Fréttablaðið - 07.09.2007, Side 34
BLS. 6 | sirkus | 7. SEPTEMBER 2007
H önnuðirnir Gunni og Kolla hanna undir merkinu Ander-sen & Lauth. Þau eru á fullri
ferð með merkið en þau sýndu fatnað
úr vorlínunni 2008 í Øxnehallen í
Kaupmannahöfn.
Þetta var í annað skipti sem þau
sýna Andersen & Lauth í Øxnehallen,
því í febrúar sýndu þau haustlínuna
2007. Sú lína er nú þegar í sölu í
Noregi, Svíþjóð og Danmörku.
„Þetta gekk rosalega vel. Vorlínan
okkar verður seld á enn þá fleiri stöð-
um en við seldum hana einnig til
Frakklands, Írlands, Englands, Rúss-
lands, Þýskalands og Kúvæt,“ segir
Kolla.
Línan er þó ekki bara seld í
útlöndum því dömulína Andersen &
Lauth er seld í versluninni Maia á
Laugaveginum og herralínuna er
hægt að kaupa í nýrri verslun sem
heitir Bask og er á Laugavegi.
Yfirbragðið á Andersen & Lauth er
gamalt en fyrr á árum var verslun með
sama nafni rekin í Reykjavík. Þess má
geta að áður en Gunni fæddist fór
faðir hans í verslun Andersen & Lauth
og lét sérsauma á sig föt.
„Okkur finnst gamli tíminn spenn-
andi og vildum halda í hann. Nafnið
tengir fatalínuna við Ísland og það
sem okkur þykir vænt um. Við notum
til dæmis gamaldags handstungur og
mikið af smáatriðum sem gera fötin
sérstök,“ segir hún.
Dömulínan er á rómantískum nótum
með tilheyrandi pallíettum, perlum í
bland við grófari hluti. Hún er framleidd
víðs vegar um heiminn, til dæmis í Tyrk-
landi, Indlandi, Portúgal og í Kína.
Sýningarbás Andersen & Lauth
vakti mikla athygli í Kaupmanna-
höfn. Hann prýddu gömul
húsgögn, myndarammar
og lampar.
„Við gerðum básinn
sjálf með hjálp góðra
vina,“ segir hún.
Sátuð þið heima
á kvöldin við fönd-
ur?
„Það má eigin-
lega segja það,“
segir Kolla og
hlær.
Eftir sýning-
una í Øxnehallen
fékk Andersen &
Lauth góða
umfjöllun í
sænskum og
dönskum blöðum
og hafa stílistar ytra
verið duglegir við að fá
lánuð föt frá þeim í
myndatökur. Það er engin
lognmolla í kringum þau en
Gunni er þessa stundina í
París þar sem Andersen &
Lauth verður til sýnis um
helgina.
martamaria@frettabladid.is
GUNNI OG KOLLA HJÁ ANDERSEN & LAUTH Á BLÚSSANDI SIGLINGU
Selja fötin til tíu landa
HJÓNIN GUNNI OG
KOLLA HÖNNUÐIR
ANDERSEN & LAUTH
SÝNINGARBÁS ANDERSEN
& LAUTH Í KAUPMANNAHÖFN
Básinn vakti mikla athygli.