Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 86

Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 86
Vandræðastirnið Lindsay Lohan virðist liggja ansi vel við höggi þessa dagana en nú hefur leikkonan verið kærð fyrir að valda virðulegri frú töluverðum andlegum skaða. Sjaldan er ein báran stök og ætti Lohan að verða fyrst manna til að viðurkenna það. Tracie Rice, vinkona móður fyrrverandi aðstoðarkonu Lohan, hefur nú lagt fram kæru hjá lögreglunni í Santa Monica á hendur Lohan en þar er hún sökuð um að hafa valdið Rice óbætanlegum skaða og taugaveik- lun með aksturlagi sínu 24. júlí síðastliðinn. Rice segir að Lohan hafi elt sig og Michelle Peck og sýnt vítavert gáleysi með athæfi sínu. „Það sem Lohan gerði þetta kvöld var stórhættulegt og ábyrgðarlaust. Einhver hefði mjög auðveldlega getað dáið eða slasast alvarlega,“ sagði Rice í samtali við Daily Mail. Ef marka má lýsingar Rice í skýrslutöku voru vinkonurnar ákaflega hræddar um að Lohan myndi draga upp skotvopn eða hreinlega keyra þær út af veginum. Lohan var handtekin seinna þennan örlagaríka dag og reyndist hún þá ölvuð undir stýri auk þess sem yfirvöld fundu fíkniefni í fórum hennar. Leikkonan hafði þá nýlokið sex vikna meðferð og lýst því yfir við fjölmiðla að „villtu“ dagarnir væru að baki. Hún gekk einnig um með öklaband sem átti að sýna hvort eitthvað áfengismagn væri í blóðinu. Fjölmiðlar voru hins vegar ákaflega vantrúaðir á þetta og töldu þetta bara undanbrögð enda kom það á daginn að Lindsay var varla fyrr komin út meðal almennings að veisluhöld og hvers kyns næturbrölt hófst á ný. Lohan er nú í meðferð en á eftir að mæta fyrir dómstóla þar sem ökulaga- brotin verða tekin fyrir. Ljóst þykir, í ljósi fangels- isvistar Parísar Hilton, að Lohan verður ekki tekin neinum silkihönskum og því gætu afbrotakonur í Los Angeles átt von á enn frægari klefafélaga á næstunni. „Í dag [gær] er fyrsti dagurinn og þetta hefur gengið bara vel,“ segir Patr- ik Magnús Holden, kokkur á íslenska staðnum Laundromat Café við Elmgade í Kaupmannahöfn. En líkt og á Íslandi hefur nú verið bannað að reykja á öllum veitingastöðum, kaffihúsum og börum í Danmörku. „Danir elska reglur og líkar bara vel að fara eftir þeim,“ bætir Magn- ús við og segir að gestir staðarins hafi lítið kippt sér upp við það að þurfa fara út fyrir hússins dyr til að kveikja sér í sígarettu. Í gær var reyndar rigning í höfuðborginni en hlýtt og reykingafólkið var því bara nokkuð sátt við sinn hlut. „Ég reyki reyndar sjálfur en hef litlar áhyggjur af þessu,“ segir Magnús sem bjóst ekki við því að gripið yrði til ein- hverra séraðgerða í kjölfar bannsins. „Margir barir og skemmtistaðir hafa komið sér upp svona reykrými þar sem hvorki má þjónusta drykki né mat. Ég held að það sé hins vegar ekki mikil þörf fyrir slíkt rými hjá okkur,“ segir kokk- urinn. Hann segist þó hafa heyrt af óánægju vegna bannsins en þeir á Laundromat Café kippi sér lítið upp við þetta. „Eig- endur lókalstaða eru áhyggjurfullir enda hafa gestir staðarins kannski komið þangað í þrjátíu ár og fengið sér bjór og rettu. Okkar viðskiptavinir eru hins vegar meira fólk af ungu kynslóðinni og það reykir ekki jafn mikið,“ segir Magn- ús og bætir við að þetta hafi í að minnsta kosti ekki haft stórvægileg áhrif í dag. „Það er allt brjálað að gera.“ Danska þjóðin hefur verið þekkt fyrir mikla og langa reykingahefð og því gæti þetta bann að mörgu leyti verið einn af síðustu nöglunum í kistu sígarettunnar. Meira að segja drottningin, Margrét Þór- hildur, reykir Prince-sígarettur en Magnús segist ekki vita hvort henni verði gert að lúta sömu lögmál- um og þegnar henn- ar. Ekkert smeykir við reykingabann „Þetta er í fjölskyldunni. Faðir minn var mikill Elvis-maður og ég setti þessa síðu upp til heiðurs honum,“ segir Magnús Rúnar Magnússon, sem stofnaði heima- síðuna Elvis.is í fyrra. Árið 2001 hafði hann sett á fót síðuna Elvis- world.com, fyrir- mynd Elvis.is, sem hefur notið gífurlegra vin- sælda. Voru heimsóknirnar á þá síðu 770 þús- und talsins á þriggja ára tíma- bili og var henni, þegar hún var hvað vinsælust, flett um tvö þús- und sinnum á dag. „Það er mjög stórt myndagall- erí á þeirri síðu og mesta aðsókn- in var í það. Það kom mikið af flettingum upp úr því en þetta hefur bara verið mér til gamans enda er þetta ekkert nema kostnaður,“ segir Magnús Rúnar. Auk myndagallerísins er ýmis- legt áhugavert að finna á Elvis.is og Elvisworld.com. Lagalisti kóngsins er birtur frá A til Ö ásamt fjölda texta, viðtala og lista yfir gullplötur hans. Einnig fylgja með nokkrar uppskriftir, enda var Elvis matmaður hinn mesti þangað til hann gaf upp öndina fyrir nákvæm- lega þrjátíu árum í dag. Magnús seg- ist ekki vera brjálaður Elvis- aðdáandi en þó hafi hann á síð- astliðnum tut- tugu árum komið sér upp safni með yfir eitt hundrað geisladiskum með honum og 20 til 30 DVD- diskum, auk fjölda bola og trefla. „Ég er ekki einn af þessum sem eru að koma fram í búningum. Maður hefur bara gaman af þessu fyrir sig,“ segir hann og nefnir Suspicious Minds, Burning Love og Always on My Mind sem sín uppáhalds Elvis- lög. Elvis-æði í fjölskyldunni Madonna er hvergi nærri dauð úr öllum æðum, en söngkonan hefur löngum verið kunn fyrir að reyna að hneyksla fólk. Á dögunum gekk hún fram af meðfarþegum sínum í flugi á milli Bandaríkjanna og Englands, þegar hún sprautaði sig með vítamínum fyrir allra augum. Heimildir metro. co.uk herma að Madonna hafa ekkert borðað á meðan á sjö tíma fluginu stóð. Talsmaður söngkonunnar vildi ekkert gefa upp um málið, en vítamínskot á borð við þau sem Madonna sást nota eru afar vinsæl þessa dagana hjá stjörn- um eins og Lindsay Lohan og Britney Spears. Gekk fram af farþegum Það er Hannes Pétursson, hagfræðinemi og geimfari, treystir á reiknivélar og geimskip frá HP. HP Compaq 6710b Verð: 149.900 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.