Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 24
[ ] Ekki eru allir jafn hrifnir af sprengjulátunum á gamlárs- kvöld. Dýrin stór og smá geta orðið logandi hrædd þetta líflega kvöld og því var Sif Traustadóttir, dýralæknir á Dýralæknamiðstöðinni í Grafarholti, beðin að veita lesendum og gæludýra- eigendum nokkur góð ráð. Hundar og kettir: – Það er mikilvægt að halda hund- um og köttum inni við frá morgni gamlársdags (sprengingarnar byrja gjarnan strax eftir morgunmat hjá sumum) og fram yfir áramótin, jafnvel einnig á þrettándakvöld. Dýrin sækja gjarnan í dimm skot fjarri gluggum, til dæmis undir rúmi og inni í skáp. Gott er að vera búin að undirbúa fyrir hundinn og setja dýnu eða teppi sem hundurinn þekkir á þann stað sem hann leitar á. Gætið þess að þar sé ekkert sem hundurinn getur meitt sig á. Margir hundar eru vanir búrum og vilja gjarnan liggja þar ef þeir eru hræddir. Það getur verið gott að breiða teppi yfir búrið til að dempa ljós og hljóð. – Í herberginu þar sem dýrið heldur sig er gott að breiða vel fyrir glugga, kveikja á lampa og útvarpi til að dempa hljóð og ljósagang. – Sum dýr leita í fang eigandans þegar þau verða hrædd, önnur vilja heldur vera ein í dimmu skoti. Best er að leyfa dýrunum sjálfum að velja, en ef þau vilja vera hjá eig- anda er mikilvægt að ýta ekki undir hræðsluna með því að gera of mikið veður úr þessu. Eigandi verður að halda ró sinni, leyfa dýrinu að vera nálægt sér, en haga sér eðlilega að öðru leyti og reyna að sýna dýrinu að ekkert hættulegt sé að gerast. – Hundar verða að vera í taumi þegar þeir fara út í kringum áramót því þeir geta fælst og hlaupið frá eiganda. Þeir hundar sem ekki eru mjög hræddir mega fara út, en ann- ars er best að halda sig sem mest inni þegar mestu lætin ganga yfir. – Hægt er að fá hjá dýralæknum lítið stykki sem sett er í innstungu og gefur frá sér lyktarhormón/ ferómón sem virkar róandi á dýrin. Það fæst bæði fyrir hunda (kallað DAP) og ketti (Feliway). Ekki er mælt með að gefa dýrum lyf nema í mjög slæmum tilfellum. Þá er mikil- vægt að ráðfæra sig við dýralækni og fá kvíðastillandi lyf, en það skipt- ir miklu máli hvaða lyf eru valin, þar sem sum róandi lyf sem notuð voru áður fyrr geta aukið vandann til lengri tíma litið. – Það er mögulegt að draga úr hræðslu við flugelda með því að spila flugeldahljóð af sérstökum geisladiskum. Þetta þarf þó að athuga tímanlega, því það tekur marga mánuði að ná árangri ef hundurinn er mjög hræddur. Best er því að athuga með að útvega slík- an disk eftir áramót og gæta að því að um vandaðar upptökur sé að ræða, en það getur gert mikið gagn fyrir næstu áramót. Hestar og önnur húsdýr: – Allir hestar í þéttbýli eiga að vera inni í húsum á gamlársdag og þrett- ándanum. Mörg dæmi eru um að hestar hafi fælst og brotið sér leið út úr girðingum og gerðum, en af því hafa hlotist slys bæði á hestum og fólki. – Gott er að byrgja rúður í hesthús- um og hafa opið fyrir útvarp til að minnka áhrif ljósa og hávaða að utan. – Hestamönnum er bent á að fara sérstaklega varlega þegar farið er í útreiðartúra í kringum áramót, þar sem víða er verið að sprengja á öðrum tímum en á sjálfu gamlárs- kvöldi og ekki allir sem átta sig á að það getur fælt hesta og önnur dýr. – Þeim sem eiga hesta eða búfé í nágrenni við þéttbýli er bent á að gera ráðstafanir til að smala hross- um heim og hafa dýr inni á húsum á meðan mestu lætin ganga yfir. Gott er að líta eftir dýrum á húsum eftir miðnætti á gamlárskvöld. Dýrin glöð um áramót Gleðin yfir áramótin er misjöfn. Áramót tvisvar sinnum á ári JARÐARBÚAR HALDA EKKI ALLIR UPP Á ÁRAMÓT Á SAMA TÍMA. Ekki er haldið upp á áramót á sama tíma alls staðar í heiminum þar sem jarðarbúar nota ekki allir sama tímatalið. Íslendingar, líkt og aðrir Vesturlandabúar, fylgja til að mynda gregoríska tíma- talinu en samkvæmt því er gamlársdagur síðasti dagur almanaksársins. Poila Baisakh, áramót Bengala, eru hins vegar haldin annaðhvort 14. apríl eða 15. apríl í Bangladess og Vestur-Bengal. Enkutatash, áramót Eþíópíu, eru haldin 11. september. Áramót hindúa eru tveimur dögum eftir Diwali-hátíðina, eða um miðjan nóvember. Norouz, áramót Írana, eru haldin á augnabliki vorjafndægurs. Sunni, áramót múslíma, eru haldin þann 1. Muharram. Þar sem dagatal múslíma byggir á 12 tunglmánuðum, um það bil 354 dögum, er dagsetning þess í gregoríska tímatalinu ögn fyrr á hverju ári. Þetta er áhugavert fyrir þær sakir að múslímar munu þar af leiðandi halda tvisvar sinnum upp á áramót árið 2008. Nánari upplýsingar á www.wikipedia.org. Mikið er um dýrðir á gamlárskvöld á Íslandi, flugelda og fagnaðarlæti. Grímur, hattar, ýlur og fjör Nú nálgast síðasta partí ársins og því sjálfsagt að tjalda öllu til. Glys og gleði setja ætíð sinn svip á hátíðina og er um að gera að skreyta sjálfan sig og umhverfi sitt eins og dragdrottningu í Vegas. Sif Traustadóttir, dýralæknir á Dýralæknamiðstöðinni í Grafarholti, veitir góð ráð. NÆTURVAKTIN KOMIN Á DVD NÆTUR- VAKTIN allir 12 þættirnir á 2 diskum troðfullir af aukaefni; tilurð þáttanna / upptökur frá spunum, gerð næturvaktarinnar og yfirlestur (commentary) frá höfundum og aðalleikurum. Eigum við að ræða það eitthvað? 2 DVD
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.