Fréttablaðið - 16.08.2007, Side 6
Landsvirkjun skrifaði í
gær undir orkusamning við ítalska
fyrirtækið Becromal vegna afl-
þynnuverksmiðju sem áætlað er
að rísi við Eyjafjörð á næsta ári.
Þá hafa samningar náðst milli
Becromal og Akureyrar um lóð í
Krossanesi og fjárfestingarkjör.
„Við sáum að starfsemi af þessu
tagi myndi henta mjög vel hér og
höfum átt í viðræðum við Becrom-
al í nokkur ár,“ segir Magnús Þór
Ásgeirsson, framkvæmdastjóri
Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarð-
ar. Becromal er stærsta fyrirtæki
í aflþynnuframleiðslu í Evrópu.
Í verksmiðjunni verða fram-
leiddar rafhúðaðar aflþynnur úr
álþynnum. Aflþynnurnar eru not-
aðar í rafþétta í framleiðslu allra
raftækja. Magnús á von á því að
um 90 störf skapist.
Samningurinn við Landsvirkjun
hljóðar upp á 75 megavött af raf-
magni eða 637 gígavattsstundir á
ári. Það er fimmföld orkunotkun
Eyjafjarðarsvæðisins. Orkan er
nú þegar til staðar svo ekki þarf
að virkja. Össur Skarphéðinsson,
iðnaðarráðherra, segir það, ásamt
þeirri staðreynd að framleiðslan
losi engar gróðurhúsalofttegund-
ir, vera eitt það besta við fram-
kvæmdina.
„Þetta er fyrsti samningur
Landsvirkjunar við orkufrekt fyr-
irtæki sem ekki er hefðbundin
stóriðja,“ segir Bjarni Bjarnason,
yfirmaður orkusviðs Landsvirkj-
unar og formaður stóriðjusamn-
inganefndar.
Bandaríkjastjórn íhugar nú að setja
Byltingarvarðliðana í Íran á lista yfir hryðjuverka-
samtök. Með þessu hyggjast Bandaríkin auka
þrýsting sinn á írönsk stjórnvöld og um leið útvega
sér ástæðu til að gera árás á Íran síðar meir.
Þetta yrði í fyrsta sinn sem hersveit, sem heyrir
undir stjórnvöld í öðru ríki, er sett á þennan lista.
Með því að setja sveitina á lista yfir hryðjuverka-
samtök geta Bandaríkin svipt fyrirtæki, sem
tengjast Byltingarvarðliðunum, fjármagni, auk þess
sem þau geta aukið þrýsting á önnur fyrirtæki sem
eiga viðskipti við fyrirtæki tengd varðliðunum með
því að hóta að saka þau um að styðja hryðjuverka-
starfsemi.
Byltingarvarðsveitirnar eru úrvalssveit hermanna,
sem þó tilheyrir ekki hinum almenna her landsins og
hefur yfir eigin sjóher og flugher að ráða. Byltingar-
varðsveitirnar hafa æ oftar blandað sér í málefni
viðskiptalífsins, einkum að því er varðar olíuvinnslu,
uppbyggingu kjarnorku og byggingastarfsemi.
Minnka ólætin með skemmri
opnunartíma skemmtistaða?
Ertu fylgjandi heræfingum á
Íslandi?
„Við finnum fyrir miklum
mun á sumrin og haustin. Í besta
veðrinu á sumrin eru fáir á
stöðvunum,“ segir Sævar
Pétursson, framkvæmdastjóri
Iceland Spa and fitness.
Hann segir aðsóknina fylgja
opnun skólanna. „Þegar krakk-
arnir fara aftur í skóla á haustin
þá kemst rútínan aftur í gang,
fólk fer að mæta í vinnu og líka
ræktina.“
Sævar segir mætinguna aukast
um 30 prósent á haustin. „Meira
að segja þeir sem mæta fimm
sinnum í viku á veturna detta oft
út í margar vikur á sumrin.“
Landsmenn
latir á sumrinGæti orðið tilefni til innrásar
HUGSAÐU VEL UM HÚÐINA
ÞÚ FÆRÐ DECUBAL
Í NÆSTA APÓTEKI
Vextir á íbúðalán-
um hafa hækkað ört upp á síðkast-
ið og hafa aldrei verið jafnháir hjá
viðskiptabönkunum, eða 6,20 pró-
sent hjá Glitni og 5,95 prósent hjá
Kaupþingi og SPRON. Íbúðalána-
sjóður hefur hækkað vexti úr 4,80
í 4,85 prósent og er þess nú
skemmst að bíða að vextirnir verði
jafn háir og þeir voru árið 2004
áður en viðskiptabankarnir fóru
að bjóða upp á íbúðalán.
Vextir Íbúðalánasjóðs voru 4,70
prósent í byrjun ársins og hafa
hækkað fimm sinnum á árinu.
Vextir sjóðsins voru 4,80 prósent í
júlí 2004 og 5,10 prósent í janúar
2004. Eftir að viðskiptabankarnir
fóru að bjóða upp á íbúðalán sum-
arið 2004 lækkuðu vextir Íbúða-
lánasjóðs niður í 4,15 prósent
þegar þeir voru hvað lægstir. Við-
skiptabankarnir buðu upp á 4,15
prósenta vexti í árslok 2004 og
lengst framan af 2005.
Stýrivextir Seðlabankans hafa
hækkað verulega að undanförnu.
Þeir voru 7,25 prósent í árslok
2004 en 14,25 prósent í júlí 2007.
Sé miðað við lán að fjárhæð 18
milljónir króna sé tekið í dag til 40
ára með vöxtum upp á 5,95 pró-
sent þá er afborgunin 98.412 krón-
ur. Miðað við sömu fjárhæð með
4,85 prósenta vöxtum er afborg-
unin 85.015 krónur á mánuði.
Greiðslubyrðin er því hærri í dag
sem nemur tæpum 13.400 krón-
um. Sé hinsvegar miðað við vexti
upp á 4,15 prósent þá er afborgun-
in 76.917. Munurinn er tæplega 22
þúsund krónur. Ekki er tekið tillit
til verðbólgu.
Friðrik S. Halldórsson, fram-
kvæmdastjóri hjá Kaupþingi,
segir að lán séu dýrari nú en fyrir
nokkrum árum en á móti komi að
verðbólgan sé lægri. Verðbólgan
hækki höfuðstólinn mikið og sú
hækkun geymist en vextirnir komi
til greiðslu strax. Þá hafi fast-
eignaverð hækkað verulega á
örfáum árum.
Friðrik telur að fasteignaverðið
hafi tvöfaldast frá því fyrir þrem-
ur árum. „Fólk þarf nú að taka
stærra lán og það er auðvitað
miklu erfiðara greiðslulega séð en
þegar íbúðaverðið var lægra. Það
hafði staðið í stað mjög lengi og
var full lágt en hafði hækkað
mikið erlendis. Leiðrétting var því
tímabær,“ segir hann.
Lúðvík Elíasson, hagfræðingur
hjá Landsbankanum, segir að
miðað við óbreyttar forsendur
haldist vextir líklega óbreyttir
næstu mánuði og fari svo lækk-
andi.
Vextir á íbúðalán-
um hafa hækkað
Vextir á íbúðalánum hafa hækkað verulega og eru nú komnir upp í um og yfir
sex prósent hjá viðskiptabönkunum. Mánaðarleg afborgun er upp undir 22 þús-
undum króna hærri nú en fyrir þremur árum þegar vextirnir voru lægstir.