Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 88

Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 88
GÓÐAN DAG! Sólarupprás Hádegi Sólarlag Reykjavík Akureyri Heimild: Almanak Háskólans SÍMANÚMER FRÉTTABLAÐSINS: 512 5000, fax: 550 5099 Ritstjórn: 512 5313, fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is DREIFING: dreifing@posthusid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is Veffang: visir.is VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 512 5000 BAKÞANKAR Bergsteins Sigurðssonar Í dag er föstudagurinn 28. desember, 362. dagur ársins. 11.22 13.29 15.36 11.37 13.14 14.51 DAGARNIR milli jóla og nýárs eru indælir en um margt furðuleg- ir. Á kaffihúsum er ekki þverfótað fyrir fólki sem ákvað að taka sér frí frá vinnu til að gera það sem það hafði ekki tíma til að gera allt árið, en veit síðan ekki alveg hvað var þegar á hólminn er komið. Það virðist svo smávægilegt að það stappar nærri óvirðingu að taka bílskúrinn í gegn þegar jafn dramatískir atburðir og áramót standa fyrir dyrum. Í mörgum til- fellum er þrautalendingin sú að eyða eftirmiðdegi á Kaffitári á virkum degi; fá nasasjón af hvers- dagslífi tónlistarmanna, rithöf- unda, leikstjóra og annarra úr hinum bæheimsku stéttum, sem hafa af því er virðist ekkert betra við virka daga að gera. MILLI jóla og nýárs fyllast búð- irnar af fólki í óhefðbundnum erindagjörðum, í stað þess að kaupa er það komið til að skila vörum sem það hefur ýmist lesið áður, passar ekki í eða kann ekki við lyktina af. Þetta er líka tíminn sem maður leyfir sér að drekka dýrt koníak, vonandi í boði betur staddra ættingja í einhverju fjöl- skylduboðinu, nema auðvitað að svo illa sé fyrir manni komið að vera betur staddi ættinginn sem býður heim. ÞETTA er eini tími ársins þar sem hægt að sjá tvær íslenskar myndir í sjónvarpinu á sama kvöldi. Í aug- lýsingatímanum á milli þeirra ræður ríkjum fólk sem er fingri eða hornhimnu fátækara en aðrir; andar liðinna áramóta sem vara okkur hin við að halda of lengi á logandi ýlu eða fara í störukeppni við tívolíbombu. Ótvíræður vitnis- burður um hvað getur orðið um löngutöng þegar henni er veifað framan í skynsemina. DAGARNIR milli jóla og nýárs einkennast af togstreitu eftirsjár og tilhlökkunar; þeir minna dálítið á dyragáttir bókabúðanna á sumr- in, sem breytast í vinsælan áningar- stað ferðamanna með fyrirferðar- mikla bakpoka sem geta ekki gert upp við hvort þeir eiga að vera inni eða úti. Í gang fer ferli sem hefst á endurliti sem leiðir til upp- gjörs og þróast í fyrirheit um nýtt og betra ár laust við mistökin frá árinu á undan. Þetta er púðrið í nýársheitinu sem er tendrað á gamlárskvöld en logar í besta falli fram á vordaga áður en það spring- ur. En það er allt í lagi, það kemur alltaf annað ár. Limbó Opið föstudag og laugardag kl. 10-18, sunnudag kl. 13-18 og mánudag kl. 10-13 Nánari upplýsingar um útsöluvörur og útsöluverð eru á www.tekk.is Borðstofusett: Eikarborð 200cm og 6 Dyon-stólar Útsöluverð: 134.400 kr. Glerskápur: Útsöluverð: 119.000 kr. Sófi : 4ra sæta – Útsöluverð 111.300 kr. 3ja sæta – Útsöluverð 89.600 kr. Stóll: Útsöluverð 54.600 kr. Skemill: Útsöluverð 10.500 kr. Duncan-stóll: Útsöluverð 33.600 kr. Sófi : 4ra sæta – Útsöluverð 59.200 kr. 3ja sæta – Útsöluverð 49.600 kr. Stóll: Útsöluverð 34.000 kr. Borðstofusett: Borð 200cm og 6 Dyon-stólar Útsöluverð 79.800 kr. Glerskápur: Útsöluverð 65.400 kr. Duncan-stóll: Útsöluverð 33.600 kr. Allt að 60% afsláttur ÚTSALAN ER HAFIN! F A B R I K A N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.