Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 28.12.2007, Blaðsíða 2
2 28. desember 2007 FÖSTUDAGUR LÖGREGLUMÁL Tæplega áttræð ein- stæð kona fannst látin í íbúð sinni í Austurbrún 6 á Þorláksmessu. Talið er að konan, sem var öryrki, hafi verið látin í íbúðinni í nokkra daga áður en hún fannst. Samkvæmt upplýsingum Frétta- blaðsins hafði fólk ætlað að heim- sækja konuna á Þorláksmessudag. Þegar hún kom hvorki til dyra fyrri hluta né seinni part dagsins var lögreglu gert viðvart. Lög- reglumenn fóru inn í íbúðina og komu að konunni látinni. Þetta er í annað sinn í desember- mánuði sem komið er að einstæð- ingi sem legið hefur látinn í hús- næði sínu svo dögum skiptir. Fyrr í mánuðinum fannst einstæð kona látin í íbúð sinni í Hátúni 10. Talið var að hún hefði verið látin í meira en viku þegar komið var að henni. Konan sem fannst á Þorláks- messu bjó í félagslegu húsnæði á vegum Reykjavíkurborgar í Aust- urbrún. Ellý Þorsteinsdóttir, skrif- stofustjóri hjá velferðarsviði borg- arinnar, segir það mjög miður að þetta skuli hafa gerst. Spurð segir hún að eftirlitsskylda velferðar- sviðs með fólki búsettu í félags- bústöðum sé engin. Það fái stuðn- ing og heimaþjónustu á grunni einstaklingsbundinna þarfa en sæki hana þá sjálft. Að sjálfsögðu verði látin fara fram athugun á atvikinu í Austurbrún 6. - jss AUSTURBRÚN 6 Konan hafði legið látin dögum saman í íbúð sinni þegar lögreglan fann hana. VIÐSKIPTI Skrifað hefur verið undir samkomulag um kaup Bjarna Ármannssonar, fyrrum forstjóra Glitnis, á 12 prósenta eignarhlut í Glitnir Property Holding (GPH), fyrir 970 milljónir króna. Í tilkynningu Glitnis um kaupin kemur fram að þau séu háð samþykki stjórnar GPH og annarra eigenda félagsins. GPH er fasteignafélag sem starfar á norræna fasteignamarkaðinum. Gangi salan eftir nemur hagnaður Glitnis 300 milljónum króna, en til viðbótar færist til tekna 1,5 milljarða króna söluhagnaður vegna tilfærslu eftirstandandi eignarhlutar út úr samstæðu bankans. Þar sem eign bankans í félaginu fer niður fyrir 50 prósent verður GPH eftirleiðis flokkað sem hlutdeildarfélag Glitnis en ekki dótturfélag. - óká BJARNI ÁRMANNSSON Bjarni Ármannsson fjárfestir: Kaupir fyrir 970 milljónir í GPH LÖGREGLUMÁL Karlmaður af litháískum uppruna hefur verið úrskurðaður í farbann fram í miðj- an janúar eftir að hann réðst á lögreglumann og stórslasaði hann. Það var á Þorláksmessukvöld að maðurinn, sem var ölvaður, hafði verið handtekinn á Hverfisgötunni fyrir eignaspjöll. Hann réðst á lögreglumanninn með þeim afleiðingum að hinn síðarnefndi kinnbeinsbrotnaði. Hann þurfti að gangast undir aðgerð á Landspítal- anum vegna áverkans. Árásarmað- urinn hefur dvalið hér á landi í rúmt hálft ár. Hann á að baki sakarferil hér vegna þjófnaðar- mála og líkamsmeiðinga. - jss Kinnbeinsbraut lögreglumann: Farbann vegna líkamsárásar Jóhann, var Hamborgarinn hryggur um jólin? „Hann var allavega ekki í neinni sæluvímu.