Fréttablaðið - 16.08.2007, Page 8
Hversu mörgum starfsmönn-
um Ratsjárstofnunar var sagt
upp á mánudag?
Frá hvaða löndum eru
hermennirnir sem tóku þátt í
heræfingunni Norðurvíkingi í
vikunni?
Erfitt er að fá dýralækna út á
land. Hversu margir dýralækn-
ar eru starfandi á Vestfjörðum?
Eigandi náttúrugarðs
í Slésvík-Holstein í Þýskalandi
græðir á tá og fingri á að leigja
kindur og endur til einkanota.
Garðeigendur geta notað dýrin
til að hirða garðinn, kindurnar til
að bíta grasið og endurnar til að
éta snigla.
Í kjölfar sniglaplágu fékk
dýraleigan pantanir hvaðanæva
af landinu. Að sögn eigenda er
betra að nota endur en eitur til
að losna við snigla.
„Dýrin veita þér líka ókeypis
áburð, svo að þetta eru ekki
slæm kaup,“ segir eigandi
dýraleigunnar.
Vinsælt að leigja
kind eða önd
Grétar Mar Jónsson
alþingismaður óttast að hafnar-
gerð í Bakkafjöru verði nýtt
Grímseyjarferjuævintýri. Mikil
hætta sé á því að fjárveitingar séu
vanáætlaðar og að hafnargerðin
kosti tvöfalt og jafnvel þrefalt
meira þegar upp verður staðið.
Grétar bendir á að 300 metrum
fyrir utan væntanlegan hafnar-
garð sé rif og því þurfi hafnar-
garðurinn að ná út fyrir rifið til að
höfnin verði nothæf. Búast megi
við að straumur beri sand inn í
höfnina og honum þurfi að dæla
burt. Enginn viti hve mikið það
verði.
„Taka þarf með í reikninginn að
fara þarf í eitt mesta landgræðslu-
verkefni sem sögur fara af því
svo mikill sandbylur er þarna á
landi. Þá þarf að gera nýja brú til
að koma grjóti niður á sandana og
bæta veginn frá Bakka upp á Suð-
urlandsveg,“ segir hann.
Grétar bendir á að enginn tíma-
sparnaður verði við ferðalög þótt
höfn rísi í Bakkafjöru. Breytingin
felist í því að ferðamenn verði hálf-
tíma á sjó og aki sjálfir til Reykja-
víkur í stað þess að sigla í tvo tíma
til Þorlákshafnar.
Grétar leggur til að annaðhvort
verði keypt stærri og hraðskreiðari
ferja milli Vestmannaeyja og Þor-
lákshafnar eða tvær minni ferjur
verði keyptar fyrir þessa leið.
Þannig væri auðvelt að fjölga eða
fækka ferðum eftir þörfum.
Á þessu ári hafa
aldrei fleiri bílar farið um
Hvalfjarðargöngin en síðastliðinn
sunnudag. Þá töldu starfsmenn
Spalar um 10.000 bíla fara í
gegnum göngin.
Fleiri bílar fóru um göngin um
síðustu helgi en um verslunar-
mannahelgina. Knattspyrnumót
voru á Sauðárkróki og Siglufirði,
handverkshátíð í Eyjafirði og
síðast en ekki síst Fiskidagurinn
mikli á Dalvík, en þar voru
rúmlega 30.000 manns saman-
komnir. Frá fimmtudegi til
mánudags fóru 40.000 bílar um
göngin.
10.000 bílar á
einum degi
Sex Ítalir voru drepn-
ir í Duisburg í vesturhluta Þýska-
lands aðfaranótt miðvikudagsins.
Lík þeirra fundust í tveimur bif-
reiðum hundrað metrum frá
stærstu lestarstöðinni í borginni.
Mennirnir, sem voru á aldrinum
16 til 38 ára, voru allir skotnir í
höfuðið. Um sjötíu skothylki fund-
ust á morðstaðnum og er talið að
fleiri en einn maður hafi framið
morðin. Sexmenningarnir voru
allir óvopnaðir og höfðu verið að
fagna átján ára afmæli eins þeirra
á pítsustað í nágrenni morðstaðar-
ins. Lögreglan í Duisburg sagðist í
gær ekki vita hverjir frömdu
morðin.
Innanríkisráðherra Ítalíu, Giuli-
ano Amato, greindi frá því í gær
að morðin væru líklega hluti af
fæðardeilu á milli tveggja hópa
innan glæpasamtakanna Ndrang-
heta frá Kalabríu-héraði á Suður-
Ítalíu. Samtökin eru talin valda-
meiri og hættulegri en sikileyska
Cosa Nostran og napólska Camor-
ran. Talið er að Ndranghetan flytji
inn um áttatíu prósent af því kóka-
íni sem flutt er inn til Evrópu.
