Fréttablaðið - 10.12.2007, Blaðsíða 6
6 10. desember 2007 MÁNUDAGUR
HEILBRIGÐISMÁL Lyfjastofnun hefur
fengið 262 tilkynningar um fals-
aða lyfseðla á sjö árum. Á sama
tímabili var stofnuninni tilkynnt
um 68 stolnar lyfseðlablokkir af
heilbrigðisstofnunum með tæp-
lega 3.000 lyfseðilseyðublöðum.
Lyfseðlarnir ganga kaupum og
sölum á götunni. Þrátt fyrir aukið
eftirlit er erfitt að koma í veg fyrir
að lyf séu svikin út.
Sigurður Guðmundsson land-
læknir segir að fölsunarmál komi
reglulega upp og séu af tvennum
toga. „Annars vegar eru þetta
heilbrigðisstarfsmenn, sem ekki
hafa heimild til að skrifa út lyf,
sem einhvern veginn hafa komist
yfir lyfseðla og falsað þá, og svo
þeir sem tengjast heilbrigðis-
kerfinu ekki neitt og breyta eða
stela lyfseðlum í leit sinni að
fíknilyfjum.“
Sigurður segir að ýmislegt hafi
verið gert til að koma í veg fyrir
fölsun en það fyrirbyggi ekki
fölsun þeirra nema að hluta. „Um
skjalafals er að ræða og því eru
málin kærð til lögreglu en þegar
heilbrigðisstarfsmenn eiga í hlut
er alvara málsins enn meiri og
getur þýtt missi á starfsleyfi fyrir
viðkomandi.“
Fölsun lyfseðils flokkast sem
skjalafals í almennum hegningar-
lögum og slík mál eru kærð til lög-
reglu þegar upp um þau kemst.
Samkvæmt afbrotatölfræði ríkis-
lögreglustjóra eru 286 mál skráð
síðan 1999. Algeng aðferð til föls-
unar er að breyta upplýsingum á
gildum lyfseðli frá lækni en einnig
eru seðlar falsaðir frá grunni með
stolnum lyfseðilseyðublöðum. Frá
2001 hefur 68 lyfseðlablokkum
verið stolið af heilbrigðisstofnun-
um með alls 2.975 eyðublöðum.
Geir Jón Þórisson, yfirlögreglu-
þjónn á höfuðborgarsvæðinu, segir
að þessir óútfylltu lyfseðlar gangi
kaupum og sölum hjá fíkniefna-
neytendum.
Sigurbjörn Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Lyfju, segir öll mál
sem koma upp vera tilkynnt. „En
það eru mörg dæmi um að menn
komast upp með þessar falsanir
þar sem starfsfólk lyfjaverslana
áttar sig ekki alltaf á svikunum.“
Miklar vonir eru bundnar við
að fölsunarmálum fækki með raf-
rænni sendingu lyfseðla, sem
tekin verður upp á næsta ári.
Samkvæmt upplýsingum frá
Lyfjastofnun verður útgáfa lyf-
seðla á pappír þó áfram við lýði.
Heildarfjöldi lyfseðla árið 2004
var um tvær milljónir talsins.
svavar@frettabladid.is
EF ÞÚ GETUR BORIÐ HANN
PAKKINN
600 KR.
Fíknilyfja aflað með
fölsuðum lyfseðlum
Fíkniefnaneytendur komast ítrekað upp með að svíkja út lyf, þrátt fyrir aukið
eftirlit. Lyfjastofnun fær árlega fjölda tilkynninga um falsaða lyfseðla og tugir
slíkra mála eru kærðir til lögreglu. Stolnir lyfseðlar ganga kaupum og sölum.
Í LYFJAVERSLUN Það getur verið erfiðleikum bundið fyrir starfsfólk lyfjaverslana að
greina á milli falsaðra og ófalsaðra lyfseðla.
1999 20
2000 35
2001 18 18 351
2002 49 61 436
2003 32 38 291
2004 43 52 404
2005 40 47 826
2006 28 26 335
2007 21* 20 332
* 1. janúar til 30. nóvember
**68 lyfseðlablokkum hefur verið stolið síðan 2001
og þessir lyfseðlar eru úr þeim.
FALSAÐIR OG
STOLNIR LYFSEÐLAR
Lögregla Lyfja-
stofnun
Stolnir
lyfseðlar**
SUÐUR-KÓREA, AP Þúsundir manna
reyna nú með skóflum og fötum að
hreinsa olíu af Mallipo-strönd á
vesturströnd Suður-Kóreu eftir
versta olíuleka í sögu landsins.
Einnig vinna 105 skip að því að
hreinsa sjóinn úti fyrir ströndinni.
Óvíst er hve lengi verður unnið að
hreinsunarstarfinu en margir
sjálfboðaliðanna berjast við
höfuðverk og ógleði vegna olíu-
fnyksins.
10,5 milljónir lítra af olíu
helltust í hafið síðasta föstudag
þegar prammi sem losnað hafði
frá dráttarbát í vondu veðri rakst
á stórt olíuskip sem lá við festar.
Seint í gær höfðu um 514 tonn af
olíu verið hreinsuð, eða um 5 pró-
sent af heildarlekanum.
Tekist hafði að stöðva lekann úr
olíuskipinu í gær. Olía hafði þá
borist á land á átján kílómetra
breiðum kafla strandarinnar.
Fuglalífi og fiskeldi stóð ógn af
menguninni.
Mallipo er ein fjölsóttasta
strönd Suður-Kóreu en hún er um
150 km suðvestur af höfuðborginni
Seúl. - eá
HREINSUNARSTARF Þúsundir sjálfboðaliða kepptust í gær við að safna saman olíunni
á Mallipo-strönd. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
Versta olíumengunarslys í sögu Suður-Kóreu:
10,5 milljónir olíulítra í hafið
Telur þú að mansal viðgangist
á Íslandi?
Já 68%
Nei 32%
SPURNING DAGSINS Í DAG:
Saknarðu friðarsúlunnar?
Segðu skoðun þína á visir.is.
BANDARÍKIN, AP Óþekktur byssu-
maður gekk aðfaranótt sunnu-
dags inn á stúdentagarð fyrir
unga kristilega trúboða í þjálfun
og hóf skothríð sem varð tveim-
ur íbúum að bana og særði tvo
aðra.
Árásarmannsins var enn leitað
þegar langt var liðið á gærdag-
inn. Þá fréttist af því að maður
hefði skotið á fólk fyrir utan
kirkju í Colorado Springs, um
110 km frá vettvangi fyrri
árásarinnar. Ekki var að svo
stöddu ljóst hvort sami maður
hefði verið að verki.
Samkvæmt fyrstu fréttum í
gærkvöld höfðu að minnsta kosti
fjórir orðið fyrir skoti í seinni
árásinni en um ástand þeirra var
ekki vitað nánar.
Að sögn talsmanns lögreglu í
Denver-úthverfinu Arvada,
Susan Medina, átti fyrri árásin
sér stað skömmu eftir miðnætti,
á garði sem rekinn er af trúboðs-
samtökunum „Ungt fólk með
hlutverk“ (Youth with a Miss-
ion). Hún sagði hin látnu vera 23
ára karl og 26 ára konu. Þá hefðu
tveir karlmenn, 22 og 23 ára,
hlotið misalvarleg skotsár. - aa
Tvær skotárásir í Colorado í Bandaríkjunum:
Trúboðsnemar myrtir í Denver
FRÁ VETTVANGI Rannsóknarlögreglu-
maður kannar vettvang fyrri árásarinnar
í Denver-úthverfinu Arvada. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
UTANRÍKISMÁL Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir utanríkisráðherra
verður í dag meðal ræðumanna á
málþingi um mannréttindi í
utanríkisstefnu Íslands, sem fram
fer við Háskólann á Akureyri. Við
sama tækifæri mun Ingibjörg
opna formlega nýja heimasíðu
framboðs Íslands til öryggisráðs
Sameinuðu þjóðanna.
Í fréttatilkynningu er bent á að
í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar séu mannréttindi sett á
oddinn „og því tímabært að velta
fyrir sér hvar við stöndum og
hvert við stefnum þegar mann-
réttindi í alþjóðamálum eru
annars vegar“. - aa
Framboð til öryggisráðs SÞ:
Nýr framboðs-
vefur opnaður
KJÖRKASSINN