Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 87

Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 87
Eins og allir jafnaldrar hans er hinn þriggja ára gamli Tom Trueman mikill grallari sem á það til að hrasa í öðru hverju skrefi. Ólíkt öðrum gæti hvert fall Truemans verið hans síðasta. Þrátt fyrir að vera aðeins þriggja ára gamall hefur Trueman farið í tíu aðgerðir á höfði. Hann fæddist með svokallað Apert-heilkenni sem veldur óeðlilegum beinvexti í líkamanum. Sjúkdómurinn er afar sjaldgæfur, aðeins eitt af hverjum 65 þúsund börnum fæðast með hann, og misjafnt er hversu skað- vænlegur hann er. Tilfelli True- mans reyndist sérstaklega slæmt og má meðal annars sjá merki sjúkdómsins á útlimum hans og ekki síst á höfðinu. Snemma varð ljóst að höfuðbein Truemans uxu ekki nægilega hratt og fór hann í sína fyrstu aðgerð á höfuðkúpunni aðeins fjögurra mánaða gamall. Síðan þá hefur hann farið reglulega í aðgerðir á höfuðkúpunni til að létta á þrýstingi á heilann en eftir aðgerð í desember á síðasta ári fékk Trueman heiftarlega sýk- ingu vegna títaníum-plötu sem komið hafði verið fyrir í höfði hans. Svo fór að strák- urinn missti rúmlega þriðj- ung höfuðkúp- unnar vegna sýk- ingarinnar og töldu læknar í fyrstu að hann ætti enga mögu- leika á að lifa af. En nú, átta mán- uðum síðar, er Trueman á góðum batavegi og líkja læknar sögu hans við kraftaverk. „Tom er ekki aðeins á batavegi heldur hefur hann það mjög gott,“ segir Steve Wall, sérfræðingur á sjúkrahúsinu í Oxford. Höfuð- kúpa Truemans byrjaði að vaxa á ný strax eftir aðgerðina og hefur hann nú endurheimt tíu prósent af því beini sem hann missti eftir sýkinguna. Hann gengur um með sérsmíðaðan hjálm sem veitir honum lífsnauðsynlega vörn við þeim hættum sem blasa við í hinu daglega lífi. „Það skiptir engu máli hvað ég er að gera, ég er alltaf með annað augað á honum,“ segir móðirin Wendy um strákinn sinn, en fyrir utan hjálminn er það aðeins þunnt húðlag sem hylur heilann. Fyrir vikið fær Trueman ekki að umgangast önnur börn nema undir sérstökum kringumstæð- um, hann gengur í sérhæfðan leikskóla þar sem kennarar hafa hann í gjör- gæslu og þá sefur ávallt ein- hver við hlið Truemans á nótt- unni, til að koma í veg fyrir að hann detti fram úr. „Hann þarf ekki meira en að fá lítinn bolta í höfuðið, þá gæti hann hlotið óbætanlegan heilaskaða,“ segir móðirin sem á þó þann draum heitastan að sonur sinn geti lifað eðlilegu lífi í framtíðinni. Talið er að Trueman muni þurfa að hafa hjálminn næstu árin en læknar eru vongóð- ir um að hann geti tekið hann af sér þegar líkamsvexti er að mestu lokið. Wall segir framhaldið velta á því hversu hratt höfuðkúpan nái að vaxa á ný. „Hann mun þurfa að gangast undir fjölda aðgerða í framtíðinni en miðað við hvernig batinn hefur verið til þessa erum við vongóðir um að strákurinn geti lifað eðli- legu lífi á fullorðinsárunum.“ Lisa Marie Presley syngur dúett með föður sínum heitnum, Elvis Presley, í nýrri útgáfu lagsins In the Ghetto. Tilefnið er þrjátíu ára dánarafmæli rokkkóngsins. Rödd Lisu Marie var bætt inn í lagið sem kom upphaflega út árið 1969 við miklar vinsældir. Nýtt myndband við lagið verður frum- flutt á föstudag þar sem myndum af feðginunum er skeytt saman. „Við höfðum tvær klukkustundir til að setja röddina mína í lagið,“ sagði Lisa. „Morguninn eftir þegar ég heyrði útkomuna brotnaði ég niður og grét þó svo að það sé eitt- hvað sem ég geri aldrei.“ Lisa segist einnig hafa verið ofboðið þegar lag föður hennar, Viva Las Vegas, var notað í aug- lýsingu fyrir Viagra-stinningar- lyfið. „Mér fannst það viðbjóðs- legt. Við eigum ekki réttinn að sumum lögunum hans en ég veit í það minnsta að við hefðum aldrei leyft að þetta yrði gert.“ Lisa, sem er 39 ára, gaf út sóló- plötuna Now What fyrir tveimur árum og stefnir á útgáfu nýrrar plötu á komandi misserum. Feðgin syngja dúett Fann lok sins þann eina rét ta SAMBANDIÐ BLÓMSTRAR! Námsmannaþjónusta Sparisjóðsins Við hjá Sparisjóðnum viljum vera í góðu sambandi við viðskiptavini okkar. Félagar í Námsmannaþjónustunni njóta persónulegrar þjónustu sem er sniðin að þörfum hvers og eins, auk góðra kjara og spennandi sértilboða. Við erum alltaf til í að ræða málin – ef sambandið er gott, gengur allt annað betur líka. Skoðaðu málið betur á www.spar.is til þess að komast í gott samband!
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.