Fréttablaðið - 10.12.2007, Blaðsíða 72
GÓÐAN DAG!
Sólarupprás Hádegi Sólarlag
Reykjavík
Akureyri
Heimild: Almanak Háskólans
SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is
DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000
BAKÞANKAR
Þráins
Bertelssonar
Í dag er mánudagurinn 10.
desember, 344. dagur ársins.
11.06 13.20 15.34
11.19 13.05 14.51
Sjaldan eða aldrei hefur önnur eins samstaða ríkt meðal
íslensku þjóðarinnar. Meira en
tveir þriðju hlutar landsmanna
styðja ríkisstjórnina. Ég skamm-
ast mín pínulítið fyrir þann
öfuguggahátt að styðja ekki
ríkisstjórn sem ekki hefur gert
mér nokkurn skapaðan hlut
ennþá. Ég erfi það ekki við stjórn-
ina í heild þótt minnihluti hennar,
nánar tiltekið tveir af tregustu
ráðherrunum, hafi varað þjóðina
við mér á bloggsíðum sínum sem
því miður alltof fáir nenna að
lesa. Stuðningur við ríkisstjórnir
er bara ekki mín deild.
ÞAÐ er skemmtileg tilviljun – ef
um tilviljun er að ræða – að álíka
margir og trúa á ríkisstjórnina
trúa á dulræn fyrirbæri sam-
kvæmt nýrri rannsókn sem okkar
ástsæli dularsálfræðingur Erlend-
ur Haraldsson hefur látið gera.
Sjálfur trúi ég jafn kappsamlega
á dulræn fyrirbrigði og ég er van-
trúaður á jarðnesk yfirvöld.
Stundum er ég meira að segja
sannfærður um að lífið í heild sé
dulrænt fyrirbæri og valdsmenn
heimsins vanþroskaðar sálir sem
hafa endurfæðst til að fá síðasta
séns til að ná nauðsynlegum
þroska samkvæmt PISA-könnun
á himnum.
SAMSTAÐA þjóðarinnar er
notaleg upplifun fyrir mann sem
fæddist í blóðugri heimsstyrjöld
og ólst upp í köldu stríði. Þessi
nýfengna samstaða er svo nota-
leg að hún minnir á kurteist sam-
kvæmi þar sem allir eru bláedrú
og engum dettur í hug að segja
neitt sem orkað gæti tvímælis
rétt eins og það ku ekki vera til
siðs að nefna snöru í hengds
manns húsi.
TIL að spilla ekki samkvæminu
ætla ég því ekki að fara að varpa
fram spurningum um hvað sé
passlegt að öryrkjar liggi lengi
dánir heima hjá sér áður en ein-
hver gáir að þeim. Ég ætla heldur
ekki að minnast á hvort við eigum
heldur að sækja um að fá að kom-
ast aftur undir norsku krúnuna
eða ganga í Evrópusambandið
eða halda áfram að þrauka ein í
okkar sérvisku. Þaðan af síður
kemur til greina að impra á því
hvort vísitölutryggingarnauðg-
unin hafi staðið nógu lengi. Eða
hvort kynjamisrétti sé fyrirbí.
NÚNA er jólafasta og þjóðin
situr á friðarstóli og trúir mest á
dulræn fyrirbrigði og næstmest
á ríkisstjórnina. Notalegur tími.
Er á meðan er.
Á friðarstóli