bíða hins vegar betri tíma. LAUGAVEGI 91 VERÐHRUN ...á fatnaði, skóm og fylgihlutum fimmtudag, föstudag og laugardag GÖTUMARKAÐUR laugavegi 91 Júlísala tískuverslana H&M var undir væntingum. Fáum laugardögum um að kenna. Sænski tískurisinn Hennes & Mau- ritz birti í gær slakari söluhagnað fyrir júlímánuð en fyrirtækið reiknaði með eftir að sala í versl- unum H&M jókst um 17 prósent í júní. Sala í áþekkum verslunum sem opnar höfðu verið í að minnsta kosti eitt ár hækkuðu um aðeins 2 prósent á móti 5 prósentum í júní, eða alls 14 prósent. „Við bjuggumst við meiri sölu en það munar ekki miklu,“ sagði talsmaður H&M um málið og bjóst við að hlutabréf fyrirtækisins lækkuðu eitthvað í kjölfarið. „Fjórtán prósenta söluaukning er langt frá okkar væntingum. Í ár var einum laugardegi færra í júlí- mánuði miðað við júlí í fyrra, sem gæti skýrt neikvæða útkomu,“ sagði talsmaður H&M, en í saman- burði reis söluhagnaður H&M um 11 prósent í júlí 2006. Söluhagnaður H&M, sem hann- ar og selur allt frá undirfötum upp í jakkaföt, hefur vaxið hratt eftir að poppstjörnurnar Madonna og Kylie Minogue hönnuðu fatalínur fyrir fyrirtækið, og hafði fyrir- tækið opnað 1422 verslanir í heim- inum um síðustu mánaðamót, þær voru 1248 á sama tíma í fyrra. H&M undir væntingum F í t o n / S Í A Hringdu í síma ef blaðið berst ekki
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.