Fréttablaðið - 16.08.2007, Síða 10
„Fólk hefur oftast mjög
takmarkaða þekkingu á öllu því sem viðkemur
lífi og menningu blindra. Þessu viljum við
sem erum blind endilega bæta úr yfir kaffi og
með því,“ segir Bergvin Oddsson, formaður
ungliðahreyfingar Blindrafélagsins Ungblind.
Á laugardag ætla Bergvin og félagar hans í
Blindrafélaginu að bjóða sjáandi í blint
kaffihús, eins og það er
kallað, í húsnæði Blindra-
félagsins í Hamrahlíð. Öll
ljós verða slökkt á
kaffihúsunum og munu
meðlimir í Ungblind sjá
um að þjóna til borðs.
Gestirnir fá svo að reyna
hvernig það er að snæða
bakkelsi og drekka kaffi í
svartamyrkri. „Þetta
verður oft æði skrautlegt.
Þjónarnir hafa því verið
lengi að þurrka af borðun-
um eftir að sjáandi fólk
hefur reynt fyrir sér við
borðhaldið án þess að hafa
sjónina til aðstoðar,“ segir
Bergvin og skellir upp úr við tilhugsunina.
„Svo er það þannig að sjáandi fólk er svo
ótrúlega vant sjónrænu áreiti. Strax og sjónin
er ekki fyrir hendi á það því til að verða
svolítið lumpið og sofnar jafnvel við kaffi-
drykkjuna,“ bætir hann við.
Bergvin segir að kaffihúsið í Blindrafélag-
inu eigi ekki aðeins að gefa fólki kost á að
athuga hvernig það er að snæða án þess að sjá
það sem er á boðstólum heldur geti það einnig
kynnt sér það starf sem fer þar fram.
Kaffihúsið taki til starfa um klukkan tvö á
laugardag í tengslum við dagskrá menning-
arnætur og verði opið til sex. Um að gera sé
fyrir gestina að kynna sér brot af menningu
blindra og reyna fyrir sér með blindrastaf í
heimsókninni.
„Sjáandi fólk er svo skelfilega háð augunum
sínum að það reiknar oft með því að við sem
ekki sjáum séum algerlega ósjálfbjarga. Ef
það ætlar að vísa manni veginn vill það helst
ríghalda í handlegginn á manni og tosa mann
áfram, helst vill það samt bera mann. Verst er
það þó þegar fólk kynnir sig ekki þegar það
heilsar. Það eru ótrúlega margir sem detta inn
í „gettu hver“ leik þegar það hittir blint fólk,“
segir Bergvin sem þykir lítið til þess koma að
þurfa giska á við hvern hann talar.
„Auðvitað vilja samt allir vel en þeir sem
vilja bæta sig í samskiptum og kynnast
menningu okkar betur ættu endilega að kíkja í
kaffi, það verður samt ekki boðið upp á neina
görótta drykki heldur aðeins hefðbundið
bakkelsi í svartamyrkri.“
Blindir veita sjáandi fólki sýn
yfir kaffisopa um helgina
Bergvin Oddsson, formaður ungliðahreyfingar Blindrafélagsins, segir vanþekkingu á málefnum og menn-
ingu blindra algenga. Fólki gefist þó tækifæri til að sjá heiminn með augum blindra á kaffihúsi um helgina.
Frá og með deginum
í gær má ekki reykja á börum,
veitingastöðum og öðrum
opinberum stöðum í Danmörku.
Reykingabannið átti að taka
gildi 1. apríl en var frestað til 15.
ágúst svo veitingahúsaeigendur
gætu undirbúið sig fyrir reyk-
ingabannið. Samkvæmt dönsku
lögunum má fólk reykja í
sérstökum reykherbergjum á
veitingastöðum og einnig á
stöðum sem eru minni en fjörutíu
fermetrar.
Danmörk er þar með komið í
hóp landa ásamt Ítalíu, Möltu,
Noregi, Svíþjóð, Bretlandi og
Íslandi sem hafa bannað reyking-
ar á opinberum stöðum.
Reykingabann
í Danmörku
Mauno Koivisto,
þáverandi forseti Finnlands,
hafnaði tilboði Rússa um að kaupa
Karjalahéruðin sem Finnar misstu
til Rússa í seinni heimsstyrjöld-
inni, að sögn finnska dagblaðsins
Kainuun Sanomat. Verðið væri of
hátt og kaupin myndu stofna
inngöngu Finna í ESB í hættu.
Blaðið hefur eftir ónafngreindum
heimildarmönnum að Jeltsín
Rússlandsforseti hafi gefið til
kynna að Karjalahéruðin væru til
sölu og sömuleiðis rússneski
forsætisráðherrann Gennadij
Burbulis um svipað leyti og
Rússar áttu í samningaviðræðum
við Japana um Kuril-eyjar.
Vildi ekki
kaupa Karjala
Hagkaup hafa innkallað
nokkrar gerðir leikfanga, vegna
galla hjá framleiðandanum Mattel.
Lista yfir leikföngin sem innkalla á
má finna á vefslóðinni hagkaup.is/
innkollun, en leikföngin eru úr
flokkunum Polly Pocket og Doggie
Daycare, auk þess sem leikfanga-
bíll af gerðinni Cars Sarge er inn-
kallaður. Verslunin biður þá sem
keypt hafa slík leikföng að skila
þeim í verslanir sem fyrst gegn
fullri endurgreiðslu eða farga
þeim.
Mattel hefur innkallað alls átján
milljónir leikfanga um allan heim
sem ýmist eru máluð með málningu
sem inniheldur of mikið af blýi eða
í þeim eru seglar sem losna auð-
veldlega. Fram kom á Reuters-
fréttastofunni í gær að öll innköll-
uðu leikföngin hafi verið framleidd
í Kína, og jafnframt að kínversku
leikfangasamtökin hafi vitað af
göllunum í marga mánuði. Þetta er
haft eftir kínverskum embættis-
manni hjá samtökunum sem ekki
vildi láta nafns síns getið.
Sigríður Gröndal, innkaupastjóri
sérvöru hjá Hagkaupum, segir að
lítið af þessum tilteknu leikföngum
hafi verið enn í sölu í verslunum,
þar sem þau séu fæst mjög nýleg og
því flest uppseld. Hún hafði ekki
upplýsingar um hvort mikið hefði
verið um skil.
Hagkaup innkalla leikföng
Árný Sigurðardóttir,
forstöðumaður heilbrigðiseftirlits
Reykjavíkurborgar, segir að nokk-
uð hafi borið á kvörtunum undan-
farið vegna hunda í nágrenni Ell-
iðaánna. Á laxveiðitímabilinu sem
nú stendur sem hæst er bannað að
láta hunda vaða eða svamla um í
ánum en mikið hefur verið um slíkt
í sumarblíðunni undanfarið.
„Við munum á næstu dögum
setja upp skilti við ána til þess að
minna hundaeigendur á það sem
stendur í hundasamþykktinni. Það
er stranglega bannað að fara með
hunda um bakkana og því síður að
láta þá baða sig eða vaða í ánni,“
segir Árný.
Jón Þ. Einarsson veiðivörður í
Elliðaám segir að lausaganga hunda
við Elliðaár hafi truflað veiðimenn
í sumar. „Það er óvenju mikið um
þetta núna og það er vissulega
bagalegt. Ég hugsa að góða veðrið
hafi sitt að segja. Fólk kemur með
hundana sína og sleppir þeim laus-
um á Geirsnefi, þar sem þeir mega
vera lausir, en áttar sig ekki á því
að þeir mega ekki koma nálægt
ánum,“ segir Jón en eins og gefur
að skilja fælist laxinn burt ef hund-
ar eru á sundi í ánni. Jón segir að
stundum hafi þurft að kalla til
hundaeftirlitsmenn vegna þessa.
Þrátt fyrir þetta hefur veiðst
vel í Elliðaánum í sumar og á
hádegi í gær voru 764 laxar komn-
ir á land.
Buslið bannað á
laxveiðitímanum