Fréttablaðið - 16.08.2007, Qupperneq 98
Það er
Valsmenn eru
langhættulegastir af liðum
Landsbankadeildarinnar þegar
kemur að uppsettum atriðum en
þetta kemur í ljós þegar tölfræðin
er skoðuð yfir mörk skoruð eftir
horn, aukaspyrnur, innköst eða
vítaspyrnur í fyrstu tólf umferðum
sumarsins.
Valsmenn hafa skorað 15 af 26
mörkum sínum í
Landsbankadeildinni í sumar undir
þessum kringumstæðum sem þýðir
að 58 prósent marka liðsins hafa
komið eftir föst leikatriði. Það
vekur enn meiri athygli að þar af er
aðeins ein vítaspyrna og hin fjórtán
mörkin hafa komið eftir
aukaspyrnur (6), horn (5) og innköst
á síðasta þriðjungi vallarins (3).
Valsmenn búa vel því þeir hafa
innan sinna raða góða spyrnumenn
í þeim Guðmundi Benediktssyni,
Baldri Aðalsteinssyni og Rene
Carlsen sem allir hafa átt þrjár
stoðsendingar í föstum leikatriðum.
Guðmundur hefur einnig átt fjórar
sendingar til viðbótar úr horni eða
aukaspyrnum sem hafa verið fram-
lengdar og hafa í kjölfarið skilað
marki og hefur því lagt upp sjö af
þessum fimmtán mörkum liðsins
úr föstum leikatriðum.
Markahæsti maður deildarinnar,
Helgi Sigurðsson, hefur líka verið
hættulegur í hornum og aukaspyrn-
um en fimm marka hans hafa komið
eftir föst leikatriði, tvö eftir horn,
tvö eftir aukaspyrnu og loks eitt úr
víti. Víkingurinn Sinisa Kekic er
einnig með fimm mörk eftir föst
leikatriði en fjögur af þeim eru
vítaspyrnur sem hann hefur nýtt
örugglega.
Fylkir og HK hafa skorað fæst
mörk eftir föst leikatriði, þrjú mörk
hvort lið, en hlutfallslega er það
topplið FH-inga sem skorar fæst
mörk úr uppsettum atriðum því
aðeins 20,8 prósent marka liðsins í
sumar (5 af 24) hafa komið eftir
föst leikatriði. Breiðablik, Keflavík
og Fylkir skora líka öll yfir 70 pró-
sent marka sinn í opnum leik.
Skagamönnum gengur aftur á
móti vel að verjast föstum
leikatriðum en mótherjar þeirra
hafa aðeins skoraði 3 slík mörk þar
af hafa tvö þeirra komið úr
vítaspyrnum. Eina markið sem
eftir stendur skoraði Valsmaðurinn
Dennis Bo Mortensen eftir innkast
í upphafi leiks liðanna á Akranesi
19. júní.
Víkingar eru það lið sem hefur
fengið á sig flest mörk úr föstum
leikatriðum en 12 af 19 mörkum
mótherja þeirra hafa komið úr
uppsettum hlutum leiksins.
Það eru í rauninni aðeins þrjú
lið deildarinnar sem koma út í
plús þegar reiknuð er út marka-
tala eftir mörk skoruðum úr föst-
um leikatriðum. Valsmenn hafa
skorað 10 mörkum fleiri en móth-
erjar sínir úr föstum leikatriðum,
Skagamenn eru með fimm mörk-
um fleiri en andstæðingar sínir
og FH-ingar eru síðan með eitt
mark í plús. Blikar standa á jöfnu
en hin sex lið deildarinnar eru í
mínus.
Valsmenn hafa skorað fimmtán mörk úr föstum leikatriðum, sjö mörkum meira en næsta lið og tíu
mörkum meira en mótherjar þeirra hafa skorað á þá eftir horn, aukaspyrnur, innköst eða úr vítaspyrnum.
Blikar þurfa að yfirbuga
grýlur í hverjum deildarleik
þessa dagana. Í síðasta
deildarleik unnu þeir sinn fyrsta
sigur á Suðurnesjum síðan 1983
þegar þeir unnu Keflvíkinga 3-0
og í kvöld mæta þeir Val í
Laugardalnum þar sem þeir hafa
ekki unnið leik í efstu deild síðan
21. júní 1981.
Blikar unnu þá 3-1 sigur á KR-
ingum á Valbjarnarvelli þar sem
Sigurjón Kristjánsson skoraði tvö
marka liðsins. Síðan þá hafa
Blikar spilað 26 leiki í röð í efstu
deild í Laugardalnum án þess að
fara heim með öll þrjú stigin en
marga þessa leiki léku Blikar á
Valbjarnarvelli eða gömlu
Hallarflötunni sem nú hýsir
gervigrasið.
Sigurlausir í
Dalnum í 26 ár
KR-ingar heimsækja
Víkinga í Víkina í kvöld í miklum
fallbaráttuslag í 13. umferð
Landsbankadeildar karla.
