Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 44
 16. ÁGÚST 2007 FIMMTUDAGUR2 fréttablaðið menningarnótt Íbúar Þingholtanna ætla að bjóða gestum og gangandi í vöfflur og kaffi á menning- arnótt. Sveinn Benediktsson er upphafsmaður þessarar skemmtilegu nýjungar sem vonandi verður gerð að hefð hér eftir. „Mér datt þetta í hug þegar ég var staddur ásamt konu minni á Litlu kaffistofunni. Ég sá að stjórn menningarnefndar óskaði eftir nýjum og frumlegum hugmynd- um á dagskrá menningarnæt- ur svo ég tók bara upp símann og sendi þeim tölvupóst á staðnum. Síðan var náttúrulega tekið svona gríðarlega vel í þetta að ég gat ekki svikist undan,“ segir Sveinn Benediktsson viðskiptastjóri hjá Microsoft sem ætlar að bjóða öllum sem vilja í vöfflur og kaffi á heimili sínu og hefur fengið fleiri íbúa Þingholtanna til að gera slíkt hið sama. Sumir íbúar ætla enn frem- ur að bjóða upp á skemmtiatriði svo sem harmónikkuspil og lista- sýningu en hvað ætlar Sveinn að bjóða upp á? „Bara sjálfan mig og sérstaka leynivöffluuppskrift,“ segir hann glaður í bragði. Halda mætti að Sveinn væri hinn mesti vöfflumeistari en svo er ekki. Þetta verður aðeins í þriðja skiptið sem hann bakar vöfflur. „Konan mín segir að mér hafi dottið þetta í hug af því að ég var svo svangur en það eru fleiri ástæður sem liggja að baki. Þegar ég flutti í húsið mitt þá gaf frænka mín mér vöfflujárn. Því fylgdi uppskrift ásamt skipun um að bjóða henni heim í vöfflur. Ég gerði það einu sinni og hef ekki gert það síðan, þannig að segja má að ég hafi farið úr öskunni í eld- inn,“ segir Sveinn sem ætlar nú að bæta um betur og ekki aðeins bjóða frænku sinni, heldur öllum bæjarbúum í heimsókn. Opið verður fyrir gesti á milli klukkan tvö og fjögur á laugar- dag og hafa tíu heimili skráð sig í vöfflubaksturinn. „Það eru reynd- ar færri heimili en ég bjóst við. Ég held að það sé ákveðin feimni í gangi með þetta, fólk veit ekki alveg út á hvað þetta gengur. Reykjavíkurborg útvegar allt hrá- efni þannig að fólk þarf ekki að standa í neinum kostnaði. Einn- ig verða sjálfboðaliðar að störf- um fyrir þá sem þurfa einhverja aðstoð svo fyrirhöfnin verður sem allra minnst. Ég hvet fólk eindreg- ið til að hafa samband við höfuð- borgarstofu og skrá sig. “ Á heima- síðunni www.menningarnott.is er að finna heimilisföng þeirra sem ætla að ljúka upp dyrum sínum á menningarnótt en einnig verða lítil skilti sett út á götur í Þingholt- unum til að auðvelda fólki leitina. mariathora@frettabladid.is Vöfflur í Þingholtunum Allir sem vilja geta gætt sér á heitum vöfflum og kaffi hjá íbúum í Þingholtunum á menningarnótt. Sveinn ætlar að bjóða upp á sérstaka leynivöffluuppskrift á heimili sínu að Baldursgötu 4. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Til stendur að setja heimsmet í hvísli á menningarnótt í lystigarði Einars Jónssonar á Skólavörðu- holti, en til þess þarf að minnsta kosti 1.084 þátttakendur sem taka munu þátt í hvísluleik. „Við erum staðráðin í að setja heimsmet og búin að skrá þátt- töku hjá Heimsmetabók Guinn- ess, sem setti þau skilyrði að við yrðum að hafa formlegan teljara á staðnum,“ segir Diljá Ámunda- dóttir, skapandi verkefnastjóri úr KaosPilot-skólanum í Árósum og sú sem stendur fyrir hvíslu- leiknum ásamt bróður sínum Erni Alexander; myndlistarnema við Listaháskólann í Málmey. „Það var 1. nóvember í fyrra sem fyrsta heimsmetið af þessu tagi var sett af hjólreiðaklúbbi eldri borgara í Kína, en þar hvísl- uðust á 1.083 manns. Við þurfum því einum betur til að slá metið og munum vonandi toppa það létti- lega hér á litla Íslandi,“ segir Diljá bjartsýn og brosmild. „Þátttakendur í leiknum fara inn í ákveðinn hring í hinum draumkennda lystigarði þar sem þeir hvísla að næsta manni sér á hægri hönd, en skrifa svo nafn sitt um leið og þeir ganga út og yfir- gefa leikinn,“ segir Diljá sem neit- ar alfarið að gefa upp leyniorðið sem hvíslað verður. „Sama orðið verður að haldast milli allra hvíslaranna svo metið verði slegið og við vonum að gest- ir menningarnætur virði leikregl- ur og taki þátt af gleði, alvöru og metnaði. Ekki þarf annað í leik- inn en mælgi og heyrn, og við von- umst til að sjá Íslendinga á öllum aldri taka þátt; verðum með götu- leikhús og fleira skemmtilegt í þessum yndisfagra garði Einars Jónssonar,“ segir Diljá sem þver- tekur fyrir að hvíslinu fylgi al- mennur dónaskapur. „Það er vissulega dónalegt að hvísla fyrir framan aðra, en ekki dónalegt að hvísla í hvísluleik. Það er nefnilega aldrei dónalegt að leika sér, svo ef menn langar að hvísla verða þeir bara að stofna til hvísluleiks,“ hvíslar Diljá kát í hvíslarahringnum. thordis@frettabladid.is Hvíslað í heimsmeta- bók Guinness Systkinin Örn Alexander og Diljá Ámundabörn að hvíslast á. FRÉTTABLAÐIÐ/HÖRÐUR Opið hús verður fyrir alla ald- urshópa í Félagsmiðstöðinni að Vesturgötu 7 milli klukkan 13 og 16 á menningarnótt. Þar verður veislukaffi á borðum og hand- verkssala, auk þess sem fólk verður að störfum við tréút- skurð, hannyrðir, myndlist, búta- saum og postulínsmálun. Milli klukkan 13 og 14 verður sung- ið við flygilinn við undirleik Sig- urgeirs Björgvinssonar og milli 14 og 15.30 dansað við undirleik frækins hóps úr félagi harmón- ikkuunnenda. Klukkan 15.30 syngur kór fé- lags aldraða, Söngfuglarnir, undir stjórn Árna Heiðars Karls- sonar. Hægt verður að fara í boccia, billjard og pútt og námsgögn úr ensku og spænsku verða til sýnis svo og munir úr glerbræðslu heimilisins. Sungið við flygilinn og dansað við harmónikkuspil Margt fallegt er búið til í félagsmiðstöðinni á Vesturgötu og þar verður hand- verkssala á laugardaginn. Útskurður er ein af listgreinunum sem stund- aðar eru á Vesturgötu 7.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.