Amato telur að hinir myrtu hafi
komið úr hópi innan Ndrangheta
sem heitir Pelle-Romeo en að
morðingjarnir hafi komið úr hópi
sem heitir Strangio-Nirta.
Fæðardeilan á milli hópanna er
kennd við smábæinn San Luca í
Kalabríu. Fimmtán morð hafa
verið framin frá því deilan hófst
árið 1991. Innanríkisráðherrann
Amato segir að einn hinna myrtu
hafi tekið þátt í fæðardeilunni
þegar hún hófst. Frá árinu 2000
þar til í desember 2006 voru ekki
framin morð í fæðardeilunni en þá
var Maria Strangio, kona eins höf-
uðpaursins í Stangio-Nirta hópn-
um, myrt. Síðast var framið morð
í deilunni 3. ágúst þegar Antonio
Giorgi var skotinn til bana í San
Luca.
Yfirmaður lögreglunnar í
Kalabríu-héraði, Luigi De Sena,
segir að Ndrangheta-samtökin
stundi umfangsmikla glæpastarf-
semi í Þýskalandi en að hingað til
hafi meðlimir samtakanna haft
hægt um sig í landinu. Yfirvöld á
Ítalíu sögðu í gær að morðin á sex-
menningunum mörkuðu tímamót
því þarlend glæpasamtök hefðu
ekki áður átt í fæðardeilu erlend-
is.
Saksóknari frá Kalabríu, Salvat-
ore Beomi, sagði í gær að búast
mætti við frekari morðum í fæð-
ardeilunni eftir blóðbaðið í Duis-
burg í gær.
Sex ítalskir mafíósar
myrtir í Duisburg
Morðingjarnir hafa enn ekki fundist. Morðin eru hluti af gamalli fæðardeilu á
milli tveggja hópa í kalabrísku Ndrangheta-glæpasamtökunum. Ítölsk yfirvöld
segja að þarlend glæpasamtök hafi ekki áður átt í fæðardeilu erlendis.
Í Tyrklandi krefjast
imamar þess að fá hærri laun
fyrir vinnu sína, sem þeir eru
bundnir við í átján tíma á dag alla
daga vikunnar.
Imamar eru trúarleiðtogar í
moskum, sem stjórna þar
bænahaldi og öðrum helgiathöfn-
um. Þeir þurfa að vakna klukkan
fjögur að morgni til að hefja
bænakall og starfinu lýkur ekki
fyrr en á miðnætti þegar síðustu
bæn dagsins er lokið.
Um 70 þúsund imamar eru í
Tyrklandi. Þeir þiggja laun frá
ríkinu og nema þau innan við 40
þúsund krónum á mánuði. Aðrir
ríkisstarfsmenn fá greidda
yfirvinnu, en ekki imamar.
Imamar krefj-
ast hærri launa
– og farsælan vinnudag!
Rekstrarvörur
- vinna með þér
Réttarhálsi 2 • 110 Reykjavík
Sími: 520 6666 • Fax: 520 6665
sala@rv.is • www.rv.is
Eigum einnig til notaðar vel meðfarnar TASKI gólfþvottavélar,
nýkomnar úr 3ja ára rekstrarleigu frá viðskiptavinum RV.
Tækifæri til að gera ótrúlega góð kaup.
Einstaklega lipur vél sem
hentar á svæðum þar sem
aðkoma er þröng. Vél sem
kemur á óvart!
Reiknuð afköst 1250m2/klst
Lítil og nett, en afkastamikil
vél með innbyggðu hleðslutæki
sem hindrar afhleðslu rafgeyma.
Reiknuð afköst 1935m2/klst
Á tilb
oði í
ágú
st 20
07
U
ni
qu
eR
V
07
07
02
Rúmeni var rekinn úr
vinnu sinni á dögunum eftir að
móðir hans heimsótti hann í
vinnuna. Mínútum áður hafði
maðurinn sagt yfirmanni sínum
að hún væri látin og beðið hann
um pening til að borga fyrir
jarðarför hennar.
Yfirmaðurinn lét hann fá
jafnvirði 20.000 íslenskra króna,
en krafðist peninganna strax aftur
þegar móðirin birtist ljóslifandi. Í
kjölfarið var maðurinn rekinn og
sætir rannsókn lögreglu fyrir
fjársvik.
Rekinn eftir
innlit frá móður