Fréttablaðið - 16.08.2007, Blaðsíða 28
hagur heimilanna
Fyrstu skóladagarnir eru
framundan í háskólum
landsins. Fréttablaðið
kannaði lauslega hvað það
kostar háskólanema að búa
á stúdentagörðum síns skóla
í vetur. Dýrast er að leigja á
Bifröst og ódýrast að leigja
hjá Keili á varnarsvæðinu.
Næstu daga hefst kennsla í háskól-
um landsins. Háskólanemar hafa
ýmsa kosti í búsetumálum. Allir
háskólanemar og iðnnemar, að
gefnum ákveðnum skilyrðum,
geta sótt um íbúð eða herbergi á
stúdentagörðum. Á flestum stúd-
entagörðum er hægt að leigja allt
frá litlu einstaklingsherbergi í
stærri fjölskylduíbúðir.
Fréttablaðið athugaði hvað kost-
ar annars vegar fyrir einstakling
að leigja litla íbúð á stærðarbilinu
36 til 46 fermetrar og hins vegar
stærri íbúðir, fyrir pör eða ein-
staklinga sem vilja meira pláss, á
bilinu 50 til 60 fermetrar.
Ekki var tekið mið af því sér-
staklega hvort leigusamningur sé
til heils árs eða eingöngu á meðan
skóla stendur né hversu langan
tíma tekur að komast að.
Dýrast var fyrir nemendur á
Bifröst að búa á stúdentagörðum.
Þar kostar 29 fermetra stúdíóíbúð
53 þúsund og 50 fermetra íbúð
kostar 67 þúsund, báðar búnar
húsgögnum. Hjá Félagsstofnun
stúdenta kostar 36 fermetra íbúð á
Eggertsgötu 47 þúsund og 58 fer-
metra íbúð kostar 55 þúsund.
„Þetta er of hátt verð, það er
óeðlilegt ef það er hægt að bjóða
íbúðir á 101-svæðinu í Reykjavík á
lægra verði,“ segir Elín Björg
Ragnarsdóttir formaður íbúaráðs
háskólans á Bifröst.
Elín segir að hækkun, sem var
fyrirhuguð í haust, á fjölskyldu-
íbúðum hafi verið dregin til baka og
verð á minni íbúðum hafi lækkað.
Að sögn Elínar hafa fulltrúar
nemenda ekki fengið haldbæra
skýringu á því hvers vegna leigu-
verð sé hærra á Bifröst en í
Reykjavík og á Akureyri. „Það er
talað um að byggingakostnaður
hafi verið hár og að ekki sé hægt
að bera saman lágreistar þriggja
hæða blokkir og stórar margra
hæða blokkir. Menn verða að huga
að því fyrir hverja er verið að
byggja. Það virðist ekki hafa verið
gert á Bifröst.
Við erum að vinna í því með
skólayfirvöldum að leita leiða til
að lækka verðið enn frekar. Við
höfum fengið vilyrði fyrir því að
verðið hækki ekki á næstunni,
frekar að það lækki ef eitthvað
er,“ segir Elín.
Dýrast fyrir háskóla-
nema að leigja á Bifröst
Klæddist hólkvíðum buxum aðeins þrisvar
Garðar Stefánsson náttúruverndar-
sinni segir ferskar kryddjurtir skemmti-
lega leið til að lífga upp á matinn.
Það er