Fréttablaðið


Fréttablaðið - 16.08.2007, Qupperneq 80

Fréttablaðið - 16.08.2007, Qupperneq 80
KIRK JULISTAHÁTÍÐ 2 0 0 7 11.−19. ágúst FESTIVAL OF SACRED ARTS „É g v i l lo fs yn g j a D ro t t n i “ ALLIR VIÐBURÐIR FARA FRAM Í HALLGRÍMSKIRKJU NEMA ANNAÐ SÉ TEKIÐ FRAM M I Ð AV E R Ð : 1.500/1.000 kr. WWW.KIRK JULISTAHATID.IS – SÍMI 510 1010 – MIÐASALA OPIN 9-17 Í D AG ! FIMMTUDAGUR 16. ÁGÚST 12.00 TÓNLISTARANDAKT 23.00 LE PASSION DE JEANNE D´ARC PÍSLARSAGA JÓHÖNNU AF ÖRK Kvikmynd eftir Carl Theodor Dreyer Tónlist eftir Wilfried Kaets FLYTJENDUR TÓNLISTAR: Wilfried Kaets orgel og Klaus Paulsen tenór Þeir sem vilja kynna sér betur fyrirhugaðar skipulagstillögur á Nónhæð, Kópavogi, farið á slóðina www.ksverktakar.is. Þar finnið þið réttar upplýsingar um verkefnið. Kveðja KS verktakar NÓNHÆÐ Þitt álit skiptir máli Fáðu réttar upplýsingar á www.ksverktakar.is Á morgun hefst tónlistarhá- tíðin Berjadagar á Ólafs- firði. Fram á sunnudag verður mikið um dýrðir þar nyrðra og virðast forráða- menn hátíðarinnar stað- ráðnir í að leggja í harða samkeppni við menningar- nótt í Reykjavík sem verður plássfrek um athygli þessa helgi. Yfirskrift Berjadaga er að þessu sinni „Listsköp- un og náttúra“. Hópi listafólks er þar stefnt til flutnings á tónlist af ýmsu tagi en Fljótamenn heimta sterkan keim af heimaslóðum. Enginn verður svikinn af bláum brekkum og ekki verða síður berin fullþroskuð af lyngi listanna. Hátíðin verður sett annað kvöld með dagskrá í Tjarnarborg kl. 20.30 sem helguð er Jónasi Hall- grímssyni: Fífilbrekka og þýsk rómantík er hún kölluð. Þar setur Diljá Sigursveinsdóttir, listrænn stjórnandi, hátíðarhaldið. Gunnar Guttormsson talar um ljóð skálds- ins en svo flytur átta manna hljóm- sveit lög Atla Heimis Sveinssonar við ljóð Jónasar og Ingibjörg Guð- jónsdóttir syngur. Seinni hluti tón- leikanna er helgaður Robert Shumann, samtímamanni Jónasar. Á laugardag verða tónleikar í kirkjunni í Ólafsfirði: þar flytur kvintett tónlist eftir Cesar Franck og Ludwig van Beethoven. Hefj- ast þeir kl. 20.30. Þau Ari Þór Vil- hjálmson, Ástríður Alda Sigurðar- dóttir, Hildigunnur Halldórsdóttir, Herdís Anna Jónsdóttir og Ólöf Sigursveinsdóttir leika. Á sunnudegi verða tónleikar í Kvíabekkjarkirkju kl. 11 en þar flytja Margrét Hrafnsdóttir söng- kona og Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleikari lög við kveðskap Fljótamanna eftir Sigursvein D. Kristinsson, Jórunni Viðar, Hall- grím Jakobsson og fleiri. Duo Stemma verða með tónleika síðar á sunnudeginum í Ólafs- fjarðarkirkju sem helguð er íslenskum nútímaskáldum, Snorra Sigfúsi Birgissyni, Áskeli Más- syni, Atla Heimi og Sveini Lúðvík Björnssyni. Þau eru Herdís Anna Jónsdóttir víóluleikari og Steef van Oosterhout slagverkskeikari. Lokatónleikar Berjadaga verða þá um kvöldið í Tjarnarborg kl. 20.30, Dimmblátt Berjakvöld, en þar koma allir listamenn hátíðar- innar fram. Guðmundur Ólafsson, leikari og tenór, kynnir viðamikla dagskrá, blöndu af stórmeisturum og innlendum tónskáldum, en salonsveit lýkur dagskránni á létt- um nótum. Meðan á Berjadögum stendur verður sýning á verkum Kristins G. Jóhannssonar í Listhúsi við Ægisgötu 10. Opnar sýningin á laugardegi kl. 14 og er hin fyrsta í Listhúsinu. Kristinn er fæddur 1936 en fór að sýna verk sín 1954. Hefur hann haldið fjölda einkasýn- inga en hann var lengi starfandi við menntunarstörf nyrðra. Var skólastjóri Gagnfræðaskólans á Ólafsfirði í 17 ár og síðan Bröttu- hlíðarskóla á Akureyri í 16 ár. Hann sýnir í Listhúsinu „nostalgíuverk fyrir tilfinningastrengi“. Og allir móar eru bláir af berj- um nyrðra. Undir stjörnuskrýddu þaki kirkj- unnar á Þingeyrum verður haldnir fyrirlestrar og samtal á laugardag og sunnudag. Það er stofnun Árna Magnússonar sem stendur fyrir þinghaldinu en heimamenn hafa lagt sitt til og er sterkur húnvetns- kur blær á samkomuhaldinu. Það hefst upp úr mat á laugardag með erindi Gunnars Karlssonar um upphaf klaustursins á Þingeyrum, en þar er vendipunktur í íslenskri söguskráningu, Helgi Þorláksson bætir í með öðru erindi og loks talar Gottskálk Jensson um Odd munk á Þingeyrum. Þá ætla menn að drekka kaffi. Verður eftir það vikið að Vatnsdælasögu, Hallfreð- arsögu og loks húnvetnskum mannlýsingum fyrr og síðar. Það eru Guðrún Nordal, Torfi Tuliníus og Magnús Hauksson sem hafa framsögu. Á sunnudegi talar Sverrir Tómasson um Þingeyrar sem ritstofu og menningarmiðstöð frá 1133 til 1500 og Þór Hjaltalín spjallar um sögur, landslag og minjar í Vatnsdalnum, svona sem inngang að ferð um söguslóðir undir leiðsögn Jón Torfasonar en hann er bæði kunnugur landi og sögu svæðisins. Þingeyrar eru einn af stóru stöð- unum í menningarsögu miðalda, rétt eins og Reykholt, Hólar, Skál- holt og Oddi. Staðurinn hefur ekki fengið þann sess sem honum ber á síðari tímum og er von að þingið hristi aðeins upp í mönnum í Húna- þingi og hann hefjist aftur á þann stall sem honum ber. Skráning á þingið fer fram á http://arnastofn- un.is og er öllum heimill aðgangur. Þingað á Þingeyrum
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.