Víkingar unnu fyrri leik liðanna 2-
1 á KR-vellinum sem var fyrsti
sigur liðsins á KR í fjórtán ár en
þeir hafa aldrei unnið þá svart-hvítu
í Víkinni frá því að þeir fóru að spila
heimaleiki sína í Fossvoginum 1988.
KR-ingar hafa unnið fimm af sex
deildarleikjum liðanna á
Víkingsvelli, þeir hafa farið með öll
þrjú stigin í leikjum sínum þar
undanfarin sextán ár og einu töpuðu
stig KR-inga í Víkinni eru í 1-1
jafntefli 15. júlí 1990.
Trausti Ómarssson jafnaði þá
leikinn fyrir Víkinga með skalla
korteri fyrir leikslok eftir
aukaspyrnu Harðar Theódórssonar
sem er einmitt aðstoðarmaður
Magnúsar Gylfasonar í dag.
Víkingar unnu KR-inga reyndar 3-
2 á heimavelli 11. ágúst 1993 en sá
leikur var spilaður á
Laugardalsvellinum en ekki í
Víkinni.
KR hefur aldrei
tapað í Víkinni
Meistaradeild Evrópu
Enska úrvalsdeildin
Ensku liðin spiluðu sína
fyrstu leiki í forkeppni
Meistaradeildar Evrópu í
gærkvöldi. Bæði áttu Liverpool og
Arsenal erfiðar viðureignir á
útivelli fyrir höndum en komust vel
frá verkefninu. Liverpool vann
Toulouse í Frakklandi, 1-0, og
Arsenal bar sigurorð af Sparta
Prag, 2-0.
Nýliðinn hjá Liverpool, Andryi
Voronin, skoraði eina mark þeirra
ensku með glæsilegu skoti af 25
metra færi. Rafael Benitez gerði
margar breytingar á liði sínu frá
síðustu helgi og var rólegur í
leikslok. „Þetta er ekki búið enn
enda aðeins eitt mark komið. Við
vitum að Toulouse er með gott lið
sem beitir skyndisóknum og það
munu það gera á Anfield.“
Cesc Fabregas og Aleksandr
Hleb skoruðu mörk Arsenal í Tékk-
landi fremur seint í leiknum. Ars-
enal átti erfitt uppdráttar framan
af og var nærri lent undir á 9. mín-
útu þegar Jan Rezek skaut í stöng-
ina. En sigur Arsenal var sann-
gjarn, þegar á heildina er litið.
BATE vann FH í síðustu umferð
og mætti Steaua Búkarest í Hvíta-
Rússlandi. FH náði þar jafntefli og
það gerðu Búlgararnir líka en leikn-
um lauk með 2-2 jafntefli.
Ljóst er að eitt lið frá Skandin-
avíu verður í riðlakeppni Meistara-
deildarinnar og líklega verða það
Noregsmeistarar Rosenborg. Liðið
vann 3-0 sigur á Tampere United í
Finnlandi.
Liverpool og Arsenal
í góðri stöðu
Englandsmeistarar
Manchester United eru enn án sig-
urs eftir fyrstu tvo leiki liðsins á
tímabilinu í Englandi. Í gær gerði
liðið 1-1 jafntefli gegn Hermanni
Hreiðarssyni og félögum í
Portsmouth. Á sama tíma vann
Chelsea dýrmætan útisigur á
Reading eftir að hafa lent undir.
Chelsea er eitt þeirra liða sem eru
enn með fullt hús stiga.
Heiðar Helguson var í byrjun-
arliði Bolton í fyrsta sinn og þakk-
aði fyrir sig með því að skora gegn
sínum gömlu félögum í Fulham á
Craven Cottage. Það dugði ekki til
því Fulham vann leikinn, 2-1.
Paul Scholes kom United yfir
gegn Portsmouth með fallegu
skoti eftir undirbúning Carlos
Tevez sem var í liði United í
fjarveru Waynes Rooney. En
Benjani skoraði í sínum öðrum
leik í röð og bjargaði stigi fyrir
sína menn með skalla snemma í
síðari hálfleik.
Cristiano Ronaldo fékk rautt
spjald í leiknum sem og Sulley
Muntari.
Ívar Ingimarsson var í byrjun-
arliði Reading og átti stoðsending-
una sem gaf mark liðsins gegn
Chelsea. Andre Bikey færði sér
mistök Petr Cech markvarðar í
nyt og kom Reading yfir.
Chelsea skoraði tvívegis á
þriggja mínútna kafla í síðari hálf-
leik og tryggði þar með sigurinn.
Brynjar Björn Gunnarsson kom
inn á sem varamaður á 74. mínútu
í leiknum.
Manchester City er einnig með
fullt hús stiga eftir 1-0 sigur á
Derby og Sunderland og Birming-
ham gerðu 2-2 jafntefli. Þá vann
Wigan 1-0 sigur á Middlesbrough.
Manchester United enn án sigurs