“ Þjóðverji á sextugsaldri var handtekinn við komuna frá Hamborg á laugardag með rúmlega 23.000 töflur af alsælu í fórum sínum. Hann sat í varðhaldi yfir hátíðirnar. Jóhann R. Benediktsson er lögreglustjóri á Suðurnesjum. HEILBRIGÐISMÁL Samstarfssamn- ingur Reykjavíkurborgar og Samtaka áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann (SÁÁ) var undirritaður í gær af Degi B. Eggertssyni, borgarstjóra og Þórarni Tyrfingssyni, formanni SÁÁ. Markmið samningsins er meðal annars að auka forvarnastarf, bæta þjónustu við áfengis- og vímuefnasjúklinga og efla tengsl meðferðaraðila og velferðar - þjónustu. Þá styrkir Reykjavíkurborg SÁÁ um samtals 55 milljónir króna á næstu þremur árum. - ovd Samstarf SÁÁ og Reykjavíkur: Aukin þjónusta við áfengissjúka HOLLAND, AP Þingmaðurinn Geert Wilders sem þekktur er fyrir andstöðu sína gegn innflytjendum gagnrýndi harðlega jóladagsræðu Beatrix Hollandsdrottn- ingar. Wilders sagði ræðuna vera dulda árás á flokk sinn, Frelsisflokkinn, og sagðist ætla í næsta mánuði að leggja fram þingsályktun þar sem skilið yrði á milli drottningar og ríkisstjórnar. Samkvæmt hollensku stjórnar- skránni er forsætisráðherrann ábyrgur fyrir ræðum drottningar og getur hún því ekki tjáð sínar eigin pólitísku skoðanir. - ovd Þingmaður átelur drottningu: Telur fjölmenn- ingu kjaftæði LÖGREGLUMÁL Þrír af þeim fjórtán Litháum, sem handteknir voru fyrir búðarhnupl í október, hafa verið dæmdir til fangelsisvistar. Einn fékk tveggja mánaða skil- orðsbundinn dóm. Ákærur voru gefnar út á hendur sex mannanna. Tveir þeirra voru sýknaðir með öllu. Þyngsti dómurinn var tíu mán- uðir en sá sem fékk hann hafði rofið eldri skilorðsbundinn dóm. Annar maður var dæmdur í fjög- urra mánaða fangelsi og sá þriðji í átta mánaða fangelsi, þar af voru sex mánuðir skilorðs- bundnir. Þriggja vikna gæsluvarðhald dregst frá refsingu þeirra allra. Litháarnir fjórtán voru hand- teknir í október og níu þeirra máttu sitja í gæsluvarðhaldi í þrjár vikur, meðan aðrir voru í farbanni. Fólkið var grunað um skipulagða glæpastarfsemi. Sex voru síðan ákærð í nóvember í þremur ákærum fyrir hylmingu, þjófnað og vörslu þýfis. Samkvæmt heimildum Frétta- blaðsins var rannsókn málsins umfangsmikil og kostnaðarsöm. Lögreglan hafi talið sig hafa rök- studdan grun um að fólkið tengd- ist 21 broti en það var síðan ákært fyrir örfá brot og ekki fyrir skipu- lagða glæpastarfsemi. Öllum skaðabótakröfum versl- ana var vísað frá dómi. Þegar Litháarnir fjórtán voru upphaflega fangelsaðir var haft eftir lögreglu að þeir væru grun- aðir um að hafa komið til Íslands gagngert til að ræna. Einnig var talað um tengsl við „litháíska mafíu“ í fjölmiðlum og að um „atvinnuþjófa“ hefði verið að ræða. Fyrir utan rannsóknar- og gæsluvarðhaldskostnað skal ríkissjóður greiða verjendum mannanna um fimm milljónir króna í málsvarnarlaun og 30.000 krónur fyrir túlkaþjónustu. Heimildir Fréttablaðsins meta hins vegar þýfið, eða fjárhagslegt tjón vegna glæpanna, á að hámarki tvær milljónir króna. Í niðurstöðu dómsins, sem féll 20. desember, er rætt um galla sem hafi verið á ákærum. Ekki náðist tal af Karli Inga Vilbergs- syni, sem fór með málið fyrir hönd ákæruvaldsins. klemens@frettabladid.is Þrír af fjórtán hand- teknum í fangelsi Af fjórtán meintum skipulögðum glæpamönnum sem handteknir voru í október fyrir búðarhnupl, voru fjórir dæmdir í tveggja til tíu mánaða fangelsi, þar af einn skilorðsbundið. Málskostnaður mun meiri en hugsanlegt fjártjón glæpanna. DANMÖRK Fjórir grímuklæddir menn rændu peningamiðlun Den Danske Bank í Braband- hverfi í Árósum í Danmörku í gær. Ræn- ingjarnir óku Toyota Hilux bifreið í gegnum girðingu sem umlykur bankann og tæmdu því næst peninga úr peningaflutn- ingabíl sem þar stóð. Þá flúðu ræningjarnir á öðrum bíl sem svo fannst mannlaus í tíu kílómetra fjarlægð frá ránsstað. Er ránið það næststærsta sem framið hefur verið í Danmörku en ræningjarnir komust á brott með 26,7 milljónir danskra króna sem reiknast til tæplega 330 milljóna íslenskra króna. - ovd Bankarán í Danmörku: Sluppu með 330 milljónir LÖGREGLUMÁL Nær öruggt má telja að Þjóðverjinn sem tekinn var með rúmlega 23 þúsund e-töflur í Leifsstöð fyrir jól hafi einungis verið burðardýr. Hann hafi flutt efnin inn fyrir einhverja búsetta hérlendis. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var maðurinn afar óásjálegur og illa til reika við komuna til Kefla- víkurflugvallar á laugardagskvöld. Hann mun vera undirmálsmaður í þjóðfélaginu og fyrrverandi heróínfíkill. Að sögn Sveins Andra Sveinssonar, lögmanns hans, ber hann því við að hafa flutt efnin inn fyrir innlenda aðila sem hann segist ekki kunna deili á. Algengt sé að sá háttur sé hafður á, að endanlegur viðtakandi og sá sem kemur með efnin til landsins hafi aldrei talast við eða hist. Sveinn Andri segir skjólstæðing sinn ætla að una gæsluvarðhaldsúrskurðinum sem hann hlaut til 14. janúar. Töflurnar 23 þúsund eru næstmesta magn e-taflna sem lagt hefur verið hald á hérlendis, og annar stóri skammturinn af efninu sem tekinn er í ár. Í skútu í Fáskrúðsfjarðarhöfn fundust í haust 1.700 e-töflur og 14 kíló af e-töfludufti, sem dugað hefðu til framleiðslu á um 140 þúsund töflum. - sh E-töflusmyglið sem komst upp fyrir jól var ekki skipulagt af hinum handtekna: Þjóðverjinn nær örugglega burðardýr LEIFSSTÖÐ Maðurinn var óásjálegur og illa til reika við komuna á Keflavíkurflugvöll. Á LEIÐ Í FANGELSI Minnst tíu voru handteknir vegna málsins að ósekju, eða án þess að nægileg sönnunargögn væru fyrir hendi. Málskostnaður var mun meiri en hugsanlegt tjón af þjófnaðinum. FRÉTTABLAÐIÐ/VÖLUNDUR Velferðarsvið borgarinnar lætur athuga hörmulegt atvik í Austurbrún: Öldruð kona lá látin í íbúð sinni svo dögum skipti Af þeim fjórtán sem handteknir voru og sátu í gæsluvarðhaldi eða sættu farbanni voru ákærur gefnar út á hendur sex mönnum. ■ Einn þeirra hlaut tíu mánaða fangelsisdóm. Eldra skilorð var dæmt upp í. ■ Annar hlaut fjögurra mánaða fangelsisdóm. ■ Sá þriðji hlaut átta mánaða fangelsisdóm, þar af sex mánuði skilorðsbundna. ■ Sá fjórði hlaut tveggja mánaða skilorð. ■ Tveir hinna ákærðu voru sýknaðir með öllu. SEX ÁKÆRÐIR SAUÐÁRKRÓKUR Lögreglan á Sauðárkróki lagði hald á rúm 60 grömm af hassi aðfaranótt Þorláksmessu. Voru þrír menn stöðvaðir fyrir umferðarlagabrot og fundust þá efnin á einum mannanna sem játaði að eiga þau. Að sögn varðstjóra má ætla að meirihluti efnanna hafi verið ætlaður til sölu enda um töluvert magn að ræða og hafði þeim verið pakkað í þar til gerðar umbúðir. Lagði lögreglan einnig hald á nokkurt fé sem hún ætlaði að væri afrakstur mannsins af sölu fyrr um kvöldið. Í yfirheyrslum játaði maðurinn að hafa ætlað efnin til sölu og var mönnunum þá sleppt enda málið talið upplýst. - ovd Þrír teknir á Sauðárkróki: Teknir með hass á Þorláksmessu Tíu bílum bjargað á Jökuldal Björgunarsveitin Jökull á Jökuldal aðstoðaði ökumenn tíu bíla við að komast til byggða á Egilsstöðum eftir að snöggan veðurhvell gerði þar um slóðir. LÖGREGLUMÁL GEERT WILDERS SPURNING DAGSINS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.