Fréttablaðið - 10.12.2007, Blaðsíða 62
38 10. desember 2007 MÁNUDAGUR
sport@frettabladid.is
Microsoft samningur og frír HP netþjónn
Með hverjum 10 Microsoft leyfum* fylgir nú HP ProLiant ML150
netþjónn frítt með, ásamt uppsetningu!
Einstakt tilboð til áramóta
*nánar á http://www.ok.is/msproliantfd
10+
Opin kerfi ehf. • Höfðabakka 9 • 110 Reykjavík • Sími 570 1000 • Fax 570 1001 • www.ok.is
P
IP
A
R
•
S
ÍA
•
7
2
3
9
5
www.rainbow.is
KR-konur fengu mikinn liðstyrk á föstudag-
inn þegar fyrrverandi landsliðsmarkvörður-
inn María Björg Ágústsdóttir tók hanskana af
hillunni og ákvað að spila með liðinu næsta
sumar. María Björg hefur ekkert spilað síðan
sumarið 2005.
„Ég er búin að búa erlendis í fimm ár og
hef verið þar í námi. Ég var fjögur ár í Boston
og síðan eitt ár í Englandi. Í rauninni gafst
ekki tækifæri til þess að spila fótbolta því
ég var ekki á Íslandi en svo leyfði námið
það ekki heldur,” segir María Björg sem var
á fullu í Harvard-skólanum, með KR og í
landsliðinu í nokkur ár og það reyndi mikið
á. „Þetta var rosalegt álag og orðið svolítið
mikið með námi. Þetta var fín pása en ég
flutti heim til Íslands í ágúst og er búin að
koma mér fyrir hér,” segir María Björg sem
hefur eitt ákveðið markmið. „Ég ákvað að
taka eitt ár í viðbót ekki síst vegna þess að
ég hef ekki ennþá orðið Íslandsmeistari í
meistaraflokki. Ég verð að ná því áður en ég
hætti,” segir María Björg sem á að baki
80 leiki með Stjörnunni frá 1997 til
2003 og spilaði síðan 16 leiki með
KR 2004 og 2005. Hún var orðin
aðalmarkvörður Garðabæjarliðsins
aðeins fimmtán ára gömul.
María hefur ekki spilað mikið
fótbolta undanfarin tvö ár
en áhuginn kviknaði aftur í
Englandi.
„Það var þjálfaralaust
áhugamannalið í Oxford
sem ég spilaði aðeins með
og það voru eiginlega
stelpurnar í því liði sem
fengu mig til þess að fá
áhugann aftur. Eftir að hafa spilað með þeim
nokkra leiki og þá hugsaði ég hvort ég ætti
ekki að gefa þessu tækifæri aftur,” sagði
María Björg sem hjálpaði meðal annars
Oxford-skólanum að leggja erkifjendurna
í Cambridge í vítakeppni í hinum fræga
Varsity-leik. María hefur leikið 37 leiki fyrir
íslenska landsliðið og þar af sjö fyrir A-liðið
en hún var varamarkvörður Þóru Bjargar
Helgadóttur í mörg ár. „Landsliðið er
bara bónus. Ég myndi ekki segja
nei ef ég væri valin en það er ekki
í sjálfu sér markmiðið að komast
aftur í landsliðið. Markmiðið er
bara að verða Íslandsmeistari og
ég er búin að segja öllum það. Ég
hef aldrei verið jafnákveðin í því
að vinna þennan titil,” segir María
Björg að lokum.
MARÍA BJÖRG ÁGÚSTSDÓTTIR: FYRRVERANDI LANDSLIÐSMARKVÖRÐUR TEKUR HANSKANA AF HILLUNNI
Hef ekki ennþá orðið Íslandsmeistari
BADMINTON Badmintonkonan
Ragna Ingólfsdóttir á eftir að
keppa á tveimur alþjóðlegum
mótum áður en árið er á enda og
það fyrra hefst í Róm á Ítalíu í
vikunni.
Ragna tekur þátt í VII Italian
International sem fer fram 11.-
14. desember. Mótið er hluti af
Evrópumótaröðinni og gefur stig
á heimslista Alþjóðabadminton-
sambandsins.
Mótið á Ítalíu er mjög sterkt
og þar eru mun öflugri keppend-
ur en á mótinu í Wales á dögun-
um þar sem Ragna varð að sætta
sig við að detta
út úr fyrstu
umferð. Það
reynir strax á
okkar konu í
fyrstu umferð
því hún mætir
þá vinkonu
sinni og ferða-
félaga Kati
Tolmoff frá
Eistlandi.
Þær Ragna
og Kati hafa
ferðast mikið
saman undan-
farið ár og tekið þátt í tvíliðaleik
saman á móti á Kýpur þar sem
þær enduðu í öðru sæti. Ragna
og Kati hafa mæst þrisvar í ein-
liðaleik á alþjóðlegum mótum,
tvisvar hefur Ragna sigrað og
einu sinni Kati. Kati er þó ofar á
heimslistanum en hún er númer
48 og Ragna er númer 57.
Ragna sló Kati út í undanúr-
slitunum á Iceland Express-mót-
inu á dögunum og sagði þá eftir
sigur sinn á mótinu að það hefði
verið eini leikurinn sem hún var
stressuð fyrir.
- óój
Badmintonkonan Ragna Ingólfsdóttir er á leiðinni til Ítalíu í vikunni:
Mætir vinkonu sinni í Róm
STERKT MÓT Ragna
Ingólfsdóttir fær
krefjandi verkefni
í Róm.
FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR
N1-deild karla í handbolta
Fram – HK 29-28 (13-16)
Mörk Fram: Einar Ingi Hrafnsson 7 (7), Halldór
Jóhann Sigfússon 5/2 (11/2), Filip Kliszczyk
5 (12), Jóhann Gunnar Einarsson 5/2 (15/3),
Rúnar Kárason 4 (7), Hjörtur Hinriksson 2 (2),
Jón Þorbjörn Jóhannsson 1 (1), Guðjón Finnur
Drengsson (1)
Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 17/1 (45/3)
37,8%
Hraðaupphlaup: 7 (Einar Ingi 5, Jón Þorbjörn,
Rúnar)
Fiskuð víti: 5 (Klizczyk 2, Einar Ingi, Jón Björgvin,
Halldór)
Utan vallar: 8 mínútur
Mörk HK: Augustas Strazdas 7 (9/1), Tomas Eitu-
tis 6 (10), Ólafur Bjarki Ragnarsson 5 (9), Gunnar
Steinn Jónsson 3/2 (4/3), Árni Björn Þórarinsson
2 (4), Ragnar Hjaltested 2 (5), Sergei Petraytis
1 (2), Arnar Þór Sæþórsson 1 (2), Sigurgeir Árni
Ægisson 1 (2)
Varin skot: Egidijus Petckevicius 18/1 (47/5)
38,3%
Hraðaupphlaup: 5 (Strazdas 2, Ragnar 2, Árni
Björn)
Fiskuð víti : 4 (Petraytis 2, Eitutis, Sigurgeir Árni)
Utan vallar: 10 mínútur
STAÐAN Í DEILDINNI
Haukar 13 9 3 1 369-317 21
HK 12 8 1 3 338-294 17
Fram 12 8 1 3 341-311 17
Stjarnan 12 7 1 4 358-328 15
Valur 11 6 2 3 295-265 14
Akureyri 13 2 2 9 336-361 6
Afturelding 12 2 2 8 299-318 6
ÍBV 13 1 0 12 324-466 2
NÆSTU LEIKIR
Afturelding-Valur Þri.11. des. 20.00
HK-Haukar Fös. 14. des. 19.15
Valur-Fram Fös. 14. des. 20.15
Akureyri-ÍBV Lau. 15. des. 15.00
Afturelding-Stjarnan Lau.5. des. 16.00
ÚRSLITIN Í GÆR
HANDBOLTI Fram og HK buðu upp á
stórskemmtilegan og fínan hand-
boltaleik sem Fram vann, 29-28, í
uppgjöri liðanna um annað sæti
N1-deildar karla. Liðin eru nú jöfn
að stigum með 17 stig, fjórum stig-
um á eftir Haukum en eiga bæði
einn leik til góða.
Það sást glögglega á báðum
liðum að mikið var í húfi enda
mættu bæði lið ákveðin til leiks.
Leikurinn var harður frá fyrstu
mínútu og spennan í leiknum allt-
af mikil. Gestirnir úr Kópavogin-
um náðu þó góðum spretti undir
lok fyrri hálfleik og fóru með
þriggja marka forystu inn í hálf-
leikinn, 13-16.
Fram náði að jafna metin
snemma í seinni hálfleik, 19-19, og
komast yfir, 21-20. Þá skoraði HK
fjögur mörk í röð en Fram svaraði
því með fjórum mörkum og komst
aftur yfir, 25-24. Þegar rétt rúm-
lega þrjár mínútur voru til leiks-
loka náði Fram tveggja marka for-
ystu, 28-26. HK minnkaði muninn í
eitt mark en Rúnar Kárason sem
átti frábæra innkomu í leikinn
undir lokin þegar hann skoraði
fjögur af sjö síðustu mörkum
Fram auk þess að fiska vítakast
sem Halldór Jóhann skoraði úr
kom Fram aftur tveim mörkum
yfir úr langskoti þegar hálf mín-
úta lifði leiks.
Annar efnilegur leikmaður,
Ólafur Bjarki Ragnarsson, minnk-
aði muninn fljótt í eitt mark en
Fram hélt boltanum það sem eftir
lifði leiks og vann mikilvægan
sigur í toppbaráttunni.
Bjögvin Páll Gústavsson fyrr-
um leikmaður HK og góður mark-
vörður Fram átti fínan leik en leik-
ir gegn HK snúast um meira en 2
stig fyrir hann. „Þessir leikir snú-
ast líka um stoltið og að sýna HK
að það var rangt af þeim að láta
mig fara á sínum tíma. Þetta er
mitt gamla félag en ég er Framari
í dag. Það var frábært að vinna
þetta lið. Þeir eru með sterkt lið og
hafa haft gott tak á okkur í síðustu
leikjum. Þetta er aðeins annar
sigur okkar á HK þau tvö ár sem
ég hef verið hér.“
Björgvin var fljótur að hrósa
Rúnar Kárasyni fyrir frábært
framlag hans í hægri skyttunni
undir lokin í leik þar sem helsta
stjarna Fram, Jóhann Gunnar Ein-
arsson náði sér ekki á strik.
„Rúnar kemur inn í lokin og
klárar þetta fyrir okkur upp á sitt
einsdæmi nánast. Hann er frábær
í þessum leik. Við erum með lykil-
menn í meiðslum en við erum með
menn á bekknum sem kom inn og
klára þetta. Við erum í raun allir
þreyttir í lokin nema Rúnar og
erum alltaf að skora erfið mörk.“
„Það hefði verið hrikaleg erfitt
að elta HK og Hauka hefðum við
tapað þessum leik. Það var gríðar-
lega mikilvægt að sigra þennan
leik. Þessi leikur var upp á líf og
dauða. Mikilvægast leikurinn
okkar hingað til. Það eru fjögur til
fimm lið sem geta orðið meistarar
og við eigum hvern toppleikinn af
fætur öðrum sem vinnast með
einu marki sem sýnir hvað deildin
er skemmtileg og spennandi í ár,“
sagði Björgin Páll í leikslok.
-gmi
Rúnar kláraði þetta fyrir okkur
Frábær innkoma Rúnars Kárasonar sá til þess að Fram hirti bæði stigin í 29-28 sigri á HK í slagnum um
annað sætið í N1 deild karla. Liðin eru eftir leikinn jöfn fjórum stigum á eftir toppliði Hauka.
PEYSUTOG? Framarinn Jóhann Gunnar Einarsson rífur hér peysu Ragnars Hjaltested í
liði HK. Hann slapp þó með brottvísun. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
> Dregur orð sín til baka
Einar Jónsson, þjálfari toppliðs Fram í N1-deild kvenna
handbolta, sendi frá sér yfirlýsingu í gær þar sem hann
harmar ummæli þau sem hann
lét falla að loknum leik
Fram og Stjörnunnar á
fimmtudaginn. „Ummæli
mín í garð dómaranna eftir
leikinn áttu engan rétt á sér og
ég harma þau. Ég dreg þau hér
með til baka og bið dómara leiksins
afsökunar á þeim. Lifi handboltinn,
Virðingarfyllst, Einar Jónsson, þjálfari
Fram,” segir í yfirlýsingu frá Einari.