Fréttablaðið - 10.12.2007, Blaðsíða 58
34 10. desember 2007 MÁNUDAGUR
Sambönd í kvikmyndaborginni Hollywood
eru þekkt fyrir að endast skemur en önnur
sambönd. Ansi mörg stjörnupör slitu sam-
vistum á árinu þótt sumir skilnaðir hafi
vissulega vakið meiri athygli en aðrir.
Popp-prinsinn Justin Tim-
berlake og leikkonan
Cameron Diaz hættu
saman í byrjun árs eftir
fjögurra ára samband.
Viku síðar sást til þeirra í
hávaðarifrildi í stórri
veislu. Síðan virðist allt
vera fallið í ljúfa löð og
bæði hafa fundið sér nýjan
maka. Justin er byrjaður
með leikkonunni Jessicu
Biel og Diaz hefur verið
orðuð við tónlistarmann-
inn John Mayer og leikar-
ann Bradley Cooper.
Leikaraparið Heath Ledger og Michelle Williams
kynntist við tökur á myndinni Brokeback Mountain.
Myndin hlaut
frábæra dóma,
bæði voru til-
nefnd til Ósk-
arsverðlauna
fyrir leik sinn
í henni og þau
eignuðust
fljótlega
dótturina
Matildu
sem nú er
2 ára. Þau
hættu saman í september
eftir þriggja ára sam-
band og Heath hefur
verið duglegur að
þræða skemmtistaði
New York borgar
síðan.
Óheillakrákan Pete
Doherty og fyrirsætan Kate
Moss trúlofuðu sig í júní.
Fljótlega fór að halla undan
fæti og Pete flutti út af
heimili Kate í Lundúnum
eftir að sögur um framhjá-
hald hans fóru á kreik. Mán-
uði síðar virtist hann fullur
eftirsjár og lýsti því yfir í
Daily Mirror að hann elsk-
aði stelpuna „af öllu
hjarta“.
Kate Hudson og Owen Wil-
son hittust, líkt og Heath og
Michelle, við tökur á kvik-
mynd. Það var gamanmynd-
in You, Me & Dupree. Kate og
Owen byrjuðu að hittast eftir að hún
skildi við eiginmann
sinn Chris Robinson
en sambandið entist
ekki og þau héldu
hvort í sína áttina í
júní. Hudson byrjaði
með leikaranum Dax
Shephard og Owen
reyndi að fremja
sjálfsvíg í kjölfarið.
Margir urðu hissa
þegar Jessica Simp-
son og John Mayer
byrjuðu að nudda
saman nefjum enda
mjög ólíkir einstakl-
ingar þar á ferð.
John játaði ást sína á
Jessicu fyrir Ryan
Seacrest. Hrifningin
virtist vera gagn-
kvæm og Jessica fór
með sínum heitt-
elskaða í tónleika-
ferð um Bandaríkin.
Þau hættu saman í
maí, byrjuðu saman
aftur og slitu endan-
lega samvistum í
júní.
Bon Jovi-meðlimurinn
Richie Sambora nældi sér í
þokkadísina Denise
Richards eftir að hafa sagt
skilið við eiginkonu sína,
Heather Locklear, en hún
var einmitt góð vinkona
Denise. Denise var nýskil-
in við leikarann Charlie
Sheen og sagðist ekki hafa
verið að leita að ástinni
þegar skötuhjúin „fundu“
hvert annað. Sambandið
entist í ár og parið hætti
saman í maí.
Leikkonan Anne
Heche skildi við Ellen
DeGeneres eins og
frægt er orðið og tók
því næst saman við
karlmann, kvikmynda-
tökumanninn Coley
Laffoon. Þau giftu sig
en skildu eftir að Anne
fór að leika í hinum vin-
sælu þáttum Men in
Trees og varð ástfangin
af mótleikara sínum,
James Tupper. Mikið
var fjallað um skilnaðinn í blöð-
um vestanhafs og hjónin fyrr-
verandi börðust fyrir opnum
tjöldum, meira að segja um hús-
gögnin.
Rapparinn Sean „Diddy“
Combs og kona hans til 10 ára,
Kim Porter, hættu saman í júlí,
aðeins sex mánuðum eftir að
þau eignuðust tvíburadætur.
Fyrir
áttu
þau
níu ára son. Kim segir að
Diddy hafi haldið framhjá og
átt barn með annarri konu.
Þrátt fyrir það hafa þau
haldið vinskap og Kim
mætti meira að segja í
afmælisveislu kappans í
síðasta mánuði.
Fyrirsætan Dita Von
Teese skildi við rokkar-
ann Marilyn Manson á
árinu sökum „óleysanlegs
ágreinings“ eftir árs
hjónaband. Vinir parsins
létu þó hafa eftir sér að það
hefði verið partístand Man-
sons og samband hans við
leikkonuna Evan Rachel Wood
sem gerði út af við hjónaband-
ið. Manson hefur sagt að hjóna-
bandið hafi „eyðilagt sig“.
Stjörnuskilnaðir ársins 2007
„Tíminn er svo fljótur að líða. Mér
finnst þetta ekki hafa verið tólf
ár,“ segir söngkonan Mjöll Hólm
sem hefur gefið út sína fyrstu
plötu síðan 1995.
Um tónleikaplötu er að ræða
sem var tekin upp í Kaffileikhús-
inu í október 2002. „Það stóð ekk-
ert til að gefa þetta út en með tíð
og tíma hefur fólk verið að hvetja
mig til að gefa þetta út. Þetta eru
allt þekkt lög sem eru bæði sungin
á ensku og íslensku, lög sem söng-
konur eins og Petula Clark og Lisa
Minelli hafa sungið,“ segir Mjöll,
sem ber hljóðfæraleikurnum á
plötunni vel söguna. Þeir eru Árni
Scheving, Carl Möller, Alfreð
Alfreðsson, Þorleifur Gíslason og
Jón Páll Bjarnason. Að auki syng-
ur Raggi Bjarna eitt lag á plötunni
en hann var gestasöngvari á tón-
leikunum.
Hægt er að hlusta á tóndæmi af
plötunni á heimasíðunni www.
mholm.net. - fb
Sú fyrsta í tólf ár
MJÖLL HÓLM Söngkonan Mjöll Hólm
hefur gefið út nýja plötu. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Vi
nn
in
ga
r v
er
ða
a
fh
en
di
r h
já
B
T
Sm
ár
al
in
d.
K
óp
av
og
i.
M
eð
þ
ví
a
ð
ta
ka
þ
át
t e
rt
u
ko
m
in
n
í S
M
S
kl
úb
b.
1
49
k
r/
sk
ey
tið
.
SMS
LEIKUR
SENDU SMS BTC BOF
Á NÚMERIÐ 1900
ÞÚ GÆTIR UNNIÐ!
VINNINGAR ERU DVD MYNDIR,
VARNINGUR TENGDUR MYNDINNI
OG MARGT FLEIRA!
KEMUR Í VERSLANIR
13. DESEMBER
Auglýsingasími
– Mest lesið