Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 81
FÖSTUDAGUR 28. desember 2007 37
Íslandsvinurinn og tónlistarmaðurinn Damon Albarn
kveðst vera fyrir löngu búinn að fá nóg af hæfileika-
þáttum sem ganga út á að búa til stjörnur og kallar á
að framleiðslu þeirra verði hætt undir eins. Albarn
var í viðtali við Radio 4 útvarpsstöðina í Bretlandi
þegar hann lét ummælin falla og hafa þau valdið
nokkru fjaðrafoki þar ytra.
„Við þurfum að endurskoða nokkra þætti og
venjur í okkar menningarsamfélagi. Fyrir það
fyrsta þurfum við að losna við þætti á borð við X-
Factor og það tafarlaust,“ sagði Albarn. Hinn 39 ára
gamli söngvari segir slíka þætti senda út röng
skilaboð til almennings.
„Svona þættir ýta undir þá hugsun að hægt sé að
öðlast frægð og frama án þess að vinna fyrir því.
Það er náttúrulega bull og vitleysa. Það á að vera
mjög erfitt og krefjandi að vera vinsæll tónlistar-
maður,“ segir Albarn.
Ekki meiri X-Factor
DAMON ALBARN Hefur óbeit á raunveru-
leikaþáttum á borð við X-Factor og Idol.
Fleiri mistök voru gerð í
hasarmyndinni Spiderman
3 heldur en í nokkurri
annarri mynd á árinu,
samkvæmt lesendum
bresku heimasíðunnar
moviemistakes.com. Alls
sáust 157 mistök í mynd-
inni. Í henni sást meðal
annars í Terminal-turninn í
Ohio þrátt fyrir að myndin
eigi að gerast í New York.
„Peningurinn sem er
lagður í svona myndir er
alltaf að verða meiri og
maður myndi því halda að
hægt væri að koma í veg fyrir svona mistök, en sú er alls ekki raunin,“
sagði talsmaður heimasíðunnar. „Meira að segja tölvuteiknaðar myndir
eru ekki ónæmar fyrir þessu, sem mér finnst ótrúlegt.“ Á meðal fleiri
mynda sem voru fullar af mistökum voru High School Musical 2, 1408
og Hot Fuzz.
Flest mistök í Spiderman
SPIDERMAN Hasarmyndin Spiderman 3 er
full af mistökum samkvæmt heimasíðunni
moviemistakes.com.
Ný kvikmynd
Jessicu Simpson,
Blonde Ambition,
kollféll á fyrsta sýn-
ingardegi og halaði
aðeins inn um
24.000 krón-
um. Alls sáu
48 bíógestir
myndina
sem þótti
það slök að
upphaflega
átti að gefa
hana strax
út á DVD.
Ákveðið var að sýna hana eingöngu
í bíóhúsum í heimabæ Jessicu í
Texas, í von um að þar leyndust
helst aðdáendur hennar. Greinilega
ekki!
Courtney Love
var rænd í
vikunni, þar
sem hún dvaldi
á Four Seasons
hótelinu í New
York. Teknir voru
bleikir demants-
eyrnalokkar að
andvirði rúmlega
tveggja milljóna
króna sem
Courtney
ætlaði sem
jólagjöf handa
dóttur sinni,
Francis Bean,
og hafði
ekki enn
látið tryggja.
Lögreglan
yfirheyrir nú
allt starfsfólk hótelsins sem kom
nálægt herberginu.
Victoria Beckham
varð einnig fórnar-
lamb þjófa nýlega,
en brotist var inn í
búningsher-
bergi hennar
á Kryddpíu-
tónleikum í
Þýskalandi.
Rándýrum
fatnaði og
fylgihlutum
var stolið,
þar á meðal
sviðsbúningum og sérhönnuðum
náttslopp frá Roberto Cavalli.
Kryddpían er æf yfir ráninu en fátt
er henni mikilvægara en tískan.
Búningsherbergi hinna stúlknanna
voru látin ósnert.
Söngkonan Fergie
úr hljómsveitinni
Black Eyed Peas
og leikarinn Josh
Duhamel úr sjón-
varpsþáttunum Las
Vegas trúlofuðu
sig um jólin. Parið
hefur verið saman
í þrjú ár og festi
nýlega kaup á ein-
býlishúsi. Söngstjarnan
hefur því mörgu að fagna
þessa daga en lagið Big
Girls Don’t Cry af fyrstu
sólóplötu hennar, The
Dutchess, er tilnefnd til
Grammy-verðlauna.
FRÉTTIR AF FÓLKI
Nám í tónvinnslu
og lagasmíðum
- í samstarfi við Digidesign framleiðanda Pro-Tools
Tónvinnsluskólinn „Sponsored Digidesign School“
Nýlega gerðu Tónvinnsluskólinn og Digidesign með sér
samstarfssamning um þjálfun nemenda í Pro-Tools og kallast nú
Tónvinnsluskólinn „Digidesign Sponsored School“.
Þetta veitir okkur rétt til að kenna til alþjóðlega viðurkennds prófs
Pro-Tools 101 og Pro-Tools 110. 101 gráðan gerir mönnum kleift að nota
Pro-Tools til eigin hagsmuna við lagasmíðar og upptökur meðan að 110
gráðan gerir mönnum kleift að nota Pro-Tools í hljóðversumhverfi
atvinnumannsins.
Veitir rétt til framhaldsnáms
Eftir að hafa tekið þessi próf geta nemendur farið beint í 201 og 210
gráðurnar erlendis sem gerir menn að viðurkenndum „Pro-Tools
Operator“ sem gefur möguleika á störfum hér og erlendis í hljóðverum
og kvikmyndaverum.
Hvernig klárar maður lag frá A til Ö
Að öðru leiti er námskeiðið óbreytt, farið er í ferlið frá því að hugmynd
að lagi kviknar þar til lag er tilbúið til útgáfu, hvernig gengið er frá
hljómablöðum (lead sheets) og samskiptum í hljóðveri.
Kennt er á midi, hljóðforritið Melodine, farið í almennar upptökur,
míkrófóntækni og staðsetningar, eftirvinnslu, hljóðblöndun
og lokahljóðjöfnun. Námið tekur 4 mánuði eða 160 klst.
VORNÁMSKEIÐIN HEFJAST Í FEBRÚAR
Námskeiðin
hefjast í
febrúar.
Skráningar í
síma 534 9090
eða á
heimasíðunni
www.tonvinnslu
skoli.is
Sponsored Digidesign School