Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 50
16. ÁGÚST 2007 FIMMTUDAGUR8 fréttablaðið menningarnótt
UNIFEM á Íslandi býður gest-
um á framandi kvennaslóðir á
menningarnótt.
Framandi kvennaslóðir í landinu
Langtíburtistan er áfangastaður
UNIFEM Ísland á menningarnótt.
Þar er gestum og gangandi boðið
að sjá, heyra um og snerta á ver-
öld kvenna í þróunarlöndunum.
Samtökin eru í samstarfi við al-
þjóðlega UNIFEM sem er stofn-
un innan Sameinuðu þjóðanna.
Íslenska deildin er frjáls félaga-
samtök stofnuð árið 1989 og eru
félagar um 630 talsins.
„Markmiðið á menningarnótt er
að gefa fólki tækifæri á að kynn-
ast starfseminni og kynna fyrir
fólki hversdagsleika kvenna í þró-
unarlöndunum. Þetta gerum við til
þess að virkja félagana okkar og
kynna starfið fyrir sem flestum,“
segir Sjöfn Vilhelmsdóttir, starfs-
maður UNIFEM á Íslandi.
Í tilefni dagsins verður sett upp
sýning og að sögn Sjafnar geta
allir verið með.
„Við hvetjum eindregið félaga
og áhugasama sem hafa verið í
þróunarlöndum til að taka þátt í
sýningunni með ljósmyndum og
minjagripum. Einnig ef fólk á
búninga frá þessum löndum, væri
gaman að sjá sem flesta mæta
þannig klædda þennan dag,“ segir
Sjöfn.
Samtökin starfa allan ársins
hring, aðallega við fræðslu- og
kynningarstarf.
„Starfið okkar felst í að vekja
athygli á aðstæðum kvenna í
þróunarlöndunum og styðja við
þessa alþjóðlegu jafnréttisbar-
áttu. Við erum með heimasíðu og
gefum út tímarit auk þess að fara
í skóla og koma fram í fjölmiðl-
um. Einnig þrýstum við á íslensk
stjórnvöld til að auka fjárfram-
lög og taka upp kynjasjónarmið,
til dæmis við friðargæslu,“ segir
Sjöfn sem segir samtökin einn-
ig vinna að því að tengjast einka-
geiranum og starfa með grasrót-
arsamtökum og ýmsum kvenna-
hreyfingum.
Í ár verður aðaláherslan á bar-
áttuna gegn kynbundnu ofbeldi.
Alþjóðlegur baráttudagur er 25.
nóvember og munu samtökin
meðal annars gefa út tímarit í til-
efni dagsins.
Sjöfn hvetur sem flesta til að
láta sjá sig á framandi kvenna-
slóðum á menningarnótt. UNI-
FEM Ísland er til húsa í miðstöð
Sameinuðu þjóðanna, Laugavegi
42, þar sem tekið er á móti fólki
kl. 13-17. Sjá nánari upplýsingar á
www.unifem.is.
rh@frettabladid.is
Kvennaslóðir í
Langtíburtistan
Sjöfn Vilhelmsdóttir, hjá UNIFEM Íslandi býður alla velkomna á framandi kvenna-
slóðir á menningarnótt. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR
Þegar Óli Palli kom með hug-
myndina um að halda stórtón-
leika á hafnarbakkanum var
búist við að um 10.000 manns
en 70.000 manns mættu hins
vegar.
„Ég var staddur uppi á Arnarhóli
á menningarnótt árið 2002 og var
að bíða eftir að flugeldasýningin
byrjaði. Þá sé ég að það voru ein-
hverjir tónleikar í gangi við end-
ann á hafnarbakkanum en þar sem
ég stóð uppi á hólnum þá sá ég
hvorki né heyrði hvað var að ger-
ast. Þá fékk ég hugmyndina um að
halda tónleika á þessu sama stað
með almennilegu kerfi og stórum
myndvarpa svo allir myndu heyra
og sjá þó þeir væru langt í burtu,“
segir Óli Palli útvarpsmaður um
upphaf stórtónleikanna á hafnar-
bakkanum. „Hugmyndin var að
hafa þetta í beinni útsendingu á
Rás 2 og bjóða upp á flotta dag-
skrá með nokkrum listamönnum
úr sitthvorri áttinni svo hægt væri
að höfða til allrar fjölskyldunn-
ar. Það sem hékk líka í hausnum
á mér þegar stóð þarna á Arnar-
hólnum var af hverju ríkisútvarp-
ið væri ekki að gera neitt á menn-
ingarnótt. Alls konar bankar og
lítil fyrirtæki voru að bjóða upp á
dagskrá á þessum menningardegi
og ríkisútvarpið, ein merkilegasta
menningarstofnun þjóðarinnar,
var hreint ekki með neitt.“
Eftir helgina var farið á Höfuð-
borgarstofu og hugmyndin rædd.
„Eftir að hafa talað við þetta frá-
bæra fólk á Höfuðborgarstofu
varð niðurstaðan sem sagt sú að
haldnir yrðu stórtónleikar á hafn-
arbakkanum sem tókust bara
miklu, miklu betur en við þorðum
að vona. Við höfðum búist við um
10.000 manns ef heppnin væri með
en það komu ábyggilega um 70.000
manns og síðan 100.000 manns
árið eftir. Þetta hefði aldrei geng-
ið upp nema vegna þess að Höfuð-
borgarstofa hefur mikinn áhuga á
þessu líka. Þetta er samstarf sem
svínvirkar.“
Fram úr björtustu vonum
Óli Palli hefði aldrei búist við því að 100.000 manns kæmu á stórtónleikana á hafnar-
bakkanum. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA