Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 57

Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 57
FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 2007 15menningarnótt fréttablaðið Margir bíða spenntir eftir rús- ínunni í pylsuenda menning- arnætur, flugeldasýningunni. Sýningin er alltaf jafn glæsileg þótt sniðið hafi breyst örlítið. „Í fyrra tókum við upp á þeirri ný- breytni að fara með flugeldasýn- inguna á haf út til þess að gera sjón- arhornið breiðara,“ segir Sif Gunn- arsdóttir, verkefnastjóri viðburða hjá Höfuðborgarstofu. Sama er upp á teningnum í ár og verður flugeld- unum skotið af pramma sem hengd- ur er aftan í varðskipið Tý. „Áður fylgdist maður með frá Miðbakkan- um eða Arnarhóli en í fyrra raðaði fólk sér allt frá hafnarbakkanum og nánast út að Laugarnestanga. Ég var til dæmis við Höfðatún en þar hafði fólk tekið með sér sólstóla og naut sýningarinnar. Þetta er ný og skemmtileg stemning,“ segir Sif sem er greinilega ánægð með breytinguna. „Við heyrðum meira að segja að flugeldarnir hefðu sést frá heimilum í Grafarvogi.“ Það er ekki aðeins sjónræna hliðin sem nýtur góðs af breyt- ingunni heldur hafa umferðarmál einnig batnað til muna. „Fólk getur til dæmis lagt í kringum Borgar- túnið og labbað niður að sjó svo það eru ekki allir að fara upp í bíl- inn á sama punktinum. Umferðin úr bænum dreifist því miklu betur enda gekk hún afskaplega vel og greiðlega í fyrra.“ Flugeldasýningin verður sem fyrr í boði Orkuveitunnar en Hjálp- arsveit skáta í Reykjavík sér um framkvæmdina ásamt aðstoð frá Landhelgisgæslunni. Svava Ólafs- dóttir félagi í skátunum hefur stað- ið í undirbúningi síðustu vikur. „Það er best að ljóstra sem minnstu upp en sýningin verður ekki eins og í fyrra. Þetta kemur allt í ljós,“ segir hún. Það eru þó ekki aðeins flug- eldarnir sem lýsa upp himininn á laugardagskvöldið. „Félagar í siglingaklúbbnum Brokey ætla að skreyta skipin sín með seríum. Þeir munu sigla upplýstir um fló- ann og setja þannig skemmtilegan svip á sýninguna,“ segir Svava að lokum. mariathora@frettabladid.is Ljósasýning á hafi úti Fleiri geta séð flugeldana í ár þar sem þeim verður skotið upp á hafi úti. Sýningin hefst kl. 23.00 og stendur í um tíu mínútur. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Bresk/indverski danshópur- inn Back 2 Back sýnir Freestyle Bhangra á menningarnótt. „Þetta er tegund af dansi sem við höfum sjálf þróað,“ sagði Rana, for- sprakki hópsins, þegar blaðamað- ur sló á þráðinn til hans í London. „Bhangra er byggt að hefðbund- um indverskum dansi frá Punjab á Indlandi sem vanalega er dansað- ur við lifandi tónlist. Þessum hefð- bundna dansi sláum við saman við vestrænan freestyle-dans eða götudans og dönsum við trommu- slátt.“ Í hópnum eru níu dansarar sem allir eru fæddir á Bretlandseyj- um en eiga rætur að rekja til Ind- lands. Hópurinn hefur sýnt víða um Bretland. „Við viljum færa út kvíarnar og höfum dansað á Ítalíu. Okkur fannst Ísland þó kjörinn staður til að byrja á, áður en við förum annað,“ segir Rana. Hann segir dansarana vera afar spennta fyrir menningarnóttinni en eng- inn þeirra hefur komið til Íslands áður. „Við vissum ekki einu sinni hvar Íslands var,“ segir hann og skellir næstum upp úr og bætir við, „sem er fáránlegt þar sem það er svona nálægt okkur.“ Back 2 Back verður á Ingólfs- torgi á menningarnótt og mun sýna ólíka dansa, sem eru sam- bland af bhangra, hiphoppi, free- style, Bollywood og breik-dansi. - keþ Vissu ekki hvar Ísland var Back 2 Back mun dansa á Ingólfstorgi á menningarnótt. SIGLT UM SUNDIN BLÁ Sigling til Viðeyjar er meðal viðburða á menningarnótt. Viðey er viðkomustaður á siglingu um sundin á menningarnótt. Lagt verður í hann frá gömlu höfninni og komið við í Viðey. Leiðsögumaður er Örlygur Hálfdanar- son sem sjálfur er Viðeyingur og mun hann fjalla um það sem fyrir augu ber á siglingunni og í Viðey. Lagt er í hann kl. 12.00. Ferjutollur er 800 kr. fyrir fullorðna og 400 kr. fyrir börn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.