Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Sími: 512 5000
FÖSTUDAGUR
28. desember 2007 — 352. tölublað — 7. árgangur
HEIMILI HEILSA HÚS BÖRN NÁM ÁRAMÓT MATUR BÍLAR TÍSKA GRÆJUR ATVINNA TILBOÐ VINNUVÉLAR O.FL.
ÚTLITIÐ FULLKOMNAÐFylgihlutir um áramót mega vera ýktir, glitrandi og gylltir.ÁRAMÓT 3
DÝRIN RÓUÐ UM ÁRAMÓTEkki eru allir jafn hrifnir af skotgleði landans um áramótin. Sif Traustadóttir
dýralæknir veitir góð ráð.
ÁRAMÓT 2
Björgunarsveitir landsins vinna óeigingjarnt
starf launalaust og standa sveitirnar sjálfar
að mestu undir rekstrinum með ýmiss konar
fjáröflun.
„Flugeldasalan er langmikilvægasta fjáröflunin, hún
heldur uppi björgunarsveitunum og hjá mörgum
heldur hún uppi 80-90 prósentum af rekstrinum,“
segir Ólöf Snæhólm Baldursdóttir, kynningarfulltrúi
Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Í Landsbjörg eru
18 þúsund félagsmenn um land allt. „Við erum með
100 björgunarsveitir á okkar snærum, allarbjörguna
sveitir landsins og svo um 70 lunglin d
Mikil áhersla er lögð á þjálfun og rekur Slysa-
varnafélagið Landsbjörg björgunarskóla þar sem
fólk lærir að verða björgunarmenn. „Þú þarft að
ljúka ákveðnu námi til að mega fara í útkall en það
tekur yfirleitt tvö ár að klára það, hins vegar er
hægt að nýta starfskrafta allra því það eru mörg
störf þarna í kring,“ segir Ólöf. Ekki eru fluttar fréttir af öllum útköllum björgun-
arsveitanna. Þau eru um 1.200 til 1.400 á ári eða 3-4
á dag allt árið um kring. Ólöf útskýrir að á bak við
hverja stund í útkalli séu 12 aðrar vi
viðhaldi tækja þjálf
Þegar neyðin er stærst
Ólöf Snæhólm, kynningar-fulltrúi Slysavarnafélagsins Landsbjargar, vill minna fólk á hlífðargleraugun um áramótin.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
0%
10%
20%
30%
40%
50%
60%
70%
Föstudagur
*Samkvæmt fjölmiðlakönnun Capacent í ágúst–október 2007
Lestur meðal 18–49 ára
á höfuðborgarsvæðinu*
40%
B
la
ð
ið
/2
4
s
tu
n
d
ir
M
o
rg
u
n
b
la
ð
ið
F
ré
tt
a
b
la
ð
ið
43%
70%
BB
SLYSAVARNAFÉLAGIÐ LANDSBJÖRG
Flugeldasalan
hefst í dag
áramót
Í MIÐJU BLAÐSINS
Skemmtanastjórinn
við Lágmúla
Liv Bergþórsdóttir,
framkvæmda-
stjóri Nova,
farsímavæddi
landann á sínum
tíma.
FYLGIR FRÉTTA-
BLAÐINU Í DAG
VINNUVÉLAR
Götunum haldið
greiðfærum
Sérblað um vinnuvélar
FYLGIR FRÉTTABLAÐINU Í DAG
vinnuvélarFÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 2007 Greiðfærar göturMeðan flestir borgarbúar sofa er unnið ötult starf á götum borgarinnar BLS. 6
Léttur undirbúningur
Edda Andrésdóttir
er 55 ára í dag.
Hún lítur á af-
mælið sem léttan
undirbúning fyrir
sextugsafmælið.
TÍMAMÓT 26
Liv Bergþórsdóttir framkvæmdastjóri NovaFARSÍMAVÆDDIÞJÓÐINA
SJÓNVARP Níu handrit að leiknum
sjónvarpsþáttum fengu styrk frá
Kvikmyndamiðstöð Íslands en
það er helmingsfjölgun frá
undanförnum árum. Laufey
Guðjónsdóttir, forstöðumaður
Kvikmyndamiðstöðvar, segir
þetta glöggt merki um að mikill
uppgangur sé í framleiðslu
leikins efnis fyrir sjónvarp.
Að sögn Laufeyjar hefur
sjónvarpssjóðurinn hækkað
töluvert sem gerir Kvikmynda-
miðstöðinni kleift að taka þátt í
gerð leikinna þáttaraða í enn
meira mæli. „Og hann mun halda
áfram að hækka töluvert til
ársins 2010 þannig að þetta er
bara rétt að byrja,“ segir Laufey.
- fgg / sjá síðu 42
Leikið sjónvarpsefni:
Stefnir í metár
HEILBRIGÐISMÁL Vinnu við frum-
áætlun á nýju húsnæði Landspítal-
ans er lokið. Verið er að ganga frá
lokaskýrslu áætlunarinnar og
verður henni skilað í lok febrúar
eins og áætlað var.
Ingólfur Þórisson, verkefnis-
stjóri hins nýja spítala, segir að
um jákvæðar breytingar sé að
ræða. „Á legudeild verða einstakl-
ingsherbergi með sérsnyrtingu,“
segir hann.
Eins og Fréttablaðið hefur
greint frá eru þrengsli á deildum
Landspítalans mikil. Margir sjúk-
lingar liggja saman á stofu og í
þeim deildum sem búa við hvað
þrengstan kostinn þurfa sjúkling-
ar jafnvel að liggja á göngum.
„Þannig verður aðstaðan ekki á
nýju sjúkrahúsi. Einbýli verða í
forgangi, lögð hefur verið áhersla
á að hugsa stofnunina út frá sjón-
arhóli sjúklinganna,“ segir Ingólf-
ur. Hann tekur fram að frumáætl-
unin lúti að þarfagreiningu og
deiliskipulagi lóðarinnar og enn
eigi eftir að útfæra arkitektúr
byggingarinnar. Það eru ráðgjafar
danska arkitektafyrirtækisins CF
Møller sem vinna að gerð þarfa-
greiningarinnar og tillagnanna að
deiliskipulagi. Áætlað er að fyrsta
áfanga nýrrar byggingar verði
lokið árið 2013 til 2014.
Það er þó ljóst að vandamál Land-
spítalans eru ærin á mörgum stöð-
um vegna þrengsla. „Það er enginn
vafi í mínum huga að spítalinn býr
á sumum deildum við húsnæðis-
vanda, eins og margar aðrar heil-
brigðistofnanir,“ segir Guðlaugur
Þór Þórðarson heilbrigðisráðherra.
Guðlaugur segist vilja líta á
aðstöðu sjúkrastofnana út frá
stærra samhengi. Því hafi hann
stofnað nefnd sem hefur það
hlutverk að styrkja eftirlit með
uppbyggingu fasteigna heilbrigðis-
stofnana og starfar undir stjórn
Ingu Jónu Þórðardóttur. „Ef litið er
á aðstöðu sjúkrastofnana á landinu
í heild tel ég að í því geti falist
tækifæri, því verðmæti geta legið í
eignum sem hægt er að losa um og
byggja upp ný úrræði í staðinn,“
segir Guðlaugur. - kdk
Allir sjúklingar fái
einbýli með snyrtingu
Vinnu við frumáætlun á nýju húsnæði og deiliskipulagi Landspítalans er lokið.
Húsnæðisvandi spítalans nú er mikill. „Gríðarlega jákvæðar breytingar,“ segir
Ingólfur Þórisson verkefnisstjóri. Skýrslu verður skilað í lok febrúar.
Tarantino lentur
Kumpánarnir Quent-
in Tarantino og Eli
Roth hyggjast verja
áramótunum hér á
landi.
FÓLK 42
VEÐRIÐ Í DAG
FROST Í dag verður fremur hæg
norðlæg átt. Stöku él norðan til og
austan, annars hálf- eða léttskýjað.
Frost 3-12 stig, kaldast til landsins.
VEÐUR 4
AKUREYRI Mikið vatnstjón varð í
íbúðarhúsi við Brekkugötu á
Akureyri í gær þegar heitt vatn
lak um allar hæðir hússins.
Húsið er að sögn varðstjóra
lögreglunnar stórskemmt enda
auðséð að vatnið hefur lekið um
húsið í einhverja daga og hitinn
verið gríðarlegur.
Er húsið byggt árið 1923, úr
steini og timbri og telur kjallara,
hæð og ris. Kom lekinn upp í
risinu og lak vatnið þaðan á aðrar
hæðir hússins.
Eini íbúi hússins var ekki
heima þegar lekinn kom upp.
- ovd
Mikið vatnstjón á Akureyri:
Vatn og hiti
skemmdu hús
PAKISTAN „Þetta er ekki bara sorg-
legt fyrir okkur heldur fyrir allan
heiminn,“ segir Sheikh Aamir Uz-
Zaman, pakistanskur eigandi veit-
ingahússins Shalimar í Austur-
stræti í Reykjavík, um morðið á
pakistanska stjórnarandstöðu-
leiðtoganum Benazir Bhutto í gær.
Bhutto var á leið af kosninga-
fundi þegar hún var ráðin af
dögum í skot- og sjálfsmorðs-
sprengjuárás. Að minnsta kosti
fimmtán aðrir létust í tilræðinu,
sem hefur valdið mikilli ólgu í
landinu. Böndin bárust strax að
íslömskum öfgamönnum.
Pervez Musharraf, forseti Pak-
istans, fordæmdi ódæðið strax og
hvatti til stillingar. Þjóðarleiðtogar
um heim allan fordæmdu tilræðið
einnig og sendu þjóðinni samúðar-
kveðjur, þeirra á meðal forsetar
Bandaríkjanna og Indlands.
„Morðið á Benazir Bhutto er
hörmuleg áminning um fórnirnar
sem einatt eru færðar þegar reynt
er að festa lýðræði í sessi,“ segir í
tilkynningu frá forseta Íslands,
Ólafi Ragnari Grímssyni.
- sh / sjá síðu 6
Pakistanska þjóðin í uppnámi eftir morðið á Benazir Bhutto:
Sorglegt fyrir allan heiminn
LISTIR Mynd frá Reykjanesinu
eftir áhugaljósmyndarann Olgeir
Andrésson var í gær valin mynd
dagsins á stóra ljósaskiltinu á
Times Square í New York í
Bandaríkjunum.
Myndin var því sýnd á fimm
mínútna fresti á þessum fræga
og fjölfarna stað. Einnig komst
hún í almanak Times Square Gall-
ery, sem skoða má á netinu.
„Ég sendi myndina fyrir um
mánuði og var búinn að stein-
gleyma því að ég hefði sent hana,“
segir Olgeir um þennan heiður.
Þess má geta að öðrum
íslenskum áhugaljósmyndara,
Guðrúnu Gísladóttur, hlotnaðist
þessi sami heiður í október.
- kóþ
Íslenskur ljósmyndari:
Reykjanes á
Times Square
SIGURMYNDIN Myndin var tekin seint í
maí við Reykjanesvita og lét Olgeir ljós-
op vélarinnar liggja opið í hálfa mínútu.
HARMI SLEGNIR Stuðningsmenn Benazir Bhutto syrgðu leiðtoga sinn á spítalanum þar sem hún lést í gær. Lík Bhutto var í
gærkvöldi flutt til Larkana, heimabæjar hennar. NORDICPHOTOS / AFP
Sverre á leiðinni heim
Sverre Andreas Jakobsson er á
leið heim og stefnir á að spila
handbolta á Íslandi.
ÍÞRÓTTIR 38