Fréttablaðið - 16.08.2007, Page 81
Gerðarsafn og Listasafn ASÍ grípa bæði til
eldri safneignar þegar kemur að sýningarhaldi
nú í sumar: Safn Alþýðusambandsins við
Freyjugötu státar af hinni glæsilegu gjöf Ragn-
ars Jónssonar sem kenndur var við smjörlíkis-
gerðina Smára en hann lagði ASÍ til mikinn
fjölda mynda eftir alla helstu listamenn á fyrri
hluta síðustu aldar og myndar sú gjöf kjarnann
í safninu, en það hefur hin síðari ár einbeitt sér
að verkum unnum á pappír.
Gerðarsafn varð líka til fyrir höfðinglegar
gjafir, bæði frá ættingjum Gerðar Helgadóttur
og þeirra hjóna Barböru og Magnúsar Á. Árna-
sonar, en þar er líka vistað hið glæsilega safn
hjónanna Ingibjargar og Þorvalds í Síld og fisk.
Þau voru rétt eins og Ragnar og Björg kona
hans ástríðufullir safnarar á íslenska myndlist
og gátu leyft sér það í skjóli atvinnurekstrar.
Um helgina verður hnykkt á verkum úr þess-
um söfnum, en þau eru bæði uppspretta sýn-
inga sem gefa fjölbreytt snið af íslenskri mynd-
list á síðustu öld. Í Ásmundarsal á Freyjugötunni
eru perlur eins Fjallamjólk Kjarvals en einnig
verk yngri myndlistarmanna á borð við Birgi
Andrésson og Olgu Bergmann. Þar mun söng-
hópurinn Evridís skemmta á laugardag með
söng kl. 16 og aftur kl. 20.
Í Gerðarsafni eru margir kjörgripir sem
Þorvaldur og Ingibjörg komust yfir á sínum
mektarárum. Á sýningunni gefst því gott tæki-
færi til að sjá nokkur af helstu meistaraverk-
unum úr þessu merkasta einkasafni landsins í
bland við fáséðari gersemar. Meðal þeirra má
nefna verk frá fyrri hluta ferils Kjarvals,
skúlptúra eftir Gerði Helgadóttur, Einar Jóns-
son, Sigurjón Ólafsson og fleiri. Þá er á sýning-
unni leyndardómsfullt skúlptúrverk eftir Kjar-
val – listilega máluð brennivínsflaska! Ekki er
kunnugt um annað verk af þessu tagi eftir
þennan mikla meistara.
Það var alla tíð vilji þeirra hjóna að safn
þeirra væri til sýnis svo almenningur fengi
notið verkanna. Í samræmi við það var þetta
merka safn falið Gerðarsafni til varðveislu og
eru verk úr því sýnd reglulega. Báðar sýning-
arnar standa fram í september þótt gott tæki-
færi verði um helgina að skoða þær.
Verk úr söfnum Ragnars og Þorvalds
Auglýsingasími
– Mest